Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 3
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Líflegar umræður um
rafræna sjúkraskrá
Fjölsóttur fundur Læknafélags Reykjavíkur var haldinn í Hlíðasmára 8 þann 20. maí. Fundarefni
var rafræn sjúkraskrá og voru fimm framsögumenn, Sigurður Guðmundsson, Torfi Magnússon,
María Heimisdóttir, Kristján G. Guðmundsson og Runólfur Pálsson. Fundarstjóri var Sigurður
Böðvarsson formaður LR. Á fundinum voru samþykkt drög að ályktun til stjómvalda um rafræna
sjúkraskrá en niðurstaðan varð sú að vísa endanlegri gerð ályktunarinnar til stjórnar félagsins
sem síðan bæri hana upp á aðalfundi félagsins þann 27. maí.
LISTAMAÐUR MANAÐARINS
Myndlistarmaöurinn Rúrí (f. 1951) hefur á löngum ferli
þróað nálgun og fagurfræði sem sækir um margt I
heimildasöfnun og skrásetningu. Viðfangsefni hennar eru
gjarnan yfirþyrmandi fyrirbæri sem eru mannlegum skilningi
ofviða, ýmist eitthvað I náttúrunni, samband manns og
náttúru eða torskilin mannanna
verk. Tökum sem dæmi skúlptúrinn
Regnboga frá 1991 sem margir
kannast við frá Leifsstöð. Þar raðar
hún saman lituðum glerbrotum i
þrivíða heild sem úr fjarska líkist
regnboga. Þá má nefna söfnun
hennar á fossamyndum, þar sem
hún skrásetur fallvötn íslenskrar
náttúru með hiiðsjón af hugsanlegri,
áætlaðri og yfirstandandi virkjun
þeirra. Birtingarmynd þessarar
vinnu hefur verið fjölbreytt og er
kunnasta verkið eflaust framlag
Rúriar til Feneyjatvíæringsins
árið 2003, hið gagnvirka Archive,
Endangered Waters. Þar mátti draga
fram myndir og hljóð ólíkra fossa I
þar til gerðum skjalaskáp. I verkum
slnum sem tengjast fossum beinir
Rúrí myndavélinni inn I miðja iðu
vatnsfallanna og stendur eftir með
brot af óhöndlanlegri heild. Hið
viðamikla verk, Paradís, hvenær?,
frá 1998, samanstendur meðal
annars af spjaldskrá með upplýsingum
um einstaklinga sem urðu fórnarlömb
stríðsátaka I fyrrum Júgóslavíu. Aftur
fer Rúrí þá leið að nálgast einhvers
konar heildarmynd úr skrásetningu brota með það að
leiðarljósi að þaulskoða verði smæstu mögulegu einingar og
raða upp á nýtt til þess að öðlast yfirsýn og skilning á öðru
eins viðfangsefni. Þó að umfjöllunarefni Rúríar séu byggð
á sammannlegum gildum er hún ekki síst pólitísk, I víðum
skilningi þess hugtaks, þegar litið er
til umræddrar fagurfræði sem býður
áhorfandanum að upplifa veruleikann
á nýjum forsendum. Þar liggja
róttækir möguleikar myndlistarinnar.
Rúrí dregur ekki dul á brennandi
áhuga á málefnum líðandi stundar
í sinu nýjasta verki, Tilvistarleg,
frá þessu ári. Enn brýtur hún til
mergjar og setur veruleikann fram í
frumeindum sínum. Á nokkurs konar
málmaltari getur að líta llát sem
innihalda svartolíu, maís, vatn og loft.
Umgjörðin er samsvarandi klínískum
skjalaskápunum í Paradis, hvenær?
sem og Archive, Endangered Waters.
Hér eru saman komnir I jöfnu hlutfalli
þættir sem hafa úrslitaþýðingu fyrir
tilvist mannkyns á jörðu eins og
málum er fyrir komið í dag. Nú er það
undir áhorfendum komið hvers konar
heildarmynd þeir sjá út úr þessum
brotum. Verkið má sjá á sýningu
Rúríar, Sökkvun, í listhúsinu Start Art
á Laugavegi um þessar mundir.
Markús Þór Andrésson
olía (svartolía), maís, vatn, andrúmsloft,
plexigler, ryðfrítt stál
hæð 154 cm, lengd 120 cm, breidd 38 cm
Ljósmynd: Rúrí.
Staðsetning: STARTART.
Aðsetur
Hlíðasrriára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Gutenberg ehf.
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2007/93 439