Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2010, Síða 55

Læknablaðið - 15.05.2010, Síða 55
U M R Æ Ð A O G FRÉTTIR VERÐLAUN Anna Kristín Höskuldsdóttir mcS verðlaun sín. Ljósm: Inger H. Bóasson, Landspítali. Hvatningarverðlaun Jónasar Magnússonar 2010 Kári Hreinsson Tómas Guðbjartsson Þann 19.-20. mars síðastliðinn var í 12. sinn haldið sameiginlegt vísindaþing Skurðlæknafélags Is- lands (SKÍ) og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands (SGLÍ). SGLÍ átti 50 ára afmæli og nýtt aðsóknarmet var slegið, hátt í 400 manns mættu, læknar, hjúkrunarfræðingar og læknanemar. Kynnt voru rúmlega 50 vísindaerindi og sjö erlendir fyrirlesarar héldu fyrirlestra. Einn helsti viðburður þingsins var keppni um besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema. Þar öttu kappi fjórir deildarlæknar og tveir læknanemar. Hlutskörpust var Anna Kristín Höskuldsdóttir, læknanemi á fjórða ári, með verkefnið Meinafræðileg eitlastigun brjóstakrabba- meins við Landspítala 2000-2007 og hlaut því Hvatningarverðlaun Jónasar Magnússonar pró- fessors árið 2010. Ágrip erinda þingsins komu út sem fylgirit með Læknablaðinu og eru á heimasíðu blaðsins. Læknadagar 2011 Undirbúningur er hafinn fyrir Læknadaga sem haldnir verða á Nordica Hilton 24.-28. janúar 2011. Gengið verður frá stærstum hluta dagskrár í byrjun sumars og eru þeir sem vilja leggja til efni beðnir að senda hugmyndir að dagskráratriðum fyrir 20. maí nk. til Margrétar Aðalsteinsdóttur, Fræðslustofnun lækna, á netfangið magga@lis.is Nauðsynlegt er að fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að greiða kostnað fyrir erlendan fyrirlesara. LÆKNAblaðið 2010/96 367

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.