Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2008, Page 17

Læknablaðið - 15.11.2008, Page 17
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Aðgangur öryrkja og annarra þegna að eigin heilbrigðisupp- lýsingum og þjónustu á netinu Gyða1 Halldórsdóttir sérfræðingur í upplýsingatækni Ásta St. Thoroddsen2 hjúkrunarfræðingur Lykilorð: aðgengi, heilbrigðisupp- lýsingar, upplýsingatækni á heil- brigðissviði, notendur heilbrigð- isþjónustu, þjónusta á netinu. Rannsóknarverkefni í upplýs- ingatækni á heilbrigðissviði, unnið í samstarfi Háskóla íslands og Tryggingastofnunar ríkisins. ’Heilsuneti ehf., 2hjúkrunarfræðideild HÍ. Fyrirspurnir og bréfa- skipti: Gyða Halldórsdóttir, sjálfstætt starfandi verk- efnisstjóri. Sími: 895 0135. gyda@heilsunet. is Ágrip Tilgangur: Kanna skilning, viðhorf og óskir íslendinga um aðgang að eigin heilbrigðisupplýs- ingum og þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins á netinu. Tilgátur voru settar fram um mun á sjón- armiðum öryrkja og annarra þegna. Efniviður og aðferðir: Könnun með lýsandi sniði og póstsendur var spurningalisti til tveggja 700 manna hópa, 16 til 67 ára, völdum af handahófi: 1) öryrkja með >75% örorkumat og 2) annarra ís- lenskra þegna. Mælitækið var 56 spurningar, svör- un 34,9%. Lýsandi tölfræði var notuð til úrvinnslu, kíkvaðrat til samanburðar á hópum, öryggismörk fyrir marktækni miðaðist við 95%. Niðurstöður: Marktækt fleiri öryrkjar en aðrir þegnar höfðu skilning á eigin aðgangsréttindum. Viðhorf tengd áhrifum aðgangs voru á heildina jákvæð með marktækt fleiri öryrkja en aðra þegna jákvæða um gagnsemi, skilning á heilsufari, sam- skipti, ákvarðanatöku um meðferð og þjónustu, aðgang hjá Tryggingastofnun, viðhald sjúkra- skrár og að ráða aðgangi. Ályktanir: Rannsóknin, fyrsta sinnar tegundar á íslandi, styður niðurstöður fyrri rannsóknar- og þróunarverkefna sem lagt er til að nýtt verði sem fyrirmyndir þróunar á rafrænni heilbrigðis- þjónustu og sjónarmið heilbrigðisstarfsmanna könnuð. Áhrif gagnvirkra heilsufarskerfa á lífs- gæði, heilsufar og skilvirkni þjónustu á íslandi eru áhugavert rannsóknarefni. Inngangur Nútímaupplýsingatækni með rafrænum sam- skiptum mun óhjákvæmilega leiða til grundvallar- breytinga á heilbrigðisþjónustu verði aðgangur almennings að eigin upplýsingum og þjónustu að veruleika (1). Aðganginn ætti að vera hægt að tryggja hvar og hvenær sem er, ekki í stað þjónustu heldur til að bæta hana (2). Lögmál heilbrigðisþjón- ustu eru almannaheill og jöfnun lífskosta (1) og þar skiptir sköpum þekking og framsýni yfir- valda í örri þróun upplýsingatækni (3). íslensk lög tryggja almenningi rétt til heilbrigðisþjónustu og aðgangs að eigin heilbrigðisupplýsingum (4) og stjórnvöld leggja áherslu á rafrænt aðgengi heilbrigðis- og félagsþjónustu, þar með talið þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins (TR) (5). Upplýsingatækni notenda heilbrigðisþjónustu er sérsvið í þágu almennings með þann tilgang að styrkja sjálfshjálp og bæta lífsstíl (6). Gagnsemi, gæði og öryggi upplýsinga eru þar forgangsatriði (7), en ánægja notenda lykill árangurs. Komið hefur í ljós að nútímatölvunotendur afla sér upplýsinga og eru læsir á þær. Yfir 90% notenda telja sig eiga að hafa aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum (8, 9), rannsóknasvörum öðru fremur (10). Þeir vilja sjá eigin upplýsingar á netinu og telja, öfugt við lækna, ekki ástæðu til að óttast viðbrögð við óvæntum niðurstöðum, eftirfylgnin verði auðveldari ef hægt er að skrá samskiptin og skoða eftir á (11). Konur eru líklegri til að eiga rafræn samskipti vegna heilbrigðis- þjónustu (3), eru viljugri til þátttöku í rannsóknum (9,11), nota þjónustuna frekar og telja heilsutengd- ar upplýsingar gagnlegri en karlar (12). Rannsókn á viðhorfi til og óskum um þróun aðgangs að eigin sjúkraskrá (N=427, 41% svörun) sýndi að flestir þekktu aðgangsréttindin (77%), vildu stýra aðgangi (73%) og koma að viðhaldi eigin sjúkraskrár (61%) (8). Fjárhags- og félagslega illa staddir notendur hjá opinberri heilsugæslu í Colorado reyndust líklegri til að hafa gagn af aðgangi að eigin upplýsingum en betur settir not- endur einkaþjónustu. Mikill meirihluti áleit skiln- ing á eigin heilsufari aukast og undirbúning fyrir viðtöl við lækna betri. Um 65% höfðu aðgang að netinu heima eða í vinnu, marktækt hærra hlut- fall þeirra sem voru betur settir (83%, n=242) en verr staddir (54%, n=148) (p<0,001) (9). Rannsókn á áhrifum aðgangs að rafrænni sjúkraskrá á lang- tímameðferð geðsjúkdóma sýndi líka mjög jákvæð viðbrögð notenda (N=84) en viðhorf, skilningur og kvíði lækna, hjúkrunarfræðinga og stjórnenda varð samt fyrirstaða frekari þróunar (13). Ýmsar Evrópuþjóðir hafa nú þegar komið upp rafrænu samskiptaneti fyrir heilbrigðisþjónustu LÆKNAblaðiö 2008/94 729

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.