Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 4

Læknablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 4
Frágangur fræðilegra greina Höfundar sendi tvær gerðir handrita til ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu samþykkir lokaformi greinar og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvö- földu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, lykilorð á ensku og íslensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og myndir skulu vera bæði á ensku og íslensku. Tölvuunnar myndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýta myndir úr PowerPoint eða af netinu. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: www.laeknabladid.is/fragangur- greina Umræðuhluti Skilafrestur efnis í næsta blað er 20. hvers mánaðar nema annað sé tekið fram. 316 LÆKNAblaðið 2010/96 EFNISYFIRLIT RITSTJÓRNARGREINAR Ástríður Stefánsdóttir Það sem að mér snýr; um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis Látum þann sannleika sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birtir verða okkur að nauðsynlegum lærdómi og að eindreginni hvatningu til að verða betri. 319 Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir Lærdómur lækna af efnahagshruni Fagmennska var það gildi sem tróndi efst eftir þjóðfund 321 lækna. ( því felst meðal annars að kunna sín fræði og stunda starf sitt í samræmi við þau. FRÆÐIGREINAR Eyrún Baldursdóttir, Lárus Jónasson, Magnús Gottfreðsson 323 Hin mörgu andlit geislagerlabólgu: Faraldsfræðileg rannsókn á íslandi 1984-2007 Geislagerlabólga (Actinomycosis) er fágæt sýking. Hana orsaka gram-jákvæðar og loftfælnar/ smáloftsæknar bakteríur af ættkvíslinni Actinomyces spp. Ágúst Ingi Ágústsson, Kristín Jónsdóttir, Jens A. Guðmundsson Fóstureyðing með lyfjum. Fyrstu 246 meðferðirnar á íslandi Alls gengust 1417 konur undir fóstureyðingu á Landspítala á rannsóknartímabilinu sem spannaði 18 mánuði og voru fóstureyðingar með lyfjum 17,4% þeirra (246). Fyrstu 5 mánuðina fóru aðeins 3,9% í slíka fóstureyðingu en síðan varð aukning þeirra sem kusu lyfjameðferð. Steinar Björnsson, Jóhann Ág. Sigurðsson, Alma Eir Svavarsdóttir, Gunnar Helgi Guðmundsson 335 Tilvísanir til hjartalækna. Viðhorf hjartasjúklinga og samskipti lækna Árið 2006 varð greiðsluþátttaka sjúkratrygginga háð tilvísun heimilislækna til hjartalækna. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf sjúklinga til þessa tilvísanakerfis og hvort breytingin hafi leitt til aukinna samskipta í formi tilvísana og læknabréfa. Arndís Auður Sigmarsdóttir, Árni V. Þórsson, Gunnlaugur Sigfússon, Jón Jóhannes Jónsson, Ragnar Bjarnason 343 Sjúkratilfelli - lífshættulegar truflanir á blóðsöltum hjá 8 vikna dreng Drengurinn var með brenglanir á blóðsöltum vegna þvagfærasýkingar og bakflæðis. Sjúkratilfellið er mikilvæg áminning um að alvarleg þvagfærasýking hjá ungum börnum getur verið einkennalítil og sýnir gildi þess að athuga blóðsölt hjá börnum með óijós einkenni. Hallgerður Lind Kristjánsdóttir, Sigrún Perla Böðvarsdóttir, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir Sheehan heilkenni - sjúkratilfelli og yfirlit 348 Sheehan heilkenni er heiladingulsbilun sem verður hjá móður eftir barnsburð. Einkennin fara eftir því hvaða hormónaöxlar skaðast. Algengast er að konur mjólki ekki og hafi ekki tíðablæðingar. Kristján Dereksson, Þráinn Rósmundsson, Kristján Óskarsson, Tómas Guðbjartsson Tilfelli mánaðarins 353
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.