Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 17
F RÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Viðhorf og þekking 16 ára unglinga á kynlífstengdu efni Kolbrún Gunnarsdóttir1 læknanemi Reynir Tómas Geirsson12 sérfræðilæknir í fæðinga- og kvensjúkdómafræði, prófessor Eyjólfur Þorkelsson1 læknanemi Jón Þorkell Einarsson2 læknir í sérnámi í lyflækningum Ragnar Freyr Ingvarsson2 læknir í sérnámi í lyflækningum Sigurbjörg Bragadóttir1 læknanemi Lykilorð Kynfræðsla, unglingar, kynsjúkdómar, getnaðarvarnir, neyðargetnaðarvörn ’Læknadeild HÍ, Vatnsmýrarvegi 16, 2Landspítali, Hringbraut, 101 Reykjavík Bréfaskriftir og fyrirspurnir: Reynir T. Geirsson, Kvennasvið, Landspítala, Hringbraut, 101 Reykjavík. S. 543 1000 Netfang: reynirg@landspitali. is Ágrip Tilgangur: Kynsjúkdómar og ótímabærar þung- anir hafa verið félags- og heilbrigðisvandamál meðal íslenskra unglinga og algengari á íslandi en í nágrannalöndunum. Sumarið 2001 var gerð könnun á þekkingu og viðhorfum 16 ára unglinga til kynfræðslu, kynsjúkdóma og getnaðarvarna sem sýndi að þekkingu á kynsjúkdómasmiti og getnaðarvörnum var verulega ábótavant. Könnunin var endurtekin 2005-2006 með tvöfalt stærra úrtaki og niðurstöður rannsóknanna born- ar saman til að meta breytingar í ljósi fræðsluátaks frá Astráði, forvamastarfi læknanema. Efniviður og aðferðir: Spumingalisti með 69 fjölvalsspurningum var lagður fyrir 16 ára ungmenni á Akureyri og á Reykjavíkursvæðinu í tengslum við forvarnastarfið. Samanburður var gerður á svömm 2001 og 2005-2006, og fyrir og eftir fræðsluna. Niðurstöður: Alls tóku 201 ungmenni þátt 2001 og 417 í könmminni 2005-2006. Flestum fannst fræðslan eiga heima í skólum og æskilegt væri að utanaðkomandi fagfólk veitti hana. Þáttur foreldra var takmarkaður. Þekkingu var ábóta- vant á báðum rannsóknatímabilum, en marktæk breyting til batnaðar sást, milli tímabila og eftir fræðslu (p<0,001). Meðal annars fannst að í hópi pilta í seinni könnuninni töldu 13% pilluna veita vörn gegn kynsjúkdómum, tæp 70% allra unglinganna taldi að herpessýking læknaðist með sýklalyfjum og tíundi hver að hægt væri að lækna HIV. Viðhorf til kynhegðunar höfðu lítið breyst milli tímabila og 66% töldu eðlilegt að 14-16 ára unglingar stundi kynlíf, þótt einungis 8% væru reiðubúin til að taka afleiðingunum. Alyktun: Vanþekking og misskilningur um ýmis grunnatriði kynlífs eru algeng meðal unglinga, ekki síst varðandi alvarlegustu kynsjúkdómana, sem bendir til að bæta megi kynfræðslu í grunn- skólum og á fyrstu stigum framhaldsskóla. E N G L I S H SUMMARYHHHH^HHI Gunnarsdóttir K, Geirsson RT, Þorkelsson E, Einarsson JÞ, Ingvarsson RF, Bragadóttir S Attitudes and knowledge on sexual matters among 16-year old teenagers Objective: Sexually transmitted diseases and unplanned pregnancies are social and health issues among lcelandic teenagers and are more prevalent than in neighbouring countries. In 2001 knowledge and attitudes to sexual education, sexually transmitted disease and contraception among 16-year olds were investigated by questionnaire. Knowledge was defective. The study was repeated in 2005-2006 in a larger sample and change over five years estimated after an educational effort on sexual issues was launched by medical students (www.astradur.is). Material and methods: A survey with 69 multiple choice questions was administered in conjunction with sexual education by medical students. Changes in replies to the same questions were compared between 2001 and 2005- 2006 as weil as before and after teaching. Results: A total of 201 teenagers were in the first and 417 in the latter study. There was a wish for sexual education in schools and by outside advisers. The parental role was relatively small. Knowledge was inadequate in both, but significant improvement was seen between periods and afterthe educational effort (p<0.001). Misconceptions were common, such as 13% of boys believing that oral contraceptives protected against sexually transmitted disease, that herpes infection was curable by antibiotics (70% of respondents) and that modern medicine cured HIV (10% of respondents). Attitudes to sexual behavior had not changed by 2005-6 and 66% thought it normal for 14-16 year olds to have sexual intercourse, while only 8% were ready to handle the consequences. Conclusion: Misconception and inadequate knowledge on various key aspects of sexuality is common, not least on serious sexually transmitted diseases, which suggests a need for improved sexual education in late primary and early secondary school. Key words: Sexual education, teenagers, sexually transmitted disease, contraception, emergency contraception Correspondence: ReynirTómas Geirsson, reynirg@landspitali.is LÆKNAblaðið 2008/94 453
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.