Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 53

Læknablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 53
UMRÆÐA O G FRÉTTIR BRÉF TIL BLAÐSINS 5 mg af negulblómadufti sem er um 15% negulolía.4 Það er því minna en eitt milligramm af negulolíu í ráðlögðum dagsskammti. í hverri töflu af Herbalifeline er einnig um eitt milligramm og að hámarki níu milligrömm af neguldufti í ráðlögðum dagsskammti. Ekki er mælt með þvi að böm neyti RoseOx né Herbalifeline. Mörg þúsund ára reynsla er af öruggri neyslu græns tes sem heits drykkjar í Asíulöndum. Nýlegar rannsóknir tengja eitrunarlifrarbólgu við vörur sem innihalda seyði af grænu tei sem útbúið er með leysi og inniheldur aukið magn af EGCG.5 Thermojetics ThermoCo inniheldur lítið magn af vatnsseyði af grænu tei sem staðlað er miðað við 13% styrk catechins. Það inniheldur ekki aukið magn af EGCG og er því talið hættulaust. í Herbalifevörum eru íðefni úr jurtaríkinu aðeins til staðar í lágum styrk sem metinn er öruggur. Það eru engar óskilgreindar eða ótilgreindar jurtir í þessum vörum, eins og gefið var til kynna í greininni í Læknablaðinu. Lækninum sem rannsakaði málin var veittur aðgangur að vöruupplýsingum um allar Herbalifevörur sem seldar eru á Islandi, þar með talið þeirra sem innihalda plöntuafurðir. Sama máli gegnir um óháðar rannsóknir á hreinleika og gæðum varanna. I rannsóknum hefur ekki fundist skordýraeitur, kava eða pyrrolizidine alkalíðar í Herbalifevörum og greinanlegur vottur okratoxíns, aflatoxíns og þungmálma er undir lágmarksviðmiðum. Herbalife leggur, sem ábyrgur framleiðsluaðili, hér eftir sem hingað til áherslu á alhliða og opið samstarf um mat á öllum mögulegum aukaverkunum af neyslu Herbalife- vara. Hlutlæg rannsókn á þessum tilfellum styður það hins vegar ekki að það séu orsakatengsl á milli nokkurrar Herbalifevöru eða íðefna þeirra við eitrunarlifrarbólgu. Iðefni úr plönturíkinu er að finna í Herbalife- vörum í magni sem hættulaust er að neyta, þau búa yfir andoxunareiginleikum og styðja við eðlilega virkni líkamans og þau eru tilgreind í merkingum í samræmi við öll gildandi lög. Þessi íðefni eru ólík lyfjum, sem eru hreinsuð, virk efnasambönd, sem gefin eru í stærri skömmtum til þess að ná fram klínískum áhrifum. Hins vegar innihalda vörur Herbalife fjölda næringarefna sem styðja við heilbrigðan lífsstíl á grundvelli jafnvægis í næringu og líkamlegri virkni. Fyrirtækið markaðssetur hvorki vörur sínar, né mælir með því þær séu notaðar sem lyf við ákveðnum sjúkdómum. Heimildir 1. Jóhannsson M, Ormarsdóttir S, Ólafsson S. Lifrarskaði tengdur notkun á Herbalife 2010; 96:167-72. 2. Rochon J, Protiva P, Seef LB, et al. Reliability of the Roussel Uclaf Causality Assessment Method for assessing causality in drug-induced liver injury. Hepatology 2008; 48:1175-83. 3. Jellin JM, Gregory P, Batz F, et al. ritstjórar. Natural Medicines Comprehensive Database. Stockton, CA: Therapeutic Research Faculty; 2009. 4. Evrópuráðið. European Pharmacopeia 5.0, Vol. 2. Evrópuráðið, Strassborg 2004. 5. Sarma DN, Barrett ML, Chavez ML, et al. Safety of green tea extracts: a systematic review by the US Pharmacopeia. Drug Saf 2008; 31: 469-84. Svar við athugasemdum um Herbalife í þessu hefti Læknablaðsins eru athugasemdir frá talsmönnum Herbalife um grein okkar „Lifrarskaði tengdur notkun á Herbalife" sem birtist í marshefti Læknablaðsins á þessu ári.1 Við gerum eftirfarandi athugasemdir við þessa umfjöllun. A árunum 2007 og 2008 birtust greinar í virtum tímaritum frá Sviss, Israel og Spáni þar sem lýst var samanlagt 28 tilfellum af eitrunarlifrarbólgu sem talin voru tengjast neyslu vara frá Herbalife. I umræddri grein okkar var lýst 5 tilfellum til viðbótar þannig að þau eru orðin 33 talsins. í öllum þessum fjórum löndum var beitt sambærilegum aðferðum og niðurstaðan var sú sama, talið var líklegt að Herbalife væri orsakavaldurinn. Talsmenn Herbalife gerðu athugasemdir við greinarnar frá Sviss og ísrael2 sem voru að mestu leyti sams konar og hér eru birtar en þeim athugasemdum var svarað í sama hefti tímaritsins. Mat á orsakatengslum áreitis (t.d. lyfs eða fæðubótarefnis) og aukaverkana er flókið mál og til að gera slíkt mat áreiðanlegra hafa verið þróaðar aðferðir sem eru almennt viðurkenndar meðal fræðimanna. Þær aðferðir sem einna mest hafa verið notaðar eru kenndar við WHO og RUCAM en síðarnefnda aðferðin er sérstaklega miðuð við lifrarskaða. Eðli málsins samkvæmt skiptir engu máli hvort hugsanlegur orsakavaldur er lyf eða fæðubótarefni. Þessar aðferðir byggja á gamalreyndum aðferðum við mat á orsakatengslum sem eiga sér aldagamla sögu en hafa þróast hratt síðustu 50 árin eða svo. Við mat okkar á orsakatengslum Herbalife og lifrarskaða var beitt þessum viðurkenndu aðferðum á eins faglegan hátt og framast var unnt. Niðurstöðurnar Magnús Jóhannsson læknir, prófessor í lyfjafræði Sif Ormarsdóttir meltingarlæknir Sigurður Ólafsson meltingarlæknir LÆKNAblaðið 2010/96 365
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.