Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 85

Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 85
 www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu V V V V V „Fantaflott og gott og vandað dæmi þess að íslenskar barnabækur eigi framtíðina fyrir sér.“ Helga Birgisdóttir / DV V V V V „... ískrandi fyndin og ferlega frumleg ...“ Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið V V V V „Hress og bráðfyndin saga, þó með drungalegu yfirbragði.“ Halla Þórlaug Óskarsdóttir / Fréttablaðið „... Þórarni tekst að fjalla um viðfangsefni sín með slíkum húmor að lesandinn upplifir aldrei að verið sé að lesa yfir sér ...“ Elín Björk Jóhannsdóttir / Starafugl Allir elska manninn sem hataði ... J ólahátíðin er í hugum margra alls ekki hátíð ljóss og friðar heldur tími streitu, þreytu og kvíða. Það þarf að skúra, skrúbba og bóna, kaupa vel valdar jólagjaf- ir, senda jólakort, baka smákökur, kaupa jólaföt, mæta í fjölskylduboð og svo auðvitað snara fram minnst þríréttuðu sem oftast. Það er ým- islegt sem hægt er að gera til að minnka líkur á að streitan nái tökum á manni og hér eru nokkur góð ráð. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Heilsa Jólin geta verið annasamur tími Haltu geðheilsunni um jólin Skipuleggðu þig Það er ávísun á streitu að bíða með jólaundirbúninginn fram á síðustu stundu. Það getur sparað bæði tíma og peninga að skipuleggja sig. Búðu til lista yfir allt sem þú þarft að gera, hverjum þú gefur jólagjafir og hvaða matvörur þú átt eftir að kaupa. Með góðu skipulagi er líklegra að þú haldir þig innan þeirra marka sem þú hefur sett þér fjárhags- lega og minnkar líkur á að nokkuð gleymist. Það vill enginn lenda í því á aðfangadagskvöld að eiga ekki rjóma í sósuna. Neyttu áfengis í hófi Hjá sumum er það hluti af hátíðar- haldi yfir jól og áramót er að skála í góðra vina hópi. Þó þér finnist þú slaka betur á eftir að fá þér eitt eða tvö glös er mikilvægt að muna að hafa hemil á sér yfir hátíðina enda getur áfengisneysla í óhófi aukið líkur á óviðeigandi hegðun og jafnvel árásargirni. Borðaðu vel Jólahátíðin er hjá mörgum orðin samnefnari yfir óhóf í mat, jafnvel svo að fólki finnst það þurfa að fara í sérstakt heilsu- ræktarátak í janúar. Reyndu að huga að mataræðinu yfir jólin þannig að þú borðir líka grænmeti, ávexti, flókin kolvetni og hollar fitusýrur þannig að þú fáir alla þá næringu sem þú þarft á að halda og til að vega upp á móti óhollustunni. Gott mataræði og næring minnkar líka líkur á andlegri vanlíðan yfir dimmustu mánuðina. Slakaðu á Jólin eru afar annasamur tími og streituvaldandi fyrir suma. Þeim sem glíma við streitu í sínu daglega lífi fyrir getur fundist álagið sem bætist við fyrir jólin vera óbærilegt. Hugleiðsla og jóga eru sérlega vel fallin til að hjálpa til við slökun og mikilvægt er að taka sinn tíma til að slaka á árið um kring. Gerðu góðverk Að hjálpa öðrum veitir mikla vellíðan, það kætir lund, minnkar streitu og getur gert mikið fyrir sjálfsmyndina. Fjöldi verkefna er í gangi hver jól þar sem óskað er eftir sjálfboðaliðum, ýmsar safnanir eru í gangi þar sem óskað er eftir fatnaði, gjöfum eða frjálsum fjárframlögum. Þá er ótalinn sá varningur, til að mynda jólakort og merkimiðar, sem seldur er til styrktar ýmsu góðu málefni. Fáðu nægan svefn Þó mörg okkar fái auka frídaga yfir jólahátíðina þýðir það ekki endilega að við fáum meiri og betri svefn því svefnmynstrið ruglast gjarnan þegar nóg er um veisluhöld og vina- heimsóknir. Góður svefn er lykilatriði þegar kemur að andlegu jafnvægi og vellíðan. 76 heilsa Helgin 5.-7. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.