Læknablaðið - 15.10.2005, Page 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÍFEYRISMÁL
lífeyrissjóðir á íslandi en um rnitt ár 2005 eru starf-
andi 48 lífeyrissjóðir. í stefnumótun Landssamtaka
lífeyrissjóða frá árinu 2002 spáðu samtökin því að
lífeyrissjóðum muni á næstu árum fækka með sam-
einingum í 20 til 30 sjóði (jafnvel meir) á næstu 10
til 15 árum. Þessi spá virðist ætla að ganga eftir. A
árunurn 2003 og 2004 sameinuðust fjórir lífeyris-
sjóðir. Á þessu ári sameinuðust Lífeyrissjóður
sjómanna og Framsýn í Gildi lífeyrissjóð 1. júní sl.
og Lífeyrissjóður Suðurnesja og Suðurlands þann
1. júlí sl. Nokkrir aðrir lífeyrissjóðir stefna að sam-
einingu.
• Samvinnulífeyrissjóðurinn og Lífiðn hafa
undirritað viljayfirlýsingu urn sameiningu
sjóðanna.
• Lífeyrissjóður Suðurlands og Lífeyrissjóður
Vesturlands eru í viðræðum.
F)ölgun *)ó<5ráUsga - Iraustarl ajótfur
6000
5000
4000
3000
2000
■ Sameinaóur
ijódur
Fjöldi virkra sjódfélaga í Lífeyrissjódi lækna
er um 1000. Nýr sameinadur sjóduryrdi
med 5000 virka sjódfélaga í samlryggingar-
sjódi eda tæplega fimm sinnum stærri. Med
fjölgun sjódfélaga eykst hæfi sjódsins til ad
mæta áföllum.
2% í séreignarsjód
Læknar greiddu ádur 11% lágmarksidgjald f
samtryggingarsjód en í nýjum samtryggingar-
sjódi er idgjaldid 10% af launum. Af því
greidast 2% af launum í séreignarsjód.
Verði þessar sameiningar að veruleika auk sam-
einingar Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyris-
sjóðsins fækkar lífeyrissjóðum um sex á einu ári.
Sameining lífeyrissjóða er ekkert séríslenskt fyrir-
bæri. í Sviss, sem er ein þeirra þjóða sem standa
hvað best í lífeyrismálum, eru til dæmis starfandi
um 11 þúsund lífeyrissjóðir en þeir voru um 17
þúsund árið 1980.
Áunnin réttindi verða óbreytt, vægi séreign-
arsjóðs eykst í framtíðinni
Verði sameiningin samþykkt munu áunnin réttindi
í Lífeyrissjóði lækna haldast óbreytt en læknar
munu ávinna sér réttindi í sameinuðum sjóði frá 1.
janúar 2006.
Lágmarksiðgjald í sameinuðum lífeyrissjóði
verður 10% af launum og skiptist þannig að 2%
greiðast í séreignarsjóð og 8% í samtryggingarsjóð.
Lágmarksiðgjald í Lífeyrissjóð lækna er hins vegar
11% af launum og greiðist allt í samtryggingarsjóð.
Tilgangurinn með þessari breytingu er að auka
svigrúm sjóðfélaga þegar kemur að töku lífeyris en
kosturinn við séreignarsjóði er að sjóðfélagar hafa
meira val um hvernig þeir fá greiddan lífeyri.
Ávinnsla makalífeyris breytist en læknar geta
tryggt maka fjölskyldulífeyri í staðinn
Helsta breytingin á framtíðarréttindum er að
reglur um makalífeyri breytast. Sameinaður lífeyr-
issjóður mun ekki tryggja ævilangan makalífeyri
eins og verið hefur í Lífeyrissjóði lækna. Á síðustu
árum og áratugum hafa flestir lífeyrissjóðir breytt
makalífeyrisréttindum úr ævilöngum lífeyri í tíma-
bundinn. Með því að breyta makalífeyrisréttindum
lækna er hægt að auka elli- og örorkuréttindi.
Til að hjálpa sjóðfé-
lögum að aðlagast þess-
um breytingum verður
keypt hóplíftrygging í
10 ár fyrir virka sjóðfé-
laga og nemur fjárhæð
líftryggingabóta verð-
mæti skuldbindingar
vegna framreiknaðra
réttinda hvers og eins
eftir skatta. Til viðbótar
verður læknum gefinn
kostur á að hluta af eft-
irlaunaréttindum verði
varið til
1) að tryggja maka fjöl-
skyldulífeyri (ein-
greiðslu) ef sjóðfélagi fellur frá fyrir 67 ára
aldur. Fjárhæðin lækkar með aldrinum þar sem
séreignarsjóður sem erfist við fráfall byggist
upp á móti.
2) að greiða í séreignarsjóð (sinn eða maka) allt að
20% af eftirlaunaréttindum.
Með þessum viðbótaraðgerðum geta læknar
gert maka jafnvel settan ef sjóðfélagi fellur frá
eins og þeir hefðu verið ef lífeyrissjóðurinn tryggði
áfram ævilangan makalífeyri.
Ellilifeyrir hækkar
20
SO 40 50 60
Aldur sjódfélaga
Myndin sýnir hvernig ellilífeyrisréttindi lækna
breytast vid greiðslu idgjalda í sameinadan
sjód. Réttindin aukast mest hjá yngsta hópnum
en ávinningurinn fer svo lækkandi eftir því
sem skemmra er til eftirlaunaaldurs.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Lífeyr-
issjóðs lækna www.llaekna.is Þar er meðal annars
hægt að lesa tillögu um samþykktir fyrir sameinað-
an lífeyrissjóð og geta sjóðfélagar skoðað hvaða
áhrif sameiningin hefur á þeirra lífeyrisréttindi
með því að skrá sig inn á læstan vef.
Læknablaðið 2005/91 759