Læknablaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR
Sigrún
Baldursdóttir
Sjúkraþjálfari
Lykilorð: vefjagigt,
börn, unglingar.
YFIRLITSGREIN
Vefjagigt í börnum og
ungmennum - yfirlitsgrein
Ágrip
Vefjagigt er algengt verkjaheilkenni sem er best
þekkt hjá fullorðnum og er fjórum sinnum algeng-
ara hjá konum en körlum. Helstu einkenni eru
útbreiddir stoðkerfisverkir, svefntruflanir, óeðlileg
þreyta og skert færni til daglegra athafna.
Á síðustu árum hafa menn áttað sig á að vefja-
gigt finnst einnig hjá bömum og ungmennum og
eru einkennin fjölþætt og svipar til einkenna vefja-
gigtar fullorðinna. Samkvæmt rannsóknum er
vefjagigt til staðar hjá 1,2-6,2% barna á grunn-
skólaaldri og líkt og hjá fullorðnum er heilkennið
algengara hjá stúlkum en drengjum. Vefjagigt
hefur umtalsverð áhrif á heilsu, daglega færni og
lífsgæði barna og ungmenna.
Greining vefjagigtar hjá börnum og ungmenn-
um byggir á tveimur skilmerkjum: Útbreiddum
stoðkerfisverkjum frá þremur líkamssvæðum í
minnst þrjá mánuði og jákvæðum kvikupunktum
á 5 af 18 stöðum.
Orsakir vefjagigtar eru ekki þekktar en líklegt
er talið að erfðir eigi þar einhvem þátt. Margir
þættir eru taldir geta komið sjúkdómsferlinu af
stað, meðal annars svefntruflanir, sálfélagslegir
þættir, ofhreyfanleiki og aðrir undirliggjandi sjúk-
dómar.
Rannsóknarniðurstöður sem liggja fyrir benda
til að draga megi úr einkennum vefjagigtar með
viðeigandi meðferð. Meðferð sem felst í fræðslu,
þátttöku sjúklings og foreldra hans, bættu svefn-
mynstri með eða án lyfjagjafar, líkamsþjálfun
og hugrænni atferlismeðferð hefur gefið góðan
árangur.
Inngangur
Vefjagigt er vel þekkt verkjaheilkenni hjá full-
orðnum, en á síðustu árum hafa menn áttað sig á
að það finnst einnig hjá börnum og ungmennum.
Þekkt er að margir fullorðnir vefjagigtarsjúklingar
rekja upphaf einkenna sinna aftur til bernsku. I
rannsókn Yunus og félaga (1) töldu 28% vefjagigt-
arsjúklinga að einkenni sjúkdómsins hafi byrjað í
barnæsku. Hér er gefin yfirsýn yfir hvað er vitað
um vefjagigt hjá börnum og ungmennum og
helstu meðferðarúrræði.
Yunus og Masi voru fyrstir til að lýsa vefjagigt
ENGLISH SUMMARY
Baldursdóttir S
Juvenile Primary Fibromyalgia Syndrome - Review
Fibromyalgia syndrome is known to cause significant
morbidity among adults characterised by widespread
musculoskeletal pain, stiffness, fatigue, non-restorative
sleep, cognitive dysfunction and diminished physical
function.
Although well-recognised in adults, the impact of the
syndrome in the paediatric population has only recently
been addressed. The estimated prevalence of juvenile
primary fibromyalgia syndrome (JPFS) is 1.2% - 6.2%.
Prevalence is higher in girls than boys, and peaks at
the time of puberty. JPFS is of unknown aetiology,
characterised by numerous symptoms that mimic the
symptoms of adult fibromyalgia syndrome, the most
prevalent being sleep disturbance, widespread persistent
musculoskeletal pain and fatigue. JPFS has a major
influence on health, physical function and quality of life.
The diagnosis of JPFS is based on the criteria defined
by Yunus and Masi (1985), which include generalised
musculoskeletal aching at three or more regions for at least
three months and at least five of eighteen typical tender
points. The precise cause of JPFS is unknown, but there
is an emerging understanding that the development of
this syndrome is related to many factors, such as genetic
and anatomic factors, disordered sleep and psychological
distress.
According to emerging studies, a multidisciplinary
treatment may be helpful in treating JPFS. Multicomponent
treatment that includes attendance by patient and parents,
sleep hygiene with or without medication, physical training
and cognitive behavioural therapy, is advocated.
Keywords: juvenile Primary Fibromyalgia Syndrome, children,
adolescent.
Correspondence: Sigrún Baldursdóttir, vefjagigt@vef]agigt.is
LÆKNAblaðið 2008/94 463