Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 10

Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 10
É g flosnaði snemma upp úr skóla sökum námserfiðleika sem síðar kom í ljós að hefðu verið vegna lesblindu en á þeim tíma var lítið um greiningar eins og í dag. Mér gekk illa í Árbæjarskóla og upplifði þar einelti enda gekk mér illa í námi og flokkaðist sem „tossi,“ segir Margrét Gígja Rafns- dóttir sem Fræðslumiðstöð atvinnu- lífsins hefur valið sem fyrirmynd í námi fullorðinna árið 2014, ásamt tveimur öðrum sem hafa farið í gegnum framhaldsfræðslukerfið. „Ég var flutt yfir í Hagaskóla í sér- stakan bekk sem var fyrir „tossa“. Eftir grunnskólann fór ég að vinna hjá Goða í kjötvinnslunni og Össuri í pökkunardeildinni. Ég var svo um 25 ára þegar ég gifti mig manni sem bjó svo vel að ég gerðist heimavinn- andi húsmóðir enda eignuðumst við saman tvö yndisleg börn og nóg að gera á heimilinu.“ Fræðslumiðstöðin hefur frá árinu 2006, í tengslum við ársfund sinn, veitt verðlaun þeim einstaklingum sem hafa sýnt góðan námsárangur, frumkvæði og kjark og þar að auki náð að yfirstíga ýmis konar hindr- anir í sínu námi, eins og til dæm- is námserfiðleika. Þessir þættir eiga svo sannarlega við um Mar- gréti Gígju sem stundaði nám sitt meðal annars hjá Framvegis – mið- stöð símenntunar, tókst að sigrast á erfiðum hindrunum í náminu og sannarlega stendur undir nafni sem fyrirmynd í námi fullorðinna. Fann sjálfa sig „Ég var sátt við mitt hlutskipti og hugsaði ekki um að fara aftur í nám eða að vinna. Maðurinn minn sá um heimilisbókhaldið og alls konar hluti sem ég síðar uppgötvaði að ég þyrfti líka að kunna og geta. Við skildum fyrir nokkrum árum og hann flutti til Noregs. Ég stóð uppi sem einstæð tveggja barna móðir, án menntunar og starfsreynslu. Það var sjokk að upplifa sig svona berskjaldaða því það var erfitt að fá vinnu og ég fór því á atvinnuleysis- bætur. Það var þá sem ég ákvað að ég yrði að mennta mig, bæði til að tryggja mér og börnunum mínum ákveðið öryggi og til þess að geta aðstoðað þau á skólagöngu þeirra eins og eðlilegt þykir en það getur reynst lesblindum einstaklingi tals- vert erfitt. Ég fór því í Lesblindu- setrið í Mosfellsbæ og fékk aðstoð og lærði margar góðar aðferðir við nám sem ég þekkti ekki áður. Síðan lá leiðin í Grunnmenntaskólann hjá Mími sem er eins konar undirbún- ingur fyrir frekara nám. Ég var að nálgast fertugt þegar ég fór svo í starfsgreiningu hjá náms- og starfsráðgjafa hjá Vinnumála- stofnun og uppgötvaði fyrst hvað mig raunverulega langaði til að verða þegar ég yrði „stór“. Niður- staðan kom mér á óvart því hingað til hafði ég haldið að hárgreiðsla eða blómaskreytingar væru störf fyrir mig. Ég ákvað að fylgja þessari nið- urstöðu eftir og sótti stuðningsfull- trúanám hjá Framvegis – miðstöð símenntunar í Skeifunni. Það var þá fyrst sem ég fann sjálfa mig,“ segir hún. Fékk draumastarfið „Starfsfólkið sem tók á móti mér var yndislegt og námsumhverf- ið hlýlegt og ólíkt hefðbundinni skólabyggingu. Til dæmis er ekki eins vítt til veggja eða snagar fyrir framan kennslustofurnar og svo er kaffirými og spjallhorn því félags- lífið skiptir auðvitað miklu máli. Ég hélt mig til hlés fyrstu skóladagana og skreið ég með veggjum, ef svo má að orði komast, en þegar leið á námið öðlaðist ég sjálfstraust og hreinlega elskaði námið. Ég hélt ræðu við útskriftina og tók við verðlaunum fyrir framúrskarandi námsárangur.“ „Mig hafði lengi langað að starfa á leikskólanum Rauðhóli sem er í hverfinu sem ég bý í og því þægi- legt með tilliti til barnanna minna tveggja. Ég hafði prófað nokkrum sinnum að sækja um starf þar en ekki fengið en eftir námið hjá Fram- vegis þá mætti ég hnarreist á leik- skólann og sótti um draumastöðu sem ég fékk. Ég er því sannfærð um að námið hafi gert mér gott og opn- að ákveðnar leiðir í atvinnulífinu. Ég hef öðlast sterkari sjálfsmynd og fengið aukið sjálfstraust.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Nám margrÉt gígja rafNsdóttir verðlauNuð hjá fræðslumiðstöð atviNNulífsiNs Fyrirmynd eftir að fara í nám á fertugsaldri Margrét Gígja Rafnsdóttir flosnaði snemma upp úr skóla vegna lesblindu. Fyrir fimm árum stóð hún uppi nýskilin við eiginmann sinn, ómenntuð og atvinnulaus. Hún skráði sig í nám og starfar nú á leikskólanum Rauðhóli. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur valið Margréti sem fyrirmynd í námi fullorðinna árið 2014. Margrét Gígja Rafnsdóttir segir börnin sín hafa verið sér hvatning í því að mennta sig á fertugsaldri og segir þau afar stolt af sér. Ljósmynd/Hari 15 þúsund nemendur á ári „Í framhaldsfræðslunni er gengið út frá því að fullorðnir, sem ekki hafa lokið formlegu námi á fram- haldsskólastiginu, fái annað tæki- færi til náms og eigi jafnframt möguleika á að fá fyrra nám, nám- skeið og hvers konar lífs- og starfs- reynslu metna til styttingar á námi til fullra námsloka. Um er að ræða einstaklinga sem ekki hafa lokið framhaldsnámi, þá sem ekki hafa hafið slíkt nám, sem og brottfalls- nemendur,“ segir Sólveig Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framvegis – miðstöð símennt- unar. Framvegis – miðstöð símennt- unar er ein þeirra 11 símenntunar- miðstöðva á Íslandi sem hafa meðal annars að leiðarljósi að veita fólki annað tækifæri til náms. Starf mið- stöðvanna er umfangsmikið en um 15 þúsund nemendur fara í gegnum það á hverju ári. „Bakgrunnur og forsendur fólks eru margvíslegar. Sumir hafi horfið frá skóla strax eða stuttu eftir að grunnskólanámi lauk og hugnaðist ekki að koma inn í kerfið aftur eða telji sig vanbúna til þess. Þar geta legið alls konar ástæður að baki, félagslegar eða námslegar, til dæmis námsörðug- leikar vegna lesblindu, eins og í til- felli Margrétar Gígju. Fólkið á það sammerkt að vanta mikilvægan þátt í undirbúning sinn fyrir lífið, það er þann þátt sem framhalds- skólinn veitir með almennu námi eða starfsnámi.“ Sólveig Hildur Björns- dóttir, framkvæmda- stjóri hjá Framvegis – miðstöð símenntunar. www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Optibac Probiotics One week flat 20% afsláttur Gildir til 19. desember. Gott að grípa til þegar við leyfum okkur meira. Hjálpar til við niðurbrot á fæðunni. Eyðir lofti og þembu úr meltingunni. www.icewear.is ÞINGHOLTSSTRÆTI, REYKJAVÍK - HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI LOÐSKINN STÓRLÆKKAÐ VERÐ TIL JÓLA! DÖGG Trefill úr fataefni og kanínuskinni kr. 12.700 EDDA Sjal úr kanínuskinni kr. 10.200 6.420Tilboð 9.880Tilboð Handprjónasamband Íslands Skólavörðustíg 19 s. 552-1890 www.handknit.is Handprjónaðar jólagjar. Uppskriftir, lopi og prjónar. 10 fréttir Helgin 5.-7. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.