Læknablaðið - 15.10.2005, Page 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNING / NÁMSKEIÐ
ln memoriam
Sigurjón Jóhannsson
Fæddur 12. ágúst 1933 - Dáinn 18. ágúst 2005
Snemma árs 1976 ákváðu forráðamenn Lækna-
blaðsins að leyfa ráðningu blaðamanns í hlutastarf
við blaðið. Ég leitaði þá til gamals skólabróður
míns, Sigurjóns Jóhannssonar, sem ég vissi að
kunni til verka við frágang blaða og fékk hann til
starfa. Við þá ráðningu skipti ekki minna máli að
Sigurjón var vel að sér um sálarlíf prentara.
Samstarfið við Sigurjón var farsælt og það var
eftirsjá að honum þegar hann flutti til Noregs fjór-
um árum seinna. Þangað fylgdi hann konu sinni,
Ernu Þorleifsdóttur læknaritara, sem var á leið í
framhaldsnám í félagsráðgjöf.
Sigurjón var fljótlega ráðinn sem kennari við
norska blaðamannaháskólann vegna þekkingar
hans á blaðamennsku og vinnslu blaða, þótt hann
hefði ekki háskólapróf upp á vasann. Þar kom sér
vel listfengi hans enda var hann fær ljósmyndari
að auki. Þegar heim kom tók hann þátl í að hleypa
af stokkunum upplýsinga- og fjölmiðlabraut við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem hann starf-
aði fram að eftirlaunaaldri.
Um leið og ég þakka Sigurjóni samfylgdina og
samstarfið vil ég ítreka það sem ég hef áður sagt að
velgengni Læknablaðsins hefur æ síðan hann kom
til starfa byggst á því að blaðið hefur notið þeirrar
gæfu að hafa góða blaðamenn í starfi.
Ég votta börnum Sigurjóns og eftirlifandi sam-
býliskonu hans, Ingibjörgu Þórarinsdóttur, samúð
mína.
Örn Bjarnason
Við þessa kveðju Arnar Bjarnasonar vil ég bæta
örfáum orðum. Um það leyti sem Sigurjón réðst
til starfa á Læknablaðinu var hans aðalstarfsvett-
vangur á Þjóðviljanum. Þar kynntist ég honum
þegar ég hóf störf sem blaðamaður í ársbyrjun
1973. Ég er ekki frekar en Sigurjón með langa
menntun að baki en naut þeirra forréttinda að
geta leitað til reyndra blaðamanna sem leiddu mig
fyrstu sporin í faginu.
Meðal þeirra sem reyndust mér best á þessum
tíma var Sigurjón Jóhannsson. Það kom mér ekki á
óvart að hann skyldi helga sig kennslu síðari hluta
starfsævi sinnar því honum var í blóð borið að
segja ungu fólki til og kenna því réttu vinnubrögð-
in. Okkur varð vel til vina og þó við sæjumst ekki
reglulega voru fundir okkar alltaf ánægjulegir. Að
kynnum okkar bý ég enn og vil þakka fyrir mig.
Þröstur Haraldsson
V
AfVf
ENDURMENNTUN
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Bráðalækningar utan sjúkrahúsa
í samstarfi við slysa- og bráðadeild Landspítala háskólasjúkrahúss og
Fræðslustofnun lækna. Ætlað starfandi læknum. Hámarksfjöldi þátt-
takenda er 24.
Markmið námskeiðsins er að þjálfa lækna í að bregðast við vandamál-
um sjúklinga á vettvangi utan sjúkrahúsa með þeim búnaði sem er í
fullbúnum sjúkrabíl. Allir sem koma að kennslu á námskeiðinu hafa
umtalsverða reynslu af vettvangsstörfum. í fyrirlestrum er fjallað um:
vinnuaðstæður utan sjúkrahúsa og öryggi á vettvangi, störf sjúkra-
flutningamanna og neyðarvarða, ábyrgð og eftirlitshlutverk lækna með
þeim störfum, bráðalyf og bráð sjúkdómseinkenni, kynntir vinnuferlar
endurlífgunar, fæðingarog kvensjúkdómar, bráðveik börn og endurlífgun
barna, áverkar aldraðra, áverkaferli, hópslys. Helmingur námskeiðsins
felst í verklegum æfingum í endurlífgun, sérhæfðum öndunarvegi,
áverkamati, skorðun á hrygg og spelkun, hópslysaviðbúnaði, heimsókn
á Neyðarlínu og fleira. Verknám á neyðarbíl (val). Á síðasta degi fer hluti
verklegra æfinga fram utandyra hvernig sem viðrar. Fólk klæði sig í
samræmi við veður.
Umsjón/kennarar: Hjalti Már Björnsson læknir á slysa- og bráðadeild
LSH, Jón Baldursson yfirlæknir á slysa- og bráðadeild LSH, Kristín
Sigurðardóttir læknir á slysa- og bráðadeild LSH, og Viðar Magnússon
læknir á slysa- og bráðadeild LSH.
Tími: 25.-28. okt. 2005, kl. 8:30 -16:30.
Verð: 55.000 kr.
Nánari upplýsingar og skráning á www.endurmenntun.is
Læknablaðið 2005/91 779