Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 20
IFRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Mynd 1. Yfirlit yfir hvaðati unglingar töldu sig hafa fengið mesta fræðslu um kynferðismál. í
rannsókninni 2001 var ekki í boði að merkja við video/DVD.
1-2 3-5 6-10 11-15 16 eða fleiri
Fjöldi rekkjunauta yfir ævina
Mynd 2. Svör við spurningu um eðlilegan fjölda rekkjunauta yfir ævina eftir kyni og rann-
sáknarhlutunum 2001 og 2006.
Tafla I. Munur á svörum um áhersluatriði í kynfræðslu árin 2001 og 2005-6 út frá
meðaltölum. Svarmöguleikar á skaia 1-5 (lítilvægt - mikilvægt).
Meöaltal 2001 Meöaltal 2005-6 t-gildi df p-gildi
Gerð kynfæra og starfsemi þeirra 4,2 3,8 6,9 479 <0,001
Kynhormónar og 4,1 3,9 2,7 589 0,006
tíöarblæöingar
Fóstureyöingar 4,1 4,3 -3,0 590 0,003
Kynsjúkdómar, 4,5 4,7 -3,0 343 0,003
smitleiðir og meðferö
Einkenni kynsjúkdóma 4,5 4,7 -4,3 308 <0,001
Getnaöarvarnir 4,5 4,6 -2,6 347 0,01
Sam- og tvíkynhneigð 3,2 3,5 -3,5 349 0,001
Klám 3,4 3,6 -2,0 590 0,04
Umræður um eðlilegt/ 3,4 3,6 -2,2 588 0,03
óeðlilegt kynlíf
Aögengi aö upplýsingum 4,2 4,3 -2,0 590 0,04
Umræöur um samskipti 4,3 4,0 3,9 590 <0,001
kynjanna
unglingar stunduðu kynh'f, en 8,4% töldu þennan
aldurshóp reiðubúinn til að taka afleiðingum kyn-
lífs. í rannsókninni 2001 var hlutfallið svipað (62%
og 10,2%). í báðum rannsóknum fannst 79-90%
unglinga eðlilegt að hefja kynlíf fyrir 16 ára aldur
(2001; strákar 84,9%, stúlkur 86,3%, p=0,009; 2006;
strákar 89,4%, stúlkur 78,9%, p<0,001). Milli rann-
sóknaráranna hækkaði hlutfall stráka sem vildu
byrja fyrr, en lækkaði hjá stúlkunum. Ekki varð
marktæk breyting milli heimsókna 2005-2006 á því
hvenær unglingum þótti eðlilegt að hefja kynlíf.
Fylgni var milli þess að telja eðlilegt að eiga
marga rekkjunauta og finnast eðlilegt að hefja kyn-
líf <14 ára (Pearsons fylgnistuðull = 0,42; p<0,001).
Fylgni var einnig milli þess að telja sig hafa góða
þekkingu á kynferðismálum og að eðlilegt væri
að unglingar hefji kynlíf <14 ára (Pearsons fylgni-
stuðull = 0,27; p<0,001). Áætlaður meðalaldur við
upphaf samfara samkvæmt þessum svörum var
15,4 ár 2001 en 15,5 ár 2005-2006. Ekki var munur
á aldursdreifingu milli ára (t = -0,83 ; df = 575 ; p =
0,41) (mynd 2).
Áherslur í kynfræðslu
Munur á meðaltölum kvarðaðra svara við spurn-
ingum um áhersluatriði er sýndur í töflu I.
Unglingum 2005-2006 fannst ekki eins mikilvægt
og 2001 að fjallað væri um gerð og starfsemi kyn-
færa, kynhormóna, tíðablæðingar eða samskipti
kynjanna. Ffins vegar fjölgaði þeim sem vildu
fræðast meira um gerð og starfsemi kynfæra eftir
fræðslu Ástráðs (meðaltalseinkunn 3,7 varð 4,0;
t=-3,330; df=699; p=0,001). Unglingum 2005-2006
fannst mikilvægara að ræða um fóstureyðingar,
kynsjúkdóma, getnaðarvamir, sam- og tvíkyn-
hneigð, klám og hvað teljist eðlilegt í kynlífi en
2001. Meðaltal í svörum stúlknanna var hærra ef
marktækur munur var á kynjunum, nema þegar
spurt var um sjálfsfróun og næm svæði líkamans.
Þar voru strákar líklegri til að merkja við „mik-
ilvægt".
Viðhorftil kynheilbrigði
Munur á meðaltölum kvarðaðra svara um við-
horf er sýndur í töflu II. Nemendur sem töldu sig
ekki vita hvort þeir hefðu fengið næga fræðslu
um kynsjúkdóma á skólagöngu gátu heldur ekki
sagt hvort þeir hefðu fengið næga fræðslu um
þunganir, ábyrgð foreldrahlutverksins eða getn-
aðarvarnir. Unglingum sem fannst þunganir
unglingsstúlkna of algengar, voru líklegir til að
vera sammála því að fóstureyðingar séu of algeng-
ar. Þeir sem höfðu jákvætt viðhorf til smokksins
voru líklegir til að gera sér grein fyrir hlutverki
hans sem kynsjúkdómavarnar og einnig að vita að
klamýdía er ekki hættulaus sjúkdómur.
Fleiri unglingar 2005-2006 voru sammála
því en 2001 að smokkurinn væri of dýr og hann
veitti vörn gegn kynsjúkdómum. Færri ungling-
um þóttu unglingaþunganir, fóstureyðingar og
456 LÆKNAblaðið 2007/93