Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 89

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 89
FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTI Lyfjamál 103 Lyfjaupplýsingar og gagnreynd læknísfræðí (evídence based medicine) Undanfarið hefur mikið verið rætt og ritað um gagnsemi gagnreyndrar læknisfræði í klínískri vinnu. Margar góðar uppsprettur slíkra upplýsinga eru að- gengilegar en hugsanlega vannýttar. Þetta á ekki síst við þegar kemur að mati á kostum og göllum ákveð- innar lyfjameðferðar. í vísindagreinum eru upplýs- ingar oftar en ekki settar fram þannig að nokkuð þarf að leika sér með tölur áður en hægt er að fá fram beina minnkun áhættu með meðferð. Það að lesa úr rannsóknarniðurstöðum er nokkuð sem allir læknar munu vonandi halda áfram að gera en á hinn bóginn virðist sá geiri vísindaupplýsinga sem tekur fyrir kerf- isbundið mat á mörgum rannsóknum um ákveðið efni vera óaðgengilegri. Undirstaða vinnu af þessu tagi eru í mörgum tilvikum kerfisbundin yfirlit unnin af Cochrane samtökunum víða um heim: hiru.mc- master.ca/cochrane/default.html Hér að neðan er bent á nokkur lyfjablöð sem öll eiga það sameiginlegt að nota gagnreynda læknis- fræði í anda Cochrane samtakanna þegar hennar nýt- ur við og vera aðgengileg án endurgjalds á netinu (að undanskildu Prescrire International). Lyfjablöö Frá Bretlandi • MeReC bulletins og MeReC extra geyma vandað- ar upplýsingar um ákveðna sjúkdóma eða lyfja- flokka. Bæði þessi hefti má nálgast í gegnum heimasíðu MeReC: www.npc.co.uk/merec.htm • Aðrar útgáfur frá „National Prescribing Centre“ má finna á: www.npc.co.uk/npc_pubs.htm • British National Formulary: bnf.org/ • British Medical Joumal: bmj.com/ hefur undan- farin ár tileinkað gagnreyndri læknisfræði æ stærri hlut í blaðinu. Þar sem helst ber að leita er undir „clinical review". Á heimasíðunni er einnig að finna lista yfir „evidence based products" á þeirra vegum: www.bmjpg. com/template. cfm ?name=bmjprod_ebp Frá Kanada Therapeutic Letter kemur út annan hvern mánuð og er gefið út af „Therapeutics Initiative. Evidence based drug therapy" á vegum háskólans í British Columbia í Vancouver, Kanada: www.ti.ubc.ca/eða: www.ti.ubc. ca/pages/letter. htm l Frá Danmörku Á vegum „Institut for Rationel Farmakoterapi“ er gefið út mánaðarblaðið „Rationel Farmakoterapi“ sem tekur fyrir á hnitmiðaðan og vandaðan hátt ákveðinn lyfjaflokk, lyf eða ástand. Sjá heimasíðu blaðsins: www.irf.dk/oversigt-bladet.htm eða stofnun- arinnar: www.irf.dk/ Frá Frakklandi Þar er Prescrire International sem er stytt útgáfa á ensku af frönsku útgáfunni „Prescrire La revue“ en heimasíða þeirra er www.esculape.com/prescrire/ Við almenna heimildaleit að efni sem byggist á gagn- reyndri læknisfræði er bent á að í OVID eru nú þegar þó nokkrir möguleikar til þess að leita aðeins í slíku efni (evidence based medicine). Inn á OVID er auð- velt að fara af heimasíðu www.hvar.is. Það er einnig fyrst og fremst í gegnum OVID-aðgang sem flest okkar geta nálgast margt það efni sem í boði er í fullri lengd. Þetta á meðal annars við um kerfisbundin yfir- lit frá Cochrane samtökunum og Clinical Evidence. Einn besti staðurinn til að finna efni í þessum dúr er þó www.tripdatabase.com sem er mjög hentugur byijunarreitur. Alþjóðleg samtök um mat á heilbrigðistækni („International Network of Agencies for Health Technology Assessment") hafa heimasíðuna: www.inahta.org/ P&ss\ staður er tekinn með þótt hér megi finna mikinn fróðleik um fleira en lyf því upp- lýsingar þessar eru í mörgum tilvikum birtar í skýrsl- um sem flestum læknum eru lítt kunnar. Á heimasíðu þeirra má leita að einstaka skýrslum en einnig er góður leitarmöguleiki í gagnagrunni þessum hjá „NHS Centre for Reviews and Dissemi- nation" á: www.york.ac.uk/inst/crd/ „Netting the evidence" er eitt af mörgum tengla- söfnum um þessi mál og nægilegt til að drekkja flest- um í fræðsluefni: www.nettingtheevidence.org.uk/ OG LANDLÆKNI ■ Sigurður Helgason THECOCHRANE COLLABORATION" Höfundur starfar að gerð klínískra leiðbeininga hjá Landlæknisembættinu. Læknablaðið 2002/88 357
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.