Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Side 21

Fréttatíminn - 05.12.2014, Side 21
Jólin 2014 Hágæða vörur og fyrsta flokks þjónusta. Jólabæklingurinn er kominn út. Sjá nánar á sminor.is. Fullt af glæsilegum vörum á jólaverði. BOSCH Töfrasproti MSM 67170 Kraftmikill, 750 W. Hljóðlátur og laus við titring. Fullt verð: 17.900 kr. Jólaverð: 13.900 kr. SIEMENS Ryksuga VSZ 3A222 Orkuflokkkur A. Parkett og flísar, flokkur C. Teppi, flokkur D. Útblástur A. Hljóð: 79 dB. Fullt verð: 29.900 kr. Jólaverð: 23.900 kr. Rommelsbacher Vöfflujárn WA 1000/E Glæsilegt 1000 W vöfflujárn úr burstuðu stáli frá þýska framleiðandanum Rommelsbacher. Viðloðunarfrítt yfirborð. Fullt verð: 14.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Lux Hangandi ljós 15308-29 Fullt verð: 21.900 kr. Jólaverð: 15.900 kr. BOSCH Hárblásari PHD 5767 2000 W. Quattro-Ion tækni: Afrafmagnar hárið, gerir það mýkra og veitir því gljáa. Fullt verð: 10.500 kr. Jólaverð: 7.900 kr. Gómsæ og glútenlaust Bæði kyn eru SAMMÁLA um að aukin þátttaka kvenna leiði til: Meiri umræðu um ólík sjónarhorn á stjórnarfundum. Betri fyrirtækjabrags/menningar. Jákvæðari ímyndar fyrirtækisins. Bæði kyn eru ÓSAMMÁLA því að fjölgun kvenna leiði til: Fjölgunar óformlegra funda sumra stjórnarmanna. Aukins ágreinings á stjórnarfundum. Minna trausts milli stjórnarmanna. Fáar nýjar konur í stjórnum fyrirtækja Aðeins 20% kvenna sem komu inn í stjórnir, eftir að lög um kynjakvóta tóku gildi, höfðu ekki fyrri reynslu af setu í stjór- num fyrirtækja. Alla jafna eru farnar óformlegar leiðir við að velja inn nýja stjórnarmenn og skipta tengsl þar miklu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á stjórnum fyrirtækja í kjölfar lagasetningar um kynjakvóta. Rannsakendur gagnrýna að enginn gagnagrunnur er til yfir stjórnarmenn fyrir og eftir setningu laganna. V alferlið við val á nýjum stjórnarmanni var alla jafna ekki formlegt. Þann- ig var greining á samsetningu stjórnar út frá hlutverki og þörfum fyrirtækisins ekki nægjanlega ríkjandi,“ segir dr. Auður Arna Arnardóttir, lektor við viðskipta- fræðideild Háskólans í Reykjavík, sem ásamt dr. Þresti Olaf Sigur- jónssyni, dósent við deildina, rannsakaði hvernig fyrirtæki hafa unnið að breytingum á stjórnar- skipan í kjölfar setningar laga um kynjakvóta í stjórnun fyrirtækja. Gengum lengra en Norðmenn Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar er nokkurt inn- flæði af nýjum konum í stjórnir í kjölfar lagasetningar, en 20% þeirra kvenna sem sitja í stjór- num nú hafa minna en þriggja ára reynslu, og því hefur fremur hafi verið leitað til þeirra kvenna sem höfðu þegar reynslu af stjórnar- setu. Auður og Þröstur segja þó að taka þurfi þeim niðurstöðum með Dr. Auður Arna Arnardóttir lektor og dr. Þröstur Olaf Sigurjónsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík, rannsökuðu hvernig fyrirtæki hafa unnið að breytingum á stjórnarskipan í kjölfar setningar laga um kynjakvóta í stjórnun fyrir- tækja. Ljósmynd/Hari þeim fyrirvara að ekki er til neinn gagnagrunnur yfir stjórnarmenn fyrir og eftir setningu laganna og kalla eftir úrbótum frá hinum opinbera. „Löggjafinn hlýtur að sjá mikilvægi þessa til að hægt sé að leggja mat á hvernig til tekst,“ segir Þröstur. Niðurstöður rannsóknar þeirra Auðar og Þrastar voru kynntar á ráðstefnu í gærmorgun, fimmtu- dag, á Grand hótel Reykjavík en þeir sem styrktu rannsóknina eru Kauphöll Íslands, Samtök atvinnu- lífsins og Jafnréttisstofa. Árið 2010 voru samþykkt lög um lágmark 40% hvors kyns í stjór- num millistórra og stærri fyrir- tækja. Lögin tóku strax gildi hjá opinberum hlutafélögum. Hluta- félögum, einkahlutafélögum og samlagshlutafélögum var gefinn aðlögunartími til 1. september 2013. Það þýðir að í dag er rúmt ár frá fullri innleiðingu laganna. Norðmenn voru brautryðjendur á þessi sviði en þeir settu lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja árið 2002 en á Íslandi var gengið enn lengra þar sem lögin gilda fyrir stjórnir allra fyrirtækja með yfir 50 starfsmenn. Vegna þess að enginn gagna- grunnur er til yfir þá sem sitja í stjórnum íslenskra fyrirtækja fóru Auður og Þröstur þá leið að hafa samband við framkvæmdastjóra 300 stærstu fyrirtækj- anna og biðja þá um að koma sér í samband við stjórnarmenn. 260 stjórnarmenn svöruðu spurningalista, þar af 41% konur, en alls dekka þessir 260 einstaklingar 800 stjórnarsæti. Þá voru tekin djúpviðtöl við 11 konur og 11 karla. Nýjar stjórnarkonur hógværari Þegar leitað var eftir konum í stjórn eftir gildistöku laganna var algengast að notast væri við tilvísun frá þriðja aðila, til dæmis lífeyris- sjóðum, því næst kom persónulegt tengslanet og síðan tengsl við fram- kvæmdastjóra. „Þar á eftir kemur sú leið að notast við valnefndir“ segir Auður en samkvæmt mannauðsfræðum myndi sú leið teljast sú faglegasta af þessum fjórum. Fimmta algeng- asta leið nýrra kvenna inn í stjórn var í krafti eigin eignarhlutar. „Svokölluð teymishugsun, þar sem lagt er mat á stjórnina í heild og hvernig einstaklingar innan hennar spila saman, er síður til staðar hjá karlmönnum, stjórn- arformönnum og eldri einstaklingum. Venjan er að lögð sé áhersla á að leggja mat á hvern einstakling frekar en heildina. Það eru þó vísbendingar um að þessi hugsun sé að breytast og sum fyrir- tæki hafa mun form- fastara ferli við val inn í stjórnir,“ segir Auður. Þekking og reynsla af almennri stjór- nun, stefnumótun og fjármálum vega þungt í vali nýrra stjórnarmanna og athygli vekur að nýrri stjórnarkonur, sem setið hafa í stjórn 3 ár eða skemur, vega getu sína og þekkingu á þessum sviðum lægra en nýir karl- kyns stjórnarmenn, og reyndari karl- og kvenkyns stjórnarmenn. „Það góða er hins vegar að það virðist ekki taka meira en 3 ár að jafna út þennan kynjamun.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Teymis- hugsun er síður til staðar hjá karl- mönnum, stjórnarfor- mönnum og eldri ein- staklingum. 12 fréttaskýring Helgin 5.-7. desember 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.