Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 29
FRÆÐIGREINAR YFIRLITSGREIN Algengi Margt bendir til að vefjagigt sé nokkuð algeng meðal barna sem leita til gigtarlækna (19). í rann- sókn Bowyers og Roetters (1996) reyndust 2,1% barna sem komu í fyrsta sinn á gigtardeild barna vera með vefjagigt (20). Tveimur árum síðar hafði sú tala hækkað upp í 7,65% á sama svæði (12) sem sýnir að vaxandi vitund um sjúkdóminn stuðlar að aukinni tíðni greiningar. Mismunandi niðurstöður hafa fengist á algengi vefjagigtar í þýði. Buskila og félagar (21) rann- sökuðu 338 ísraelsk börn á grunnskólaaldri og reyndist 21 (6,2%) þeirra uppfylla ACR greining- arviðmið ameríska gigtlæknafélagsins. í rann- sókn Mikkelsons (22) á 1756 finnskum grunn- skólabörnum reyndust 22 (1,3%) þeirra uppfylla ACR sjúkdómsgreiningarviðmiðin, en Clark og félagar (15) sem einnig notuðu ACR viðmiðin greindu vefjagigt í sjö af 548 (1,2%) mexíkönskum grunnskólabörnum, allt stúlkum. Ef tekið er mið af þessum prósentutölum gætu á bilinu 700-3600 íslensk böm á aldrinum sex til átján ára verið haldin vefjagigt (reiknað út frá miðársmannfjölda eftir aldri frá Hagstofu íslands). I öllum rannsókn- unum hefur algengi vefjagigtar reynst meira hjá stúlkum en drengjum og mest hjá stúlkum á kyn- þroskaskeiði. Orsakir og lífeðlismeinafræði einkenna Orsakir vefjagigtar hjá ungmennum eru ekki þekktar, en margar mismunandi kenningar hafa verið settar fram. Tilhneiging er til að leita orsak- anna í sálfélagslegum þáttum með þeim rökum að ekki sé hægt að staðfesta sjúkleikann með hefð- bundum rannsóknum. Einstaka halda því fram að vefjagigt sé „ruslafötugreining" og að ekki sé um raunverulegan sjúkdóm að ræða. Rannsóknir síðustu ára hafa þó smám saman verið að ryðja burtu þeirri skoðun og leitt í Ijós að einkenni vefja- gigtar megi rekja til víðtækrar truflunar í ýmsum líffærakerfum (23). Ekki er vitað um neinn ákveðinn orsakaþátt sem getur skýrt allar birtingarmyndir vefjagigtarinnar, en ýmsir þættir hafa verið tilgreindir og rannsak- aðir, meðal annarra fjölskyldu- og erfðaþættir, svefntruflanir, truflun í starfsemi miðtaugakerf- isins, slys, áverkar, andlegt álag, sýkingar, oflireyf- anleiki og aðrir undirliggjandi sjúkdómar. Fjölskyldu og erfðaþættir Rannsóknir hafa sýnt fram á, með tölfræðilegri marktækni, að jákvæð fjölskyldusaga er stór áhættuþáttur fyrir vefjagigt og að hlutfalls- leg áhætta barna vefjagigtarsjúklinga er aukin Tafla II. Kvikupunktar Hnakkabein (occiput): Við vöðvafestur í hnakkarót beggja vegna Neðri hluti háls: Framan á hálsi fyrir ofan viðbein beggja vegna Sjalvöðvi (trapezius): Aftan á baki á mótum axlar og háls beggja vegna miðlínu Ofankambsvöðvi (supraspinatus): Ofan herðablaða nær hryggsúlu beggja vegna Annað rif: Á bringunni í hæð við annað rif, beggja vegna Olnbogar: Utanvert á olnbogum á báðum handleggjum Mjaðmir: Ofanvert á mjaðmasvæði ofarlega í rassvöðva beggja vegna Mjaðmahnúta (greater trochanter): Aftanvert á mjaðmahnútum, beggja vegna Hné: Innanvert á hnjám í hæð við miðja hnéskel (24-28). Þannig reyndust 16 af 58 (28%) börnum vefjagigtarsjúklinga uppfylla greiningarskilmerki ACR fyrir sjúkdómnum (25) og í annarri athugun reyndist algengi vefjagigtar vera 26% hjá blóð- skyldum ættingjum kvenna með vefjagigt og 19% hjá eiginmönnum þeirra (29). Þetta getur bent til að erfða- og fjölskylduþættir eigi þátt í tilurð vefja- gigtarheilkennisins. Erfðafræðilegur breytileiki í ýmsum boð- efnakerfum i heila er talinn hafa mikla þýðingu í orsakameingerð vefjagigtar. Nýlegar rannsóknir gefa til kynna að fjölbreytileiki gena í serótónín- (30, 31), dópamín- (32) og katekólamín- (33) kerf- um eigi þar þátt. Þessi fjölbreytileiki gena er ekki sértækur fyrir vefjagigt þar sem hann finnst einnig í tengdum kvillum, svo sem kvíða og þunglyndi. Nákvæm vitneskja um hvernig erfðaþættir mynda orsakameingerð vefjagigtar liggur ekki fyrir en líklegt er að samspil margra gena þurfi til að valda heilkenninu. Svefntruflanir Svefntruflanir eru eitt höfuðeinkenni vefjagigtar, bæði hjá börnum og fullorðnum (2, 12, 13, 17) og af mörgum taldar vera einn af orsakaþáttum vefja- gigtar. í rannsókn Yunus og Masi (2) reyndust 67% vefjagigtarbarna og ungmenna sofa illa, en öll töldu þau sig vakna þreytt og í rannsókn Siegels og félaga (12) þar sem 45 börn og ungmenni með vefjagigt tóku þátt í símaviðtölum töldu 96% þeirra sig eiga við svefntruflanir að stríða. Rartnsókn Tayag-Kiers og félaga (13) á svefni barna og ungmenna með vefjagigt (n=16) leiddi í ljós að svefn þeirra var bæði óeðlilegur að upp- byggingu og skertur samanborið við svefn heil- brigðra barna (n=14). Heildarsvefntími þeirra var LÆKNAblaðið 2008/94 465
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.