Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREINAR Sérgreinar læknisfræðinnar Hugleiðingar um stöðu sérgreina á íslensku háskólasjúkrahúsi Sérgreinar eru undirstöðueiningar læknisfræðinnar og byggja á langri hefð sem festist að verulegu leyti í sessi þegar á 19. öld og var lögleidd á íslandi árið 1932. Hver sérgrein hefur mótast um ákveðna þekk- ingu á klínískri læknisfræði og tengjast oft þekk- ingu á sjúkdómum í tilteknu líffærakerfi eða líffæri. Hver sérgrein hefur sínar ákveðnu starfsaðferðir og fagþekkingu sem birtist meðal annars í sérhæfðum fagtímaritum og ráðstefnum og símenntun. Aðrar heilbrigðisstéttir hafa síðan tekið upp þessa skiptingu að verulegu leyti. Flestir íslenskir læknar dvelja erlendis árum saman við sérnám og starfa síðan innan þeirrar greinar eftir að heim er komið. Val á sérgrein er þannig ekki síður mikil ákvörðun fyrir unglækna en val á háskólanámi. Þekking og starf sérgreina skarast og fjöldi og skil- greining sérgreina hafa breyst með tímanum. Reynt hefur verið að staðla kröfur til sérnáms bæði austan hafs og vestan. Bandaríkjamenn hafa búið við staðlað kerfi áratugum saman og á síðustu árum hefur verið unnið að samræmingu sérnáms í læknisfræði í Evrópu. Sérfræðilæknar (þar með talið heimilislæknar að sjálfsögðu) eru sú heilbrigðisstétt sem hefur í krafti menntunar, reynslu og starfa ráðið ferðinni í uppbygg- ingu heilbrigðisþjónustunnar. Framfarir í læknisfræði hér á landi hafa oftast tengst nýrri þekkingu í viðkom- andi sérgrein og meðal annars þess vegna er mikilvægt að tryggja vöxt og viðgang sérgreina hér á landi. Fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar er vaxandi vandamál, meðal annars vegna tilkomu dýrra lyfja, dýrra greiningarrannsókna og hækkandi aldurs þjóð- arinnar. Sérfræðilæknar taka flestar ákvarðanir um svokallaðan breytilegan rekstrarkostnað heilbrigðis- þjónustunnar, það er kostnaður við lyf, rannsóknir og svo framvegis. Læknar verða að axla þá ábyrgð sem fylgir útdeilingu takmarkaðs fjármagns og þetta er best tryggt á Landspítala með því að sérgreinar komi beint að stjórnun sjúkrahússins. Margar sérgreinar eru litlar og byggja tilvist sína á fáum sérfræðilæknum og þá er nýliðun greinarinnar áhyggjuefni og ekki dugar að líta á sérþekkingu sem ótæmandi auðlind. Þannig huga unglæknar vandlega að vinnuumhverfi í sérgreininni hér á landi, áður en þeir velja sér sérgrein. Vegna smæðar er Island sér- staklega viðkvæmt fyrir þessum vanda og því þarf að tryggja að hægt sé að laða unglækna að minni sér- greinum. Vaxandi álag á heilbrigðiskerfið vegna kröfu um aðhald í fjármálum hefur minnkað sveiganleika í rekstri og aukið álag og þannig gert sjúkradeildar minna aðlaðandi fyrir unglækna. Hluti vandans er einnig að almenn viðhorfsbreyting hefur orðið á Vesturlöndum til vinnu utan hefðbundins dagvinnu- tíma og víða er orðið erfiðara að manna sérgreinar sem krefjast mikillar vaktavinnu. Móta þarf stefnu um hvernig tryggja eigi lágmarksmönnun í sérgreinum læknisfræðinnar í náinni framtíð. Þetta verður að gera í góðri samvinnu heilbrigðisyfirvalda og sérfræðilækna. Nýlega hljóp heilbrigðisráðuneytið undir bagga við eflingu sémáms í heimilislækningum og mikilvægt er að ráðuneytið geti komið að sambærilegum lausnum í öðrum sérgreinum. ísland er nú hluti af alþjóðlegu umhverfi og ef ekki er hugað að óskum neytenda mun smám saman myndast tvöfalt kerfi, þar sem þeir sem hafa einkatryggingar geta leitað út fyrir landsteinana eftir heilbrigðisþjónustu. Heyrst hefur að til séu stór- fyrirtæki á Norðurlöndum sem tryggi sumum starfs- mönnum sínum aðgang að læknisþjónustu erlendis, ef hún er ekki í boði í heimalandinu. Skortur á heildar- stefnu eykur einnig líkur á að ákveðnir sjúklingahópar, svo sem eldri einstaklingar, verði afskiptir. Landspítali er háskólasjúkrahús og margir læknar sjúkrahússins eru jafnframt fastráðnir kennarar við Háskóla íslands. Eitt meginhlutverk háskóla og há- skólasjúkrahúss er fagleg umræða. Tryggja verður að þessi umræða fari fram og efla verður tjáningu lækna um fagleg málefni og forðast verður með öllum ráðum að þagga niður gagnrýnisraddir. Grunnhugmynd um háskóla á Vesturlöndum hefur byggist á því að frum- skylda og grunnréttindi háskólakennara séu að tjá sig óhindrað um málefni sinna greina, og hefur til dæmis Þýskaland séð ástæðu til að binda tjáningarfrelsi há- skólakennara í stjórnarskrána. Læknadeildin verður að taka miklu meiri forystu í að skapa umhverfi þekk- ingaröflunar og þekkingarmiðlunar á sjúkrahúsinu með því að stuðla að meiri og opnari umræðu um rekstur sjúkrahússins. Rétt er að hugleiða hvort ekki eigi að taka upp fyrirlestra í læknadeild urn fjármögn- un og fjármálastjórnun í heilbrigðisþjónustunni. Sérgreinar læknisfræðinnar þurfa að hafa fullnægj- andi aðstöðu og áhrif á daglegan rekstur, aðstöðu til kennslu og rannsókna og aðstöðu til að tryggja fram- tíðarmönnun sérgreinarinnar. Núverandi stjórnkerfi hefur lagt megin áherslu á fjármálahliðina, en rödd faglegrar þekkingar og kennslu þarf að heyrast miklu betur. Nauðsynlegt er að háskólinn, og þar með lækna- deild HÍ, eigi miklu meira frumkvæði í að þróa til- lögur að framtíðarskipun heilbrigðismála. Rétt er og nauðsynlegt að sérgreinar á Landspítala hafi beinan aðgang að stjórn sjúkrahússins og jafnframt að lækna- deild hafi sjálfstæða rödd í stjórnkerfi spítalans. Elías Ólafsson Höfundur er prófessor í taugasjúkdómafræði og yfirlæknir taugalækn- ingadeildar Landspítala. Læknablaðið 2005/91 725
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.