Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 11
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Algengi Streptococcus pyogenes
og methisillín ónæmra
Staphylococcus aureus í hálsi
heilbrigðra barna í Garðabæ
Björg Þuríður
Magnúsdóttir1
heimilislæknir
Jón Steinar
Jónsson2
heimilislæknir
Karl G.
Kristinsson3
sýklafræðingur
Lykilorð: streptókokkar af
flokki A, methisillín ónæmir
Staphylococcus aureus, berar,
hálsbólga.
Ágrip
Inngangur: Hálsbólgur skal meðhöndla með
sýklalyfjum ef S. pyogenes (hemólýtískir streptó-
kokkar af flokki A) er talin orsök þeirra. Mikilvægt
er að staðfesta tilvist S. pyogenes í hálsi til að forð-
ast óþarfa sýklalyfjanotkun en vaxandi ónæmi til
dæmis gegn makrólíðum er orðið algengt. Ekki
er þó fullvíst að um streptókokkahálsbólgu sé að
ræða þó S. pyogenes finnist í hálsi því viðkomandi
gæti verið beri og haft veiruhálsbólgu.
Tilgangur: Kanna beratíðni og sýklalyfjanæmi S.
pyogenes meðal heilbrigðra barna á höfuðborgar-
svæðinu og hvort eitthvert barnanna beri methis-
illín ónæma Staphylococcus aureus (MÓSA) í hálsi.
Efniviður og aðferðir: Þversniðsrannsókn á
algengi S. pyogenes og MÓSA hjá heilbrigðum
bömum. Rannsóknin var gerð í mars og apríl 2005.
Hálsstrok voru tekin úr 270 einkennalausum heil-
brigðum grunnskólabörnum í Garðabæ og ræktuð
fyrir S. pyogenes og MÓSA. Sýklalyfjanæmi bakt-
eríanna var kannað.
Niðurstöður: Algengi S. pyogenes reyndist vera
22%. Beratíðnin í 1.-6. bekk var 28% en 11% í
7.-10. bekk. Hæst var tíðnin í 1. bekk eða 45%.
Sýklalyfjaónæmi S. pyogenes fyrir erýtrómýcíni
reyndist 17% og fyrir tetracýklíni 13%, 0% fyrir
penicillíni og 2% fyrir klindamýcíni. Engir MÓSA
stofnar ræktuðust úr hálsstrokum barnanna.
Ályktun: Niðurstöðurnar sýna háa beratíðni hjá
grunnskólabörnum í Garðabæ. Læknar ættu að
hafa beratíðnina í huga við greiningu streptó-
kokkahálsbólgu hjá börnum og ekki gera hrað-
greiningarpróf og/eða hálsræktun nema einkenni
gefi tilefni til.
Inngangur
Algengasta bakteríuorsök hálsbólgu er S. pyogenes,
oft kölluð streptókokkahálsbólga (1). Hálsbólga er
nær einungis meðhöndluð með sýklalyfjum ef S.
pyogenes er orsök hennar. Þess vegna er mikilvægt
■■IENGLISH SUMMARYHH
Magnúsdóttir BÞ, Jónsson JS, Kristinsson KG
Prevalence of Streptococcus pyogenes and methisillin-resistant Staphylococcus
aureus in the pharynx of healthy children in the town of Gardabaer
'Heilsugæslunni
Efra-Breiðholti,
2heilsugæslunni Garðabæ,
3sýklafræðideild
Landspítala og HÍ.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Björg Þuríður
Magnúsdóttir,
Heilsugæslunni
Efra-Breiðholti
Sími 513-1550.
bjorgm@simnet. is
Background: Treating S. pyogenes pharyngitis with
antibiotics is recommended after confirming its presence
using culture or rapid antigen tests. Limiting unnecessary
antibiotics use is important in attempt to avoid rising
resistance to drugs such as macrolides. Not all individuals
carrying S. pyogenes are infected.
Objective: To evaluate the carriage rate of S. pyogenes
and methicillin resistant S. aureus (MRSA) among healthy
children in the Reykjavík capital area.
Subjects and Methods: Cross-sectional study for the
carriage of S. pyogenes and MRSA among healthy
children in the town of Gardabaer. The study took place in
March and April 2005. Throat cultures were collected from
270 asymptomatic healthy primary school students and
cultured selectively for S. pyogenes and MRSA and tested
for antimicrobial susceptibilities.
Results: Prevalence of S. pyogenes was found to be 22%.
The proportion of carriers in 1st to 6th grade was 28%,
compared with 11 % in 7th to 10th grade students. The
highest proportion was in 1st grade, 45%. The proportion
S. pyogenes resistant to erythromycin was 17%, to
tetracycline 13% and dindamycin 2%. All strains were
susceptible to penicillin. No MRSA strains were found.
Conclusions: The study reveals a high S. pyogenes
carriage rate in primary school children in Garðabær.
Physicians should consider the prevalence of
streptococcal carriage when diagnosing streptococcal
pharyngitis in children, and only perform culture and/or
antigen tests when clinically indicated.
Keywords; Streptococcus pyogenes, Methicillin-resistant Staphylococcus
aureus, carrier, pharyngitis.
Correspondence: Björg Þuríður Magnúsdóttir, bjorgm@simnet.is
LÆKNAblaðið 2007/93 447