Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Side 59

Fréttatíminn - 05.12.2014, Side 59
Á hugi Eggerts Þórs Bernharðssonar á viðfangs-efni nýútkominnar bókar, Sveitin í sálinni, vaknaði snemma. „Fyrir allmörgum árum vann ég við að rannsaka og rita sögu Reykjavíkur og sá um tvö bindi af sex í miklum flokki og mitt tímabil var frá 1940 til 1990. Það sem kom mér einna mest á óvart við þá vinnu var að sjá hvað „sveitin“ var enn fyrirferðarmikil í Reykjavík framan af þessum tímabili,“ segir hann. „Mér fannst þetta merkilegt því ég var þarna ungur sagnfræð- ingur að skoða þetta og hafði bara alls ekki áttað mig á því hversu lengi kartöflusvæðin voru víðfeðm og hversu lengi fólk hélt hérna dýr. Reykjavík er byggð að stórum hluta af fólki sem er aðflutt og eignast svo sín börn hér. Þetta fólk flytur með sér ýmsa siði og venjur og mörgum fannst ekkert tiltökumál að vera með tómstundabúskap.“ Ætli fólk hafi þá saknað sveitarinnar? „Já, greinilega, og sumir söknuðu sauðkindarinnar sér- staklega. En svo eru líka Reykjavíkurbændur frá eldri tíð. Áður þurfti t.d. að vera með kýr því þeir sem á annað borð ætluðu sér að drekka mjólk þurftu að nálgast hana í grenndinni því það voru engar samgöngur fyrir daglega neyslu. Þannig að framan af voru forsendur fyrir heil- miklum kúabúskap í bænum og blómaskeið þess búskap- ar var hér fram undir 1940.“ Manstu sjálfur eftir þessum tíma? „Nei, ekki er hægt að segja það. Ég ólst upp í miðbænum en fluttist svo á ellefta ári í Árbæjarhverfi sem þá var að byggjast. Þar náði ég í skottið á Selásnum og þar eimdi nú dálítið eftir af þessum tíma. En ég var hins vegar í skólagörðunum sem strákur.“ Já, það eru einmitt margar myndir af þeim í bókinni. Þeir virðast hafa verið álitnir nauðsynlegur hluti af uppeldi borgarbarna á þessum árum? „Já, maður átti að komast í tengsl við moldina og gróður- mátt jarðar með þátttöku í þeim. Mikilvægt þótti að tengja börnin sem ekki komust í sveit sem best við náttúruna og þetta var ein leiðin. Það var ein af hug- myndunum á bak við garðana á sínum tíma en auðvitað fylgdi garðræktinni líka útivist og félagsskapur. Þarna var líka kennsla og námsferðir. Maður lærði að passa upp á garðinn sinn.“ Og bar skólagarðauppeldið árangur í þínu tilfelli? „Nei, ég get nú ekki sagt það. Ég er mjög lítill ræktunar- maður. Það var ágætt að vera með félögunum í görðun- um á daginn en síðasta sumarið mitt var ég nú búinn að missa áhugann og vildi frekar vera í fótbolta.“ En býlin sem voru hér í borginni, höfðu þau áhrif á það hvernig borgin byggðist upp? „Já, það má alveg halda því fram að arfur sveitasam- félagsins hafi haft sín áhrif á dreifingu byggðarinnar. Bæjaryfirvöldin skipulögðu sjálf stór og víðfeðm garða- svæði og það hefur líka áhrif á dreifingu byggðar. Svo er yfirleitt líka reynt í lengstu lög að ráðast ekki á landið fyrr en það er alveg nauðsynlegt. Enda voru bændur ekkert hrifnir af því að landið væri tekið af þeim undir byggð og þannig dregið úr möguleikum þeirra til bú- skapar, en það varð óhjákvæmilegt þegar íbúum fór að stórfjölga.“ Í bókinni talar þú um barnasprenginguna frá 1942 til 1964, en fjölbýlishúsin fóru að rísa fyrir alvöru á þeim tíma, einkum á síðari hluta hans. „Já, áratugum saman var allt of lítið framboð af hús- næði í Reykjavík og margir flytja t.d. í braggana. Leysa þarf húsnæðisvandann og það er ráðist í byggingu fjöl- býlishúsa í röðum. Bærinn þurfti að leysa til sín land og þá hverfa möguleikar til umfangsmikils búskapar.“ Er það þá sem stóru kartöflugarðarnir hverfa? „Á sínum tíma voru þessir stóru garðar ákveðin viðbrögð Þykir afskaplega vænt um Reykjavík Í sinni fyrstu bók fjallaði Eggert Þór Bern- harðsson um braggahverfin í Reykjavík. Nú hefur hann gefið út aðra bók um horfin heim Reykjavíkur, Sveitina í sálinni, sem fjallar í máli og mörgum fallegum myndum um tímana þegar víðfeðmir grænmetisgarðar og húsdýr settu svip sinn á borgarlandslagið. Eggert segist sjálfur vera mikið borgarbarn og að hann sé nú þegar farinn að huga að sinni þriðju bók um borgina sem honum þykir svo vænt um. bæjaryfirvalda við kreppunni á fjórða áratugnum en líka var verið að hugsa um að fólk gæti ræktað til þess að selja. Þetta var ákveðin atvinnusköpun í kreppunni en þegar kreppan er búin og styrjöldin skollin á fara stakir garðar minnkandi á nýjan leik en garðasvæðunum í bænum fer hins vegar mjög fjölgandi, slíkur var ræktunaráhuginn. Í tímans rás hopa garðasvæðin síðan undan byggðinni. Fyrst voru þeir í Vatnsmýrinni og vestur í bæ, svo koma Kringlumýrargarðarnir en þeir eru lagðir niður 1959 vegna vega- og byggingarframkvæmda. Svo á sjöunda áratugnum eru garðasvæðin meira og minna komin austur fyrir Elliðaár. Svo enda garðarnir á Korpúlfsstöðum og í Skammadal.“ Nú verður sífellt vinsælla að rækta garðinn sinn í Reykjavík, allt á að vera sjálfbært og hænur komnar í suma garða. Er komin sveitarómantík í borgarbúa? „Já, það er eitthvað í gangi, það er alveg rétt. Skólagarðarnir voru mjög vinsælir framan af en svo fór að draga úr áhug- anum og árið 2011 voru þeir lagðir niður sem skólagarðar og nafninu breytt í fjöl- skyldugarða. Þá hafði orðið hér banka- hrun og efnahagserfiðleikar og eftir það varð algjör sprenging í ásókn í matjurta- garða fyrir almenning, þar á meðal fjöl- skyldugarðana. Svo er maður að heyra að það sé mikill áhugi á náttúrulegri ræktun og hænsnaumræðan er komin af stað. Ég veit ekki hvort við getum kallað það rómantík en eitthvað er í gangi.“ En eftir að hafa grúskað svona mikið í fortíð Reykjavíkur hvernig sérðu þá fram- tíðina fyrir þér? „Það er nú góð spurning. Ég er bara alls ekkert góður í framtíðarspám. En ég ætla að snúa út úr fyrir þér og segja þér hvað ég er að hugsa um að gera í fram- tíðinni. Nú er ég búinn að gera þessar tvær bækur sem eru hálfgerðar systur, um horfinn heim í Reykjavík, braggalíf á árunum 1940 til 1970 og þessa bók um búskapinn í bænum, og núna langar mig dálítið í þá þriðju. Hún yrði ekki beinlínis um heim sem er horfinn heldur um hinn nýja Reykvíking, sem fæðist inn í þétt- býlið og vex með borgarþróuninni. Ég hef mikinn áhuga á að skoða þá sögu. En hvað varðar borgina sjálfa þá þykir mér bara afskaplega vænt um hana.“ Það er mikið af skemmtilegum myndum í bókinni og má segja að það sé næstum jafn mikið af myndum og texta. Hvaðan koma allar þessar myndir? „Alls eru rúmlega 550 myndir í bók- inni, fjölmargar hafa aldrei birst áður. Flestar eru úr opinberum söfnum; Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Ljós- myndasafni Íslands í Þjóðminjasafni, Kvikmyndasafni Íslands og Borgar- skjalasafni Reykjavíkur. Síðan koma ófáar ljósmyndir í bókinni úr einkasöfn- um, bæði frá fyrirtækjum og stofnun- um sem og frá áhugaljósmyndurum og úr einkasöfnum afkomenda þeirra sem stunduðu búskap og ræktun í Reykja- vík á þessu tímabili.“ Þér finnst myndir greinilega mikilvægar? „Já, sem sagnfræðingur hef ég alltaf lagt mikið upp úr myndefni enda verður sagan á ýmsan hátt „raunverulegri“ með notkun myndefnis og ein mynd getur greint betur frá aðstæðum eða atburðum en löng lýsing í rituðu máli.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Kartöflubeð í röðum í húsgörðum milli Kárastígs og Frakkastígs. Eggert Þór á heimili sínu við Bárugötu. Hann er þegar kominn með hugmynd að sinni þriðju bók um Reykjavík. Ljósmynd/Hari Geir Gunnar Gunnlaugsson bóndi rak lengi kúabú í Eskihlíð. Kýrnar voru reknar eftir Rauðarárstíg og voru á beit við Norðurmýrina. Hænum gefið á Klömbrum skömmu eftir seinna stríð. Börn höfðu mikla ánægju af því að fóðra hænurnar. Á stríðsár- unum mátti enn sjá hestvagna á ferð í miðbænum við mjólkur- flutninga til neytenda. Hér er mjólkur- póstur frá Eskihlíð á leið á Hótel Borg. 50 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.