Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2005, Page 67

Læknablaðið - 15.10.2005, Page 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 62 Af eldra fólki og ungu hjá lækninum Á guðlegum stofugangi Tveir læknar, annar þeirra yfirlæknir og hinn deild- arlæknir, gengu stofugang ásamt hjúkrunarfræð- ingi. Eldri kona sem var ekki með alla hluti á hreinu lá á deildinni. Þegar þrenningin gekk inn á stofuna og yfirlæknirinn gekk í átt að rúmi gömlu konunnar reisti hún sig upp til hálfs, rétti hend- urnar á móti honum og sagði: „Guð minn góður.“ Hjúkrunarfræðingurinn sem hafði áratugareynslu í samskiptum við sjúklinga og lækna, sneri sér að deildarlækninum og stundi: „Þetta var nú akkúrat það sem ég þurfti að heyra, sjúklingur að láta ykkur fá á tilfinninguna að þið séuð guðir.“ Með maska í skoðun heil eilífð hrópaði einn hjúkrunarfræðingurinn sem stóð álengdar: „VILTU LESA UPPHÁTTT Sjúklingurinn varð hálf vandræðalegur og sagði: „Eg sé alla stafina en get ekki borið fram orðin.“ Lítil fegurð Læknirinn var að fara að skoða fjögurra ára dömu og lagði sig í líma við að útskýra fyrir stúlkunni hvað hann ætlaði að gera. Hún virtist hin áhuga- samasta og horfði stíft framan í lækninn á meðan hann talaði. Þegar hún var beðin um að leggjast út af á skoðunarbekkinn sagði sú stutta: „Þú ert með ljótar tennur." Bjarni Jónasson bjartú.jonasson @bg. is Á kvennadeild nokkurri þar sem starfsfólk var of fátt miðað við verkefni og asinn oft á tíðum ansi mikill var beðið eftir sérfræðingi beint úr aðgerð á skurðstofunni til að skoða móðurlífið í eldri frú sem lá á legudeildinni. Loksins birtist kvensjúk- dómalæknirinn með höfuðfat og maska. Hann gekk beint að verki en láðist að kynna sig þannig að gamla konan heyrði. Að skoðun lokinni hvarf læknirinn á braut og hjúkrunarfræðingur varð eftir hjá konunni sem virtist nokkuð ráðvillt og undrandi þegar hún spurði: „Hver var þessi grímu- klæddi maður?“ Aldrei á klósettið Læknirinn spurði eldri mann hve oft hann færi á klósettið á nóttunni. „Aldrei,“ svaraði maðurinn, „ég er með þvagflösku undir rúminu mínu.“ Sá óskýrt Gömul kona trúði heimilislækni sínum fyrir því að hún hefði nokkru áður séð ofsjónir. „Hvað sástu?“ spurði læknirinn. „Ég er ekki alveg viss af því ég var ekki með gleraugun,“ svaraði konan. Sjónpróf Sjúklingur var lagður inn á gæsludeild vegna einkenna sem bentu til þess að heilinn starfaði ekki sem skyldi. Taugasérfræðingurinn sem var kallaður til bað aðstoðarlækni um að framkvæma sjónpróf sem hluta af þeim rannsóknum sem þurfti að gera. Sjúklingurinn stóð með tærnar við línu á gólfinu, huldi annað augað og starði á sjónprófs- töfluna með bókstöfunum. Svo leið tíminn og eftir nokkuð langa þögn sem sumum fannst vera Útivinnandi Læknanemi var að skrá félagssögu konu um sex- tugt og spurði: „Vinnur þú utan heimilis?“ „Já,“ svaraði konan, „ég slæ grasflötina og hirði garðinn minn.“ Vírus Læknirinn hafði lokið skoðun á níu ára gutta með hita, hósta og hálssærindi. „Hvað er að mér?“ spurði strákurinn. „Þú ert með vírus,“ svaraði læknirinn. Strákurinn varð steinhissa og spurði: „Vírus eins og tölvurnar fá?“ Sýnishorn Fjórburapabbi kom með eitt barnanna til læknis vegna veikinda. Að skoðun lokinni spurði læknir- inn: „Hvað er svo að frétta af hinum börnunum?“ „Þau eru öll með sama hóstann, en ég ákvað að koma bara með eitt sýnishorn.“ Stórslysaæfing Það var stórslysaæfing og „slasað“ fólk var flutt í hrönnum á háskólasjúkrahúsið. Þar á meðal voru tveir „sjúklingar" sem voru fluttir á skurðstofu- gang þar sem þeir lágu hreyfingarlausir og útataðir rauðum lit. Nokkru síðar lauk æfingunni og hinir „slösuðu“ risu á fætur og gengu í rólegheitum út af skurðstofuganginum. Næsta dag trúði eldri kona sem hafði verið í aðgerð deginum áður stöllu sinni í næsta rúmi fyrir því að hún hafi verið að vakna upp eftir aðgerðina þegar hún hafi séð tvo sjúklinga rétt hjá henni deyja og fara til himna. Bjarni er heimilislæknir í Garðabæ. Læknablaðið 2005/91 783

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.