Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2008, Síða 11

Læknablaðið - 15.06.2008, Síða 11
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Algengi Streptococcus pyogenes og methisillín ónæmra Staphylococcus aureus í hálsi heilbrigðra barna í Garðabæ Björg Þuríður Magnúsdóttir1 heimilislæknir Jón Steinar Jónsson2 heimilislæknir Karl G. Kristinsson3 sýklafræðingur Lykilorð: streptókokkar af flokki A, methisillín ónæmir Staphylococcus aureus, berar, hálsbólga. Ágrip Inngangur: Hálsbólgur skal meðhöndla með sýklalyfjum ef S. pyogenes (hemólýtískir streptó- kokkar af flokki A) er talin orsök þeirra. Mikilvægt er að staðfesta tilvist S. pyogenes í hálsi til að forð- ast óþarfa sýklalyfjanotkun en vaxandi ónæmi til dæmis gegn makrólíðum er orðið algengt. Ekki er þó fullvíst að um streptókokkahálsbólgu sé að ræða þó S. pyogenes finnist í hálsi því viðkomandi gæti verið beri og haft veiruhálsbólgu. Tilgangur: Kanna beratíðni og sýklalyfjanæmi S. pyogenes meðal heilbrigðra barna á höfuðborgar- svæðinu og hvort eitthvert barnanna beri methis- illín ónæma Staphylococcus aureus (MÓSA) í hálsi. Efniviður og aðferðir: Þversniðsrannsókn á algengi S. pyogenes og MÓSA hjá heilbrigðum bömum. Rannsóknin var gerð í mars og apríl 2005. Hálsstrok voru tekin úr 270 einkennalausum heil- brigðum grunnskólabörnum í Garðabæ og ræktuð fyrir S. pyogenes og MÓSA. Sýklalyfjanæmi bakt- eríanna var kannað. Niðurstöður: Algengi S. pyogenes reyndist vera 22%. Beratíðnin í 1.-6. bekk var 28% en 11% í 7.-10. bekk. Hæst var tíðnin í 1. bekk eða 45%. Sýklalyfjaónæmi S. pyogenes fyrir erýtrómýcíni reyndist 17% og fyrir tetracýklíni 13%, 0% fyrir penicillíni og 2% fyrir klindamýcíni. Engir MÓSA stofnar ræktuðust úr hálsstrokum barnanna. Ályktun: Niðurstöðurnar sýna háa beratíðni hjá grunnskólabörnum í Garðabæ. Læknar ættu að hafa beratíðnina í huga við greiningu streptó- kokkahálsbólgu hjá börnum og ekki gera hrað- greiningarpróf og/eða hálsræktun nema einkenni gefi tilefni til. Inngangur Algengasta bakteríuorsök hálsbólgu er S. pyogenes, oft kölluð streptókokkahálsbólga (1). Hálsbólga er nær einungis meðhöndluð með sýklalyfjum ef S. pyogenes er orsök hennar. Þess vegna er mikilvægt ■■IENGLISH SUMMARYHH Magnúsdóttir BÞ, Jónsson JS, Kristinsson KG Prevalence of Streptococcus pyogenes and methisillin-resistant Staphylococcus aureus in the pharynx of healthy children in the town of Gardabaer 'Heilsugæslunni Efra-Breiðholti, 2heilsugæslunni Garðabæ, 3sýklafræðideild Landspítala og HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Björg Þuríður Magnúsdóttir, Heilsugæslunni Efra-Breiðholti Sími 513-1550. bjorgm@simnet. is Background: Treating S. pyogenes pharyngitis with antibiotics is recommended after confirming its presence using culture or rapid antigen tests. Limiting unnecessary antibiotics use is important in attempt to avoid rising resistance to drugs such as macrolides. Not all individuals carrying S. pyogenes are infected. Objective: To evaluate the carriage rate of S. pyogenes and methicillin resistant S. aureus (MRSA) among healthy children in the Reykjavík capital area. Subjects and Methods: Cross-sectional study for the carriage of S. pyogenes and MRSA among healthy children in the town of Gardabaer. The study took place in March and April 2005. Throat cultures were collected from 270 asymptomatic healthy primary school students and cultured selectively for S. pyogenes and MRSA and tested for antimicrobial susceptibilities. Results: Prevalence of S. pyogenes was found to be 22%. The proportion of carriers in 1st to 6th grade was 28%, compared with 11 % in 7th to 10th grade students. The highest proportion was in 1st grade, 45%. The proportion S. pyogenes resistant to erythromycin was 17%, to tetracycline 13% and dindamycin 2%. All strains were susceptible to penicillin. No MRSA strains were found. Conclusions: The study reveals a high S. pyogenes carriage rate in primary school children in Garðabær. Physicians should consider the prevalence of streptococcal carriage when diagnosing streptococcal pharyngitis in children, and only perform culture and/or antigen tests when clinically indicated. Keywords; Streptococcus pyogenes, Methicillin-resistant Staphylococcus aureus, carrier, pharyngitis. Correspondence: Björg Þuríður Magnúsdóttir, bjorgm@simnet.is LÆKNAblaðið 2007/93 447

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.