Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 51
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR KRABBAMEINSFÉLAGIÐ sem þama eru geymdar af virðingu, góðri siðfræði og vísindalegri nákvæmni." Alltaf hægt að gera eitthvað Eflaust er á engan hallað þó sagt sé að Sigurður Björnsson sé einn þekktasti krabbameinslæknir þjóðarinnar. Hann hefur helgað sig þessu starfi og þó hann vilji ekki taka undir orðið köllun, segir það hafa alltof hátíðleg og jafnvel trúarleg tengsl, þá er jafnljóst að læknisstarfið hefur mótað líf hans að flestu leyti. „Ég hef ávallt unnið langan vinnudag og lagt á það áherslu að sjúklingar mínir geti náð til mín hvenær sem er. Ég hef ekki lagt fyrir mig tóm- stundaiðju sem tekur tíma frá starfinu og það er ekki tilviljun að ég valdi mér Krabbameinsfélagið sem vettvang utan vinnunnar. Starf mitt með Krabbameinsfélaginu hefur aldrei gengið á vinnu- tíma minn á sjúkrahúsunum og stjórnarfundir félagsins hafa alltaf verið haldnir utan vinnutíma af þeirri ástæðu. Mun fremur hefur það bitnað á fjölskyldu minni en á móti kemur að starfið hefur verið ákaflega gefandi og ég hef kynnst mjög góðu og kraftmiklu fólki hvaðanæva af landinu og sé ekki eftir neinu í því sambandi. Þá hefur sam- starfið við starfsfólk Krabbameinsfélagsins verið einstakt enda þar valinn maður í hverju rúmi." Næmi Sigurðar á tilfinningalegt ástand sjúk- linga sinna er alþekkt og margir hafa kosið að halda sambandi við hann löngu eftir að bata er náð eða eftir að reglubundnu eftirliti er lokið. „Samskipti við sjúklinga og aðstandendur þeirra hafa gefið mér mikið, sem hljómar kannski ein- kennilega því oft eru aðstæður þannig að mikil sorg og mikil depurð ríkir vegna veikinda ástvina. Það sem skiptir máli er að fólkinu líði betur eftir samtal við lækninn þrátt fyrir að iðulega séu vandamálin yfirþyrmandi og skuggarnir langir. Hér áður fyrr voru fá ráð til reiðu þegar krabbamein greindist og læknar kusu frekar að segja ekkert eða jafnvel ósatt fremur en þurfa að skýra frá staðreyndum. í dag horfir þetta öðruvísi við og í mínum huga er alltaf hægt að gera eitt- hvað, það er alltaf hægt að bregðast við og finna einhverja leið til að lina sársauka bæði sjúklings og aðstandenda, jafnvel þótt ekki sé lengur von um lækningu. Mikilvægast af öllu er að segja sann- leikann og veita fólki ekki falskar vonir. Þróunin í krabbameinslækningum hefur verið mjög mikil á undanförnum áratugum og margar leiðir færar í meðferð. Unnt er að kenna læknum ákveðin grundvallaratriði í samskiptum við skjólstæðinga sína en þeir verða að læra að halda sjálfum sér utan við aðstæðurnar, annars er hætta á að þeir brenni upp í starfinu. Ég hef séð dæmi um það." Sigurður Björnsson talar af yfirvegun og reynslan skín úr hverjum drætti andlits hans. Hann kveðst ekki hafa orðið trúaður af starfi sínu og ábyrgð hans sem læknis sé honum fullljós. „Lækningar í dag eru samstarf margra fagstétta og þar leggja allir sig fram af fremsta megni. Á endanum er það hins vegar læknirinn sem ber ábyrgð í því sem gert er og undan henni verður ekki vikist. Ég hlaut hefðbundið trúaruppeldi að þeirra tíma sið og móðir mín og örnmur kunnu fjölda sálma og kvæða og sjálfur átti ég auðvelt með að læra ljóð. Líkt og margir aðrir rifja ég oft upp bænirnar og bamatrúna þegar að þrengir og hef iðulega sótt þangað styrk." “... and I enjoyed New Zealand’s socially progressive, virtually classless, and multicultural society. It was also nice to have plenty of time to enjoy with family and friends.” - Martha Graber, MD Eam A$500 to A$1500 a day (Australian dollars) or more plus air- fare, paid leave and, in many instances, a house and car. Call us today for details: 0 800 8464. Global Medical Stafflng, Ltd. website: www.gmedical.com email: doctors@gmedical.com LÆKNAblaðið 2008/94 487
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.