Læknablaðið - 15.11.2008, Page 67
UMRÆÐUR OG
LYFJAFRAMLE
F R É T T I R
I Ð E N D U R
Gegnsæjar siðareglur
skipta höfuðmáli
„Frumtök eru samtök frumlyfjaframleiðanda og að þeim standa 18
fyrirtæki, 17 erlend og eitt íslenskt, íslensk erfðagreining. Erlendu
fyrirtækin eru hin stóru alþjóðlegu lyfjafyrirtæki sem flestir
þekkja. ÍE er þarna inni þrátt fyrir að það sé ekki lyfjaframleiðandi
í þeim skilningi en á þarna heima þar sem samtökin eru félag fyr-
irtækja sem öll byggja starfsemi sína á vísinda- og þróunargrunni,"
segir Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka.
Hávar
Sigurjónsson
í grunninn er tilgangur samtakanna tvíþættur
að sögn Jakobs Fals. „Annars vegar að verja
sameiginlega hagsmuni fyrirtækjanna gagnvart
stjómvöldum og koma fram fyrir hönd þeirra og
hins vegar að tala máli fyrirtækjanna gagnvart al-
menningi. Þar er ímyndarsköpun mjög mikilvæg
en einnig er viðbúið að upplýsingagjöf til almenn-
ings verði sífellt mikilvægari, til dæmis að upplýsa
fólk um hættur af lyfjafölsunum og síðast en ekki
síst að viðhalda og auka skilning á gildi rannsókna
og þróunar lyfja fyrir samfélagið."
I vor kynntu Frumtök nýjar siðareglur sam-
takanna sem snúa fyrst og fremst að samskiptum
lyfjafyrirtækjanna við lækna.
„Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru í senn
mjög mikilvæg og viðkvæm. Þær siðareglur
sem farið hefur verið eftir em frá árinu 2004 og
byggja á sameiginlegum grunni samkomulags
Evrópskra læknasamtaka og lyfjaframleiðenda.
Lyfjafyrirtækin stigu síðan einu skrefi lengra upp
á sitt eindæmi núna í vor með því að herða enn
frekar á siðareglunum. Þetta er því viðbót við
þann grunn sem fyrir var."
Aukinn þrýstingur um gegnsæi samskiptanna
Voru einhverjar ástæður fyrir því að fyrirtækin stigu
þetta skref?
„Það má alltaf gera betur og þrýstingur frá
samfélaginu hefur farið vaxandi um að þessi sam-
skipti séu algerlega gegnsæ og uppi á borðinu.
Okkur finnst þessi krafa sjálfsögð og viljum að
samskiptin séu hafin yfir allan vafa. Leiðarljósið
í siðareglunum er hins vegar mjög einfalt; að það
stangist ekki á við heilbrigða skynsemi hvernig
samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja er háttað."
Jakob segir að vissulega hafi ýmislegt orðið
til þess í samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja á
árum áður sem hvatti til setningar skýrra reglna.
„Það vita það allir sem starfað hafa í þessari grein
að það er ýmislegt í fortíðinni sem enginn er sér-
staklega hreykinn af. Það er hins vegar að baki
LÆKNAblaðið 2008/94 779