Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 7
; Jóhannes Björnsson johbj@landspitali.is Jóhannes Björnsson, meinafræðingur á Landspítala og ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins. Editor's Interim Report Jóhannes is Professor and Chairman, Department of Pathology, Landspítali University Hospital, and Editor-in-Chief of The lcelandic Medical Journal. RITSTJÓRNARGREINAR Drög að áfangaskýrslu Um þessar mundir eru þrjú ár frá því að Læknablaðið var skráð á gagnagrunn National Library of Medicine (NLM/Medline) í Banda- ríkjunum. Eins og áður hefur komið fram í þessum dálk- um ábyrgðist ritstjórn Læknablaðsins af þessu til- efni ákveðið vinnulag við meðhöndlun innsendra fræðigreina, það er að segja frumgreina ("original articles"), yfirlitsgreina og sjúkratilfella. í umsókn um skráningu í gagnagrunninn lýsti ritstjórnin þannig vinnuferlum sem hún hefði þegar tekið upp eða myndi taka upp ef Læknablaðið fengist fært í gagnagrunninn. Forsenda skráningarinnar voru meðal annars nákvæmar upplýsingar um menntun, þjálfun og rannsóknir ritnefndarmanna. Auk þess, og í sem stytztu máli er ferli innsendra fræðigreinar eftirfarandi: ritstjórnarfulltrúa berst fræðigrein sem framsend er til ritstjóra/ábyrgð- armanns sem úthlutar einum ritnefndarmanni greininni til frekari ákvörðunar. Viðkomandi ritnefndarmaimi er samtímis oftast fenginn annar ritnefndarmaður („secunder"), þeim fyrri til að- stoðar ef þurfa þykir. A þessu stigi getur ábyrgur ritnefndarmaður stöðvað ferlið og mælt með höfn- un greinarinnar án frekari umfjöllunar og tekur ritstjórnin öll þá ákvörðun sameiginlega. Sýnu algengast er þó að viðkomandi fræðigrein sé send áfram til ritrýni. Það er skilyrði við umfjöllun um frum- og yfirlitsgreinar, að fyrir liggi að minnsta kosti tvær bitastæðar umsagnir ritrýna. Getur þá oft flýtt fyrir að leita til þriggja aðila strax í upp- hafi. Dýpt og lengd umsagnanna er mjög mismun- andi og ritrýni sem er ein eða tvær málsgreinar almenns eðlis kemur ritstjóm og höfundum að takmörkuðu gagni varðandi framhaldið. Hjá Læknablaðinu tíðkast tvíblind ritrýni, það er að segja hvorki ritrýnar né höfundar þekkja hver til annars. Smæð íslenzks læknasamfélags er hins vegar slík að líklega grunar hvorn aðila, stundum þó ranglega, hver hinn sé. Starf ritrýnis er vanþakklátt, vinnuframlagið er umtalsvert og ritrýnir fær enga umbun, hvorki þessa heims né annars, fyrir verkið, nema síður sé ef til hans spyrst, sem er þó sem betur fer sjaldgæft. Það er misjafnlega erfitt að fá ritrýna eftir því hver sér- grein læknisfræðinnar á í hlut og oft koma aðeins fáir til greina. Ritstjórn Læknablaðsins er afar þakklát ritrýnum og er fullljóst, að ekki væri unnt að halda úti Læknablaðinu í því formi sem við kjósum án aðstoðar þeirra, sérlega ekki að upp- fylla skilyrði NLM. Onnur hlið á því hversu fáir ritrýnar eru hér- lendis er sú, að leitin að þeim getur orðið það erfið og tafsöm að höfundar þurfi að bíða óheyrilega lengi eftir að þeim berist aftur verk sitt með umsögnum. Ritstjórn Læknablaðsins þykir þessi töf verulega miður, en þekkir engin úrræði sem gætu breytt þessu að gagni. Sér í lagi er úr vöndu að ráða þegar lengi hefur verið beðið eftir umsögn, sem síðan reynist gagnlítil. Hvað varðar þátt höf- unda, þá hefur ritstjórn nýlega skerpt og stytt leiðbeiningar til þeirra, og má finna þær á vefsíðu blaðsins undir fyrirsögninni „Leiðbeiningar til höfunda fræðilegs efnis." Hvort sem það má rekja til skráningar hjá NLM eða einhvers annars þá hefur fjöldi innsendra fræðigreina farið vaxandi undanfarin misseri. Höfnunarhlutfall hefur að sama skapi hækkað, og er nú um það bil 10%. Sá sem þetta ritar hefur á tilfinningunni, en getur með engu móti sannað, að íslenzkum rannsakendum þyki fýsilegra en áður að birta greinar í Læknablaðinu, í ljósi þess að um- heimurinn muni að minnsta kosti verða þeirra var og, ekki síður, að nafn höfunda(r) finnist nú oftar en áður í alþjóðlegum gagnagrunnum. Ritstjórn hefur nýlega hafið athugun á heim- sóknum á vefsíðu Læknablaðsins og reynt að sundurgreina þær eftir þjóðlöndum. Þessar leitir eru takmörkunum háðar, og engan veginn víst að þær nái til allra heimsókna; fer það væntanlega eftir þeirri leitarvél sem viðkomandi kann að nota í hvert skipti. Engu að síður er óhætt að fullyrða að heimsóknir erlendra aðila í hverjum mánuði skipta hundruðum. Hvað aðra hluta blaðsins áhrærir hefur rit- stjórn tekið til umfjöllunar, jafnvel í nokkrum tölublöðum, tiltekin efni og nægir þar að nefna nýlega og yfirstandandi athugun á framhalds- menntun lækna og rafrænni sjúkraskrá. Við álítum að rækileg og djúp umfjöllun, frekar en einfaldar frásagnir, geti komið okkur öllum að gagni, bæði á líðandi stundu og síðar sem söguleg heimild. Ritstjóm og starfsfólk Læknablaðsins freista þess að ganga þannig frá blaðinu að það sé lækn- um til gagns og sóma. Hvort það tekst eða ekki er lesenda þess og eigenda að dæma. Ritstjórn tekur öllum ábendingum og aðfinnslum með þökkum. LÆKNAblaðið 2008/94 443
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.