Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2008, Qupperneq 19

Læknablaðið - 15.06.2008, Qupperneq 19
FRÆÐIGREINA RANNSÓKNI í vinnuskólum Reykjavíkur og Akureyrar sumarið 2001. Spurningalistinn 2005-2006 var lagður fyrir áður en fræðsla frá Ástráði fór fram og aftur 4-6 vikum síðar. Nokkrar breytingar voru gerðar frá listanum 2001 til að gera orðalag skýrara. Einnig voru spurn- ingar felldar brott þar sem niðurstöður 2001 höfðu ekki gefið marktækar upplýsingar, en nokkrum spurningum um áhættuþætti leghálskrabbameins bætt við, ásamt spumingum um þekkingu á smitleiðum kynsjúkdóma og möguleika á lækn- ingu þeirra. Spumingalistinn var í fimm hlutum. I 1. hluta voru almennar spurningar um viðhorf til kynfræðslu í grunnskólum. I 2. hluta var spurt um viðhorf til kynhegðunar og í 3. hluta um atriði sem leggja ætti áherslu á og unglingarnir beðnir að meta umræðuefni eftir mikilvægi þeirra. í 4. hluta áttu unglingarnir að taka afstöðu til staðhæfinga um getnaðarvarnir, kynsjúkdóma og fóstureyð- ingar, meta þekkingu sína á þessum efnum og svara hvort þeim fyndist þau hafa fengið nægilega fræðslu á skólagöngunni. I 5. hluta var þekking á atriðum tengdum kynsjúkdómum, getnaðarvörn- um og kynhegðun könnuð. Spurningarnar voru fjölvalsspurningar og mis- munandi form notuð (rétt/rangt og kvarðað) til að fá sem heildstæðasta mynd. Spurningalistinn var ópersónugreinanlegur og frumgögnum var eytt að úrvinnslu lokinni. Spurningalistann má sjá á www.laeknabladid.is/) í úrvinnslu var munur á svörum milli kynja og rannsókna, og fyrir og eftir fræðslu, athugaður með krosstöflum, kí-kvaðrat prófi og t-prófi, eins og við átti. Ef gildi voru ekki normaldreifð var gert Mann-Whitney próf. Fylgnistuðull Pearsons var notaður til að skoða fylgni í 1. og 2. hluta spum- ingalistans. I 3. og 4. hluta spumingalistans var gerð þáttagreining til að skýra fylgni milli spurn- inga og draga saman hvaða spurningar mældu tiltekin hugtök eða þætti. KMO stuðull (Kaiser- Meyer-Olkin measure of sampling adequacy) var á bilinu 0,67 - 0,8 og úrtakið því nægilega stórt. Þáttagreining þótti ekki gefa skýrar niðurstöður og því voru meðaltöl allra svara sett upp í töflu og t-próf notað til að athuga mun milli kynja og rann- sókna 2001 og 2005-2006. I 5. hluta var „einkunn" fyrir hvern nemanda reiknuð. Fyrir rétt svar fékkst 1 stig en ekkert fyrir rangt. Fyrir 10 sambærilegar spurningar milli rannsókna var meðaleinkunn nemenda reiknuð. Mismunur milli ára var metinn með kí-kvaðrat prófi. Fyrir sjö nýjar spumingar 2005-2006 var mismunur í svörum kynja borinn saman með krossprófi. Þar sem um var að ræða viðhorfskönnun voru leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuvemdar ekki nauðsynleg en báðar nefndir vom upplýstar um inntak könmmarinnar svo og umboðsmaður barna. Engar athugasemdir bárust. Ungmennin og foreldrar/forráðamenn þeirra voru upplýst um könnunina með bréfi áður en skólarnir voru heimsóttir. Þar var lýst tilgangi og framkvæmd rannsóknarinnar, hver framkvæmdi hana og for- eldrum veitt tækifæri til að hafna þátttöku ung- lingsins. Gefinn var kostur á að hafa samband við rannsakendur til að fá frekari upplýsingar. Ekkert foreldri hafnaði þátttöku barns síns. Sama aðferð var notuð 2001 og 2005-2006. Niðurstöður Útiloka varð 21 lista í könnun 2005-2006 þar sem svarendur voru ekki fæddir 1989. Endanleg úrtaksstærð var 396 og svarhlutfall 82%. Þegar könnun var endurtekin eftir fræðslu var viðbót- arbrottfall 70. Kynjahlutfall 2005-6 var 192 piltar og 204 stúlkur. Almennt um kynfræðslu Meirihluta unglinganna fannst að skólum bæri að veita kynfræðslu, fræðslu um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma. Unglingar 2005-2006 voru jákvæð- ari en 2001 gagnvart umræðu um samkynhneigð. Flestum fannst að kynfræðsla ætti að hefjast í 7. bekk og 97% að hún ætti að hefjast í 8. bekk eða fyrr. Ekki var marktækur munur á meðaltali svara milli 2001 og 2005-6 (t = 0,56; p = 0,57). í rannsókninni 2005-2006 merktu 81% við læknanema/hjúkrunarfræðinema þegar spurt var um aðila sem ætti að sjá um kynfræðslu. Þetta hlutfall var 58% 2001 og þá merktu fleiri við skóla- hjúkrunarfræðinga. Flestir töldu líklegra að um- ræður sköpuðust ef sá sem sæi um fræðsluna væri ókunnugur (77% fyrir fræðslu, 90% eftir fræðslu, p<0,001). Stúlkum fannst þetta mikilvægara en strákum (p<0,001). Hlutfall þeirra sem vildu að nemar sæju um fræðsluna jókst eftir fræðslu Ástráðs (p=0,002). Engar marktækar breytingar urðu fyrir og eftir fræðslu hvaða form ungling- arnir kusu; 59% vildu sameiginlega umræðuhópa, 43% umræðuhópa þar sem kynin eru aðskilin, 52% fyrirlestra og 62% myndbönd. í báðum heimsóknum vildu um helmingi fleiri stúlkur en strákar aðskilda umræðuhópa (p<0,001). Þegar spurt var hvaðan unglingar teldu sig hafa fengið mesta fræðslu merktu langflestir við skóla. Þar á eftir komu vinir og kunningjar og því næst fjölmiðlar og vefurinn. Mjög lítill hluti merkti við foreldra (mynd 1). Kynhegðun Árið 2005-2006 fannst 67% eðlilegt að 14-16 ára LÆKNAblaðið 2008/94 455
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.