Læknablaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 48
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
HEILBRIGÐISSVIÐ HÍ
Hlakkar til að takast
á við nýja starfið
Það kom ýmsum á óvart að Sigurður Guðmundsson hefði verið
skipaður sviðsstjóri hins nýja heilbrigðissviðs Háskóla íslands.
Ekki vegna þess að hann ætti ekki fullt erindi í embættið, heldur
einfaldlega vegna þess að flestir töldu hann vera hæstánægðan í
embætti landlæknis. Aðspurður tekur hann sjálfur undir þetta.
Hávar
Sigurjónsson
„Það erfiðasta við að fara í nýja starfið verður
að hætta í núverandi starfi, það er bæði mjög
fjölbreytilegt og skemmtilegt. Það verður mjög
erfitt að fara héðan. Ég hef reyndar verið svo
heppinn að þegar ég hef skipt um vettvang hef ég
alltaf farið með mikilli eftirsjá úr fyrra starfi. Það
er auðvitað kostur í sjálfu sér að þykja starf sitt
skemmtilegt en ég hef alltaf verið mjög upptekinn
af þeirri hugsun að maður eigi ekki að vera of lengi
í sama starfi. Flestir missa kraftinn við að vera of
lengi á sama stað og á því eru fáar undantekingar
hefur mér sýnst."
Landlæknir í tíu ár
Sigurður hefur verið landlæknir í tíu ár og
segir að það hafi verið núna eða aldrei að
skipta um vettvang. „Skipunartími minn í
landlæknisembættið rennur út um núna í lok
nóvember og ég hefði vissulega getað sótt um
fimm ára skipun í viðbót. Þá hefði ég líklega klárað
starfsferilinn hér þar sem hæpið er að skipta um
starf kominn á miðjan sjötugsaldur. Ég hafði aldrei
ætlað mér að verða ellidauður hér. Mig langaði
einfaldlega til að takast á við eitthvað nýtt og leist
feikivel á sviðsstjórastarfið í háskólanum og ákvað
að láta slag standa og sækja um."
Sigurður stendur sumsé á sextugu og það eru
sannarlega ekki allir sem hafa hug á því að gera
gagngerar breytingar á starfshögum sínum á þeim
aldri. „Ég er bara svona gerður og hef líklega svona
takmarkaða athyglisgáfu að geta ekki enst í því
sama lengur en raun ber vitni. Sviðsstjórastarfið
er svo sannarlega ekki neitt eftirlaunastarf og það
verður áreiðanlega erfitt - það á að vera erfitt - en
ég er líka sannfærður um að það verður andskot-
anum skemmtilegra. Ég hlakka til að takast á við
það."
Það er auðvitað við hæfi að líta um öxl á
tímamótum og Sigurður kveðst mjög ánægður
með hvað áunnist hefur í embætti landlæknis
frá því hann tók við því. „Eflaust eru aðrir
en ég færari um að meta hvað hefur gerst á
þessum tíu árum. Þetta er mjög gamalt apparat,
verður 250 ára árið 2010 og hefur breyst mjög
mikið í aldanna rás. Embættið hefur stækkað
og er orðin verulega öflug stofnun með mjög
hæfu starfsfólki á mörgum sviðum. Verkefni
embættisins era fjölþætt og þeim hefur fjölgað
frá því ég tók við af miklum snillingum sem hér
vora á undan mér. Starfsmannafjöldinn hefur
líklega þrefaldast á undanförnum áratug. Draga
má þetta saman á einfaldan hátt þannig að mig
langaði til að efla embættið sem lýðheilsustofnun
en þróunin varð sú að samhliða fjölgun verkefna
landlæknisembættisins var Lýðheilsustöð sett
á laggirnar og ég skal viðurkenna að mér þótti
fýsilegra að þetta yrði ein stofnun fremur en
tvær en þetta varð niðurstaðan og ekkert nema
gott eitt um það að segja. Ég vildi einnig sjá
landlæknisembættið skerpa þríþætt hlutverk sitt.
í fyrsta lagi sem ráðgjafastofnun til opinberra
aðila, stjórnvalda fyrst og fremst, en einnig til
heilbrigðisstarfsmanna og almennings. í öðru
760 LÆKNAblaðið 2008/94