Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 52

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 52
U M R Æ Ð A B R É F T I L R 0 G F R É T T I B L A Ð S I N S R Herbalifevörur og íslensk sjúkratilfelli Leonard Goldstein MD, meðlimur í bandarísku læknasamtökunum (American College of Physicians), lyflæknisfræði/lifrarfræði Department of Transplantation Services Ronald Reagan UCLA Medical Center 100 UCLA Medical Plaza Suite 220 Los Angeles, CA 90095 Ezra Bejar M.S., Ph.D. Lyfjafræði Y. Steven Henig M.S., Ph.D. Matvælafræði Herbalife International, 990 West 190th St. Torrance, CA 90502, USA ezrab@herbalife. com Bejar og Henig eru starfsmenn Herbalife og Goldstein hefur sinnt ráðgjöf fyrir fyrirtækið. Ritstjórn Læknablaðsins hyggst ekki veita rými fyrir frekari skoðanaskipti þessara aðila á síðum blaðsins. Útdráttur Ekki verða greind tengsl á milli Herbalifevara eða íðefna þeirra og eitrunarlifrarbólgu í fimm sjúkratilfellum sem lýst var í grein Magnúsar Jóhannssonar o.fl. Undanskilja hefði átt tilfelli nr. 4 vegna samhliða lyfjatöku og skorts á stýrðri endurtöku. Aðrar mögulegar orsakir eru fyrir hinum tilfellunum fjórum. Aðeins einn sjúklingur af fimm neytti annarrar vörurtnar sem tilgreind var sem mögulegur orsakavaldur. Herbalifevörur innihalda ekki kava, ma huang, krossgras eða hóffífil. Vatnsseyði af grænu tei og viðarkola- síað aloe hlaup eru eingöngu notuð í öruggum skömmtum. Nýlega birtist grein eftir Magnús Jóhannsson og fleiri um fimm tilfelli lifrarsjúkdóma á íslandi á 10 ára tímabili.1 Því er haldið fram að sjúkdómstilfellin megi rekja til viðbragða við neyslu Herbalifevara. Samkvæmt RUCAM viðmiðum voru orsakatengsl talin líkleg í þremur tilfellum og möguleg í tveimur. Orsakatengsl á grundvelli viðmiða WHO voru metin örugg í einu tilfelli, líkleg í tveimur og möguleg í tveimur. í okkar úttekt á þessum tilfellum á grunni WHO viðmiðananna eru tvö af þessum tilfellum útilokuð þar sem sjúklingamir tóku einnig fjölmörg önnur lyf og fæðubótarefni. Þá eru eftir þrjú tilfelli á 10 ára tímabili, þar sem tvö tilfelli eru aðeins flokkuð sem möguleg. Þriðja tilfellið (nr 4) hefði mætt skilyrðum fyrir því að orsakatengslin teldust ótvíræð, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þegar einkennin komu fram tók viðkomandi einstaklingur einnig lyf sem vitað er að getur valdið aukaverkunum í lifur og samhliða endurtöku Herbalife tók hann einnig birkiösku. Ekki er hægt að segja að um örugg orsakatengsl sé að ræða í þessu tilfelli þar sem ekki fór fram stýrð endurtaka á þekktu eiturefni. Hugsanlegt er að margháttuð víxlverkun, þar með talið af völdum sjálfsónæmis, mismunandi efnaskipta eða annarra ástæðna, komi við sögu í þeim fáu tilfellum sem fjallað er um í greininni. Sérfræðingar í lifrarsjúkdómum eru sammála um að í um helmingi slíkra tilfella finnist engin skýring. Höfundar greinarinnar taka sjálfir fram að í fjórum tilfellanna gætu einnig verið aðrar útskýringar á einkennunum. Ennfremur segja höfundar að flestar Herbalife- vörur séu hefðbundin matvæli. Því kemur sú ályktun þeirra á óvart að líklegt sé að notkun á Herbalifevörum tengist eitrunarlifrarbólgu. Þó er það staðreynd að engin þekkt eiturefni er að finna í Herbalifevörum og ef lifrarbólgu mætti rekja til eituráhrifa frá Herbalife væru margfalt fleiri tilvik komin fram. Eftir að hafa kynnt okkur þessi tilfelli er niðurstaða okkar að mikill vafi leiki á því að hægt sé að draga þá ályktun að Herbalifevörur séu eitraðar eða ástæða þeirra sjúkdómstilfella sem greinin fjallar um. Þau viðmið sem almennt eru viðurkennd til að hægt sé að tala um orsakatengsl vegna lifrarsjúkdóma og vísað er til í greininni í Læknablaðinu voru mótuð með það fyrir augum að skoða eitrun í lifur af völdum lyfja þegar sértækt og skilgreint íðefni hefur verið greint. Viðmiðunum var ekki ætlað að meta áhrif fjölbreyttra matvæla, fæðubótarefna og næringarvara, hvorki samsettra né í heild sinni. Auk þess hefur verið bent á að RUCAM-aðferðin sé aðeins í meðallagi áreiðanleg og mælt með því að þróaðar yrðu aðrar og betri aðferðir, til að meta orsakatengsl á nákvæmari hátt.2 Niðurstaða greinarinnar í Læknablaðinu um að telja verði líklegt að notkun á Herbalifevörum tengist eitrunarlifrarbólgu, er einfaldlega ekki studd rökum. Höfundar greinarinnar í Læknablaðinu segja að flestir þeirra sem fjallað er um í greininni hafi tekið sömu vörurnar, RoseOx og Herbalifeline. Aðeins var greint frá notkun Herbalifeline í einu tilfelli. Höfundarnir tilgreina einnig fjölda jurta sem tengjast lifrarskaða, þar með taldar kava kava, ma huang, krossfífil og hóffífil, en engar þessara plantna eu í vörum Herbalife. Sumar Herbalife- vörur innihalda vatnsseyði úr grænu te og efni úr aloe, sem unnið er úr aloe-hlaupi sem síað hefur verið í gegn viðarkol. Um er að ræða íðefni sem notuð eru í fjölda matvara. í engu þeirra tilfella sem fjallað er um í greininni í Læknablaðinu er greint frá neyslu Herbalifevara sem innihalda aloe. Sumar Herbalifevörur innihalda íðefni í mjög litlu magni, sem í einstökum rannsóknum hafa verið talin tengjast lifrarskemmdum við um- talsvert hærri neysluskammta en finna má í vörum Herbalife. Ekkert bendir til þess að neysla á svo litlu magni íðefnanna valdi lifrarskemmdum í mönnum og engin ástæða er til að hafa áhyggjur af öryggi þegar þeirra er neytt í því magni sem er að finna í vörum Herbalife. Fáein tilfelli skertrar lifrarstarfsemi hafa verið tengd neyslu barna á negulolíu.3 Dagsskammtur af RoseOx inniheldur 364 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.