Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2008, Qupperneq 74

Læknablaðið - 15.06.2008, Qupperneq 74
HUGLEIÐING HÖFUNDAR T E I P TEIP Auður Ava Ólafsdóttir ■■n ■■■ Auður er fædd í Reykjavík 1958 og las ítalskar bókmenntir við háskólann íBologna 1978-1979. Lauk BA-prófi í sagnfræði og bókmenntum frá HÍ. Stundaði nám í listasögu við Sorbonne í París á árunum 1982-1988. Auður hefur kennt listasögu í HÍ og verið forstöðumaður Listasafns skólans frá 1997. Hún hefur unnið við myndlistarumfjöllun og gagnrýni fyrir útvarp og sjónvarp, sett upp myndlistarsýningar og skrifað greinar um listasöguleg efni. Skáldsögur Auðar eru Upphækkuð jörð (1998), Rigning í nóvember (2004) og Afleggjarinn (2007). ■■■ ■■■ Á dögunum hringdi í mig kona sem hafði lesið Afleggjara og spurði hvernig rithöfundi dytti í hug að skrifa skáldsögu um 22 ára strák með áhuga á rósarækt, kynlífi og dauða, um getnað í gróðurhúsi, stelpujesúbarn og matreiðslu á sinn- epshéra eða hvaðan væri annars ættuð þessi þrá- hyggjukennda leit höfundar að fegurð og tilgangi, hvernig fær maður viðlíka hugmyndir, spurði konan, ja héma og annað eins, hver er hvatinn, eða varstu ekki í fínu djobbi þegar þú kúventir og gerðist óþekkt skáld? Svarið er eftirfarandi: Það var límbandsrúlla sem gerði það að verkum að ég tók skáldskaparveikina eins og jóðsótt á einni nóttu og ákvað að verða rithöfundur. Við upphaf Persaflóastríðs, fyrsta stríðsins sem boðið var uppá í beirrni sjónvarpsútsendingu á íslandi og helst skyldu menn vaka alla nóttina til að missa ekki af leikslokum í áttafréttum CNN morguninn eftir, kviknuðu engu að síður fáeinar efasemdaraddir; hvað ef stríðið skyldi nú berast alla leið til eyjunnar okkar, hvað þá, er nokkur sjens að von sé á svo válegum tíðindum? „Ef menn hafa sýnt þá fyrirhyggju að kaupa límband, er ástæðulaust að hafa áhyggjur af yfir- vofandi stríðsátökum", var þá haft eftir íslenskum embættismanni og nú get ég ómögulega munað hver heimildamaður minn er þótt ég hafi soldið gramsað, en ég sé hann engu að síður fyrir mér í peysu með vaffhálsmáli og hárið enn ekki farið að grána, þannig að þetta hefur annaðhvort verið sjónvarpsviðtal eða grein í blaði með mynd, en það skiptir ekki máli, því boðskapurinn til þjóð- arinnar var skýr. Með því að líma límband "í kross yfir rúður" mætti koma í veg fyrir að menn skæru sig á öxl á glerbroti í loftárás. Þótt stæðir nakinn í miðju dúnhreiðrinu, var ástæðulaust að gera sér rellu ef þú áttir klístraða límbandsrúllu undir koddanum því um leið og þú sæir gult glampa- skin af fallandi SM ART sprengjum í garði nágrann- ans og fyndir lykt af bráðnuðu malbiki, sveipar þú um þig sloppi og segist aðeins ætla að skjótast fram og líma í kross yfir stofugluggann. Ekki var sérstaklega tiltekið hvaða tegund af límbandi væri æskilegt að nota, á mínu heimili er bara til þetta mjóa, glæra sem er aðallega notað til að pakka inn afmælisgjöfum til vina barnsins, þetta sem hefur tilhneigingu til að klofna niður í örmjóar ræmur. Ég var nýkomin til landsins eftir tíu ára dvöl erlendis og fyrstu viðbrögð mín voru þau að vilja ekki tilheyra þjóð sem hélt að stríð væri límbands- rúlla og til vara að stríð væri fótboltaleikur sem menn sætu yfir með flögur og bjór, þar til hermenn bönkuðu upp á og bæðu um leyfi til að mega skjóta. Síðan hugsaði ég með mér; ókei, ég get ekki breytt því að hafa fæðst á þessari eyju, þar er líka lóan, en ég ætla að verða rithöfundur og skrifa um reynslu mína af límbandsrúllu. Þá gæti ég líka dvalið samtímis á mörgum stöðum í einu, sitt á hvað skautað milli stríðshrjáðra heimshoma eða öslað um þúfnakarga og mýrarfláka, skipt um kyn og persónuleika eftir því sem skáldskap- urinn krefðist, ég myndi fjalla um háskaleiki eins og ástina og glás af því sem gerist í bilinu milli fæðingar og dauða, ég myndi stækka veröldina og færa fáránleika styrjalda inn í sálarkima söguhetj- anna og sýna fram á að maðurinn geti aðeins glímt við sjálfan sig og aðeins sigrað sjálfan sig, í heimi skáldsögunnar gæti allt gerst og ekkert væri ómögulegt. Jafnvel þótt höfundur væri sá eini sem vissi af því, þá lægi ósýnilegt gangvirki límbands- rúllunnar á bakvið allt saman, eins og ámirtning um tilgangslausa þjáningu mannsins. Og síðan sú vitneskja að maðurinn ætti sér þrátt fyrir allt líka hugsjónir. Því „ég hallast að því að maðurinn sé í eðli sínu, í stórum dráttum, góður og heiðarlegur, ef aðstæður leyfa." (Afleggjari) Og það er sama hvert viðfangsefnið kann að vera á yfirborðinu: ungur karlmaður sem heldur út í heim með þrjá rósaafleggjara í farteskinu og það markmið að koma í stand gömlum klausturgarði í órækt, kona sem talar of mörg tungumál og á líka of marga elskhuga og tekur að sér mállaust barn, fótalaus unglingsstúlka sem fer í fjallgöngu af því að hana dreymir um „að vera stödd fyrir ofan allt sem er fyrir neðan", karlmannleg viðkvæmni, veiðimenn, samband líkama og tungumáls, logn, suddi, að borða pylsu; á bakvið mörg lög af orðum lúrir ávallt vitneskjan um límbandið og spuming- in hvort hægt sé, þrátt fyrir heimsku mannanna, að auka á fegurð heimsins. Og þá getum við álykt- að eins og Jón Gurtnar Árnason myndhöggvari gerði þegar hann benti á að það mætti nota hníf til að skera brauð ekkert síður en mann. 510 LÆKNAblaðið 2008/94
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.