Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2008, Side 52

Læknablaðið - 15.11.2008, Side 52
UMRÆÐUR O G FRETTIR FORSETI WMA Skemmtilegt og áhugavert Segir Jón Snædal um forsetatíð sína hjá WMA „Þetta hefur verið bæði áhugavert og skemmtilegt því manni gefst tækifæri til að komast inn í ýmis málefni og kynnast starfsemi á vegum lækna og læknafélaga víða um heim, en viðfangsefnin eru okkur hér á íslandi stundum nokkuð framandi," segir Jón Snædal sem nú í október lét af embætti forseta Alþjóðasamtaka lækna WMA á ársfundi samtakanna í Seúl í Suður-Kóreu. Jón hefur gegnt embættinu í eitt ár en reyndar má segja að um þriggja ára skuldbindingu sé að ræða þar sem árið á undan er eins konar undirbúnings- tími og árið á eftir skilatími þar sem bæði verð- andi forseti og fráfarandi forseti hafa ákveðnum skyldum að gegna innan samtakanna. Engu að síður er hinn starfandi forseti höfuð samtakanna á hverjum tíma og mæðir mikið á honum þetta ár sem hann gegnir embættinu. Jón segir að undangengið ár hafi verið anna- samt og viðburðaríkt, mikil ferðalög hafi fylgt embættinu, en hlutverk forseta felst að miklu leyti í því að koma fram fyrir hönd samtakanna bæði „innávið og útávið" eins og hann orðar það. „Stærri læknafélögin óska gjarnan eftir nærveru forseta samtakanna á á aðalfundum sínum, má nefna bandaríska, breska, þýska og kanadíska læknafélagið, og ég hef farið á aðalfundi þessara félaga sem er mjög áhugavert og ýmislegt sem má af því læra. Fundarsköp eru yfirleitt mun strang- ari en við eigum að venjast, tímamörk eru mjög skýr og mönnum leyfist ekki að fara framyfir þau. Eitt sem mér þykir eftirbreytnivert er að þegar menn óska eftir að taka til máls um ákveðið efni þá tilkynna þeir strax hvort þeir ætli að tala gegn því eða með því. Mér þótti líka athyglisverð sam- þykkt kanadíska læknafélagsins að fyrrverandi formenn hefðu atkvæðisrétt, auk málfrelsis og til- löguréttar, á aðalfundum félagsins í fimm ár eftir að formennsku þeirra lýkur. Hugsunin er að nýta reynslu þeirra og þekkingu enda hafa þeir yfirleitt langa reynslu af störfum í þágu félags síns." Jón segir að læknafélögin beiti aðalfundum félagsins markvisst til að koma skoðunum lækna á ýmsum málefnum á framfæri við samfélagið. „Þetta finnst mér að við ættum að taka upp á mun markvissari hátt en verið hefur. Gott dæmi af síð- asta aðalfundi LÍ var ályktunin um tóbaksvarnir en við gætum gert þetta markvissara með því að taka fyrir ákveðið málefni og rætt það ítarlega á fundinum, með fyrirlestrum sérfræðinga og vand- aðri undirbúningsvinnu. Efni sem læknar gætu tekið fyrir á þennan hátt eru auk tóbaksvarna umferðarslys, offita, fíkniefnaneysla og hvaðeina sem eru stór mál í samfélaginu. Aðalfundur LI er langbesti vettvangurinn til þess arna og við ættum að nota hann miklu meira en við höfum gert." Siðfræði í rannsóknum Eitt af hlutverkum forsetans er að kynna sér að- stæður og starfsemi læknafélaga sem óska eftir inngöngu í WMA. „Ég heimsótti Læknafélag Albaníu í þessum tilgangi og ræddi við forsvars- menn þess um hvernig WMA gæti stutt við bakið á þessu unga félagi sem er að koma sér áfram í samfélagi sem reist var úr rústum fyrir ekki svo löngu. Ég hef farið í fleiri slíkar heimsóknir sem eru mjög skemmtilegar og lærdómsríkar því þá kynnist maður náið þeim málefnum sem brenna á félögunum." Jón hefur um árabil verið einn helsti ráðgjafi Læknafélags íslands um siðfræði lækna og er formaður siðanefndar félagsins. Störf hans á þessu sviði hafa aflað honum viðurkenningar bæði heima og heiman og átti stóran þátt í að eftir kröftum hans var sóst í embætti forseta WMA. Læknafélag Islands sýndi þakklæti sitt í verki með því gera Jón að heiðursfélaga LÍ á aðalfundi sínum þann 27. september. „Alþjóðalæknasamtökin byggja siðfræði sína um rannsóknir á mönnnum á Helsinkiyfirlýsing- unni svokölluðu sem gerð var 1964 og endurskoð- uð reglulega, síðast árið 2000 en hún hefur verið í endurskoðun undanfarin tvö ár og ég hef tekið þátt í þeirri vinnu. Til að fá sem breiðasta yfirsýn hafa verið haldin þrjú þing um yfirlýsinguna í jafnmörgum heimsálfum og ég hef sótt tvö þeirra. Það sem nú er verið að taka fyrir er siðfræði farald- ursfræðilegra rannsókna og rannsóknir á hópum sem eiga í einhverjum skilningi undir högg að sækja og getur verið varhugavert að rannsaka af 764 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.