Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 23

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 23
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Tilvísanir til hjartalækna. Viðhorf hjartasjúklinga og samskipti lækna Steinar Björnsson1’2 í sérnámi í heimilislækningum Jóhann Ág. Sigurðsson23 heimilislæknir Alma Eir Svavarsdóttir1 heimilislæknir Gunnar Helgi Guðmundsson1 heimilislæknir Lykilorð: tilvísanir, tilvísanakerfi, heimilislæknar, samskipti lækna. ’Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Efstaleiti, 2heimilislæknisfræði/ læknadeild HÍ, 3Þróunarstofu heimilislækninga Þönglabakka 1, Reykjavík. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Steinar Björnsson, heilsugæslunni Efstaleiti 3, 103 Reykjavík. steinarbjorns@gmail. com Ágrip Inngangur: Árið 2006 varð greiðsluþátttaka sjúkratrygginga háð tilvísun heimilislækna til hjartalækna. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf sjúklinga til þessa tilvísanakerfis og hvort breytingin hafi leitt til aukinna samskipta í formi tilvísana og læknabréfa. Efniviður og aðferðir: Árið 2007 var gerð rann- sókn á tilvísunum frá heimilislæknum Heilsu- gæslurtnar Efstaleiti, Reykjavík, til sérfræðinga í hjartasjúkdómum. Skoðað var samskiptaform alls 344 einstaklinga sem fengu tilvísun til hjartalækna á tímabilinu 1. júní 2006 til 1. apríl 2007. Þar af samþykktu 245 að taka þátt í viðhorfskönnun um aðdraganda tilvísunar, viðhorf til þessa fyrirkomulags, kostnaðar og fyrirhafnar. Svör bárust frá 209 (85%). Úr sjúkraskrá stöðvarinnar voru jafnframt fengnar upplýsingar um fjölda samskipta hjartasjúklinga við heilsugæslustöðina og fjöldi læknabréfa á tímabilinu 2005 til 2007. Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var 72 ár og kynjahlutfall jafnt. Níutíu prósent (95% öryggisbil 85,7-93,9) töldu að tilvísanir leiddu til meiri fyrirhafnar og eða auka kostnað. Áttatíu og níu prósent (95% öryggisbil 85,1- 93,5) töldu að hjartalæknir ætti að senda heimilislækni læknabréf. Heildarfjöldi læknabréfa frá hjartalæknum á stofu til heimilislæknanna jókst úr 43 árið 2005 í 326 yfir allt árið 2007. Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að tilkoma tilvísanakerfis hafi vakið óánægju meðal sjúklinga. Tilvísanakerfi leiðir hins vegar til faglegs ávinnings með gagnkvæmri miðlun þekkingar fagaðila um sjúklinga sína sem er í samræmi við óskir þeirra sjálfra og líklegt til að auka gæði þjónustunnar. Inngangur Enda þótt heilbrigðisþjónusta hafi tekið gríð- arlegum breytingum á síðustu áratugum ber flestum fræði- og áhrifamönnum á sviði heil- brigðismála saman um að frumheilsugæslan (primary health care) sé enn aðalburðarásinn í heilbrigðisþjónustunni, þar sem fyrstu samskipti læknis og sjúklings fara að jafnaði fram.1' 2 Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að heilsugæslan getur sinnt um 90% allra vandamála sem fólk leitar með til heilbrigðisþjónustunnar og gegna heimilislæknar þar lykilhlutverki.3"6 Þeir eru jafnframt faglegir ráðgjafar sjúklinga sirtna um hvert skuli leita utan heilsugæslunnar þegar það á við.2' 3' 7' 8 I slíkum tilvikum vísa þeir skjólstæðingum sínum til sérgreinalækna til frekari greiningar eða úrvinnslu. Tilvísunum er gjarnan fylgt úr hlaði með faglegum upplýsingum úr fyrri sögu og síðan ætlast til þess að viðkomandi sérgreinalæknir svari viðkomandi starfsfélaga með greinargerð um athuganir sínar og niðurstöður. Samskiptum af þessu tagi hefur víða verið komið í ákveðinn farveg sem í daglegu tali nefnist tilvísanakerfi. Sérgreinalæknar fá þá greiðslu frá sjúkratryggingum ríkisins fyrir unnið verk og læknabréf til heimilislæknis. Tilgangur tilvísanakerfis getur einnig verið að draga úr kostnaði og stytta biðtíma til sérgreinalækna. Frá faglegu og fjárhagslegu sjónarmiði heil- brigðisyfirvalda hefur tilvísanakerfi tengt greiðsluþátttöku sjúkratrygginga verið notað til að efla faglega vinnu og til að stýra slíku flæði.9'10 í mörgum nágrannalanda okkar er almenn tilvísanaskylda, þar sem sjúklingum er vísað frá heimilislækni til viðkomandi sérgreinalæknis og sérgreinalæknir sendir síðan sérfræðiálit sitt til baka. Misjafnt er hvernig slíkum kerfum er tekið af leikum sem lærðum.1114 Almennt má segja að þar sem framboð á sérgreinalæknum er gott og biðtími stuttur er oftar óánægja með tilvísanakerfi og þar virðist slíkt fyrirkomulag síður draga úr kostnaði eins og til er ætlast.11'13-14 Fagleg staða heimilislækna er talin sterkari þar sem tilvísanir eru notaðar.3'7'11 Ailt frá upphafi almannatrygginga árið 1936 voru þar ákvæði um tilvísanir lækna.10,15 Árið 1984 urðu þáttaskil á þessum ákvæðum en þá var með lögum felld úr gildi sú krafa að greiðsluþátttaka sjúkrasamlags til samlagsmanna skyldi háð til- vísun!6 Ákvæðið gilti í eitt ár til reynslu, en var síðan framlengt. Endanleg niðurfelling tilvísana var síðan samþykkt með lögum árið 1989.10-17 Eiginlegt tilvísanakerfi hefur því ekki verið við LÆKNAblaðið 2010/96 335

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.