Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 44
IUMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
RAFRÆN SJÚKRASKRÁ
rafrænna lyfjafyrirmæla og rafrænni vistun og
vinnslu myndgreiningarrannsókna."
María lagði áherslu á í framsögu sinni á fundi
LR að Sögukerfið margnefnda sem hefur orðið
helsti skotspórm gagnrýni lækna innan og reyndar
utan Landspítalans líka, væri ekki nema eitt af
mörgum skráningarkerfum spítalans og mik-
ilvægi þess hefði minnkað verulega á undanföm-
um misserum.
„Sögukerfið var langstærsti hluti rafrænnar
sjúkraskrár á Landspítala en það hefur breyst á
undanförnum árum og innleidd hafa verið önnur
kerfi sem gera Söguna veigaminni í heildarsam-
henginu. Nefna má tölvukerfi á rannsóknarstofum
og skurðstofum, rafræn lyfjafyrirmæli, sérhæft
kerfi fyrir fósturgreiningar og ýmislegt fleira.
Þegar þessar nýju kerfiseiningar hafa komið í
notkun hefur vægi Sögunnar minnkað hlutfalls-
lega. Engu að síður er Sagan það kerfi sem snýr að
stærstum hluta starfsmanna í klínísku starfi. Það
er alveg rétt að Sagan hefur ýmsa galla og sumum
þeirra hefur okkur ekki gengið nægilega vel að
ráð bót á. Það er samt mikilvægt að greina á milli
Sögunnar og annarra viðfangsefna innan rafrænn-
ar sjúkraskrár sem hafa ekkert með Söguna að
gera. Þar má nefna aðgangsreglur sem byggðust
á gildandi lögum og reglum um persónuvernd og
tóku í raun mið af pappírsskráningu allra gagna
og eru að ýmsu leyti orðin úrelt. Nýtt frumvarp
um rafræna sjúkraskrá sem væntanlega verður
samþykkt á Alþingi í haust ætti að leysa þann
vanda. Það hefur einnig verið réttilega gagnrýnt
hversu Heilbrigðisnetið er skammt á veg komið
en það á meðal annars að gera aðgengi að rafræn-
um sjúkraskrárgögnum á milli stofnana betra,
auðvelda samtengingu kerfa og skilgreiningar á
Vantar þig húsnæði?
Frábær staður með allri aðstöðu
Meðferöarherbergi, afnot af líkamsrækt
og fundaraöstaöa
Staður í mikilli þróun og með skemmtileg
framtíðaráform
Hafið samband í síma: 511 -1575 eða sendið
fyrirspurn á: elisabet@hreyfigreining.is
HREYFI GREINING
SJ Ú KRAÞJÁLFU N OG LÍKAMSRÆKT
Höfðabakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
aðgangsheimildum. Þetta hefur í sjálfu sér ekkert
með Söguna að gera en hefur í umræðunni iðulega
blandast saman."
Ekki einfalt að skipta um kerfi
A fundi LR heyrðust þær raddir að Sögukerfið
væri fullreynt og löngu tímabært að skipta því út
fyrir annað betra. María sagði að Landspítali og
framleiðandi kerfisins TM Software, hefðu náð
mjög skýru samkomulagi um hvaða endurbætur
þyrfti að gera og hvenær þær þyrftu að skila sér.
Samningur Landspítala við TM Software væri að
sjálfsögðu uppsegjanlegur ef ekki yrði staðið við
hann.
„Ef okkur tekst ekki að ná viðunandi árangri
með Sögukerfinu í samvinnu við framleiðendur
þess verðum við að íhuga að skipta um kerfi. Slík
ákvörðun kostar auðvitað verulegt fé. Með þeim
skýru kröfum og tímasetningum sem nú liggja
fyrir má segja að nokkurs konar próf hafi verið
lagt fyrir framleiðendur um þróun kerfisins og nú
er að sjá hvernig það gengur".
Eruð þið farin að íhuga aðra möguleika? Skoða
önnur kerfi?
„Við erum alltaf að skoða önnur kerfi og ekki
endilega með það í huga að skipta Sögunni út
fyrir annað heldur er þetta einfaldlega hluti af því
að fylgjast með því hvað aðrir eru að gera. Það
má heldur ekki gleyma því að þó við hefðum fjár-
munina til að skipta þá er það langt frá því einfalt
mál. Það er ekkert eitt kerfi ráðandi á markaðnum
og stóru alþjóðlegu hugbúnaðarfyrirtækin hafa
átt erfitt með að tryggja sér ráðandi hlutdeild í
honum. Framleiðendur sjúkraskrárkerfa skipta
tugum ef ekki hundruðum og enginn þeirra hefur
þá lausn sem öllum hentar."
Ný lög um Sjúkratryggingastofnun hljóta að hafa
áhrifá þróun rafrænnar sjúkraskrár?
„Það er erfitt að sjá fyrir sér hvemig sú stofnun
á að geta virkað án aðgangs að rafrænum sjúkra-
skrárgögnum. Tilurð Sjúkratryggingastofnunar og
aukin áhersla á kostnaðargreiningu og gegnsæi
heilbrigðisþjónustu almennt hlýtur að kalla á góða
rafræna sjúkraskrá."
Bindur þú vonir við að ný lög um Sjúkratrygginga-
stofnun og væntanleg lög um rafræna sjúkraskrá muni
hvetja stjórnvöld til að beina auknum fjármunum á
næstu misserum til fullnustu rafrænnar sjúkraskrár?
„Eg hef fulla trú á því og tel að í heilbrigðis-
ráðuneytinu ríki góður skilningur á mikilvægi
þessa máls og að því verði siglt í örugga höfn á
næstu árum."
480 LÆKNAblaðið 2008/94