Læknablaðið - 15.07.2010, Page 3
Kandídatar vorið 2010
Þessi mynd er sumarboði - þetta er hluti af hópi kandídata, nýútskrifuð og með allt lífið framundan og
að rifna úr stolti. Hlutfall kynjanna á myndinni vitnar um breytta tíma. -1 hópnum er líka fólgin mynd
af fyrstu konunni sem innritaði sig í Háskóla íslands og sem jafnframt var sú fyrsta til að útskrifast
með embættispróf frá skólanum. Þetta var Kristín Ólafsdóttir sem lauk prófi árið 1917 úr læknadeild
og vann alla sína starfsævi sem læknir í Reykjavík. Félag kvenna í læknastétt fékk Guðmund Karl
Asbjörnsson til að mála myndina með tilstyrk Læknafélagsins. Myndin verður gjöf íslenskra lækna til
Háskóla íslands á 100 ára afmæli skólans árið 2011 og verður afhent við það tækifæri.
Á blaðsíðu 501 eru nöfn kandídatanna.
VS
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Ljósmynd af pottablómi í gluggakistu sem Katrin
Elvarsdóttir (f. 1964) tók af rælni fyrir nokkrum árum
kveikti hjá henni löngun til að segja sögu. Réttara sagt
nokkrar sögur, því í kjölfarið safnaði hún Ijósmyndum
í seriu sem hún kallar Equivocal - Margsaga upp á
íslensku. Verkið vannst hægt en örugglega á nokkurra
ára tímabili og víða um heim þar sem Katrín fann réttar
aðstæður. Hún lék sér að
því að vinna á keimlíkum
stöðum þannig að myndirnar
gætu allt eins virst úr einu og
sama húsinu. Sögupersónur
bættust við, sumir snúa
baki í áhorfendur en aðrir
horfa áleitnum augum beint í
augu þeirra. Að auki klæddi
Katrín ólíkar manneskjur á
mismunandi aldri í samskonar
föt og myndaði á svipuðum
stað þannig að það er eins
og sama manneskja sé
mynduð ung og gömul. Útkoman er heilsteypt sería um
40 mynda þar sem greina má gegnumgangandi þráð
en hver mynd tekur mann í ólíkar áttir í tíma og rúmi.
Endurtekningar skapa undirtón sem maður skynjar
ómeðvitað fremur en greinir augljóslega. Maður spyr sig
hvað gerðist áður en smellt var af og hvað á eftir, hvað
átti sér stað á milli tveggja mynda, hver er í aðalhlutverki
og stundum læðist að manni sá grunur að maður sjálfur
sé þátttakandi í frásögninni. Á forsíðu Læknablaðsins er
mynd ekki ósvipuð þeirri sem hratt atburðarásinni af stað
en þó tekin á öðrum stað og öðrum tíma. Ljósmyndin
Elliheimili, 2009, lætur lítið yfir sér, sýnir glugga sem
vísar út í garð þar sem fyrir er stórt tré, blúndugardínur
fyrir glugganum og burkni á
syllunni. Mörkin á milli þess sem
er fyrir utan og innan skarast
og einhver dularfull stemning
ríkir í hverdagslegri kyrrðinni.
Þess háttar smávægileg atriði
einkenna seríuna alla og það
sem ekki er sýnt verður ráðandi,
líkast því sem maður upplifir í
góðum taugatrylli í bíó. Katrín
lætur fegurð og óhugnað kallast
á og ýjar að atburðarás og
jafnvel átökum þrátt fyrir að sýna
mest megnis stöðugt ástand.
Hún hefur sýnt Ijósmyndirnar á tveimur sýningum í gallerí
Ágúst á Baldursgötu 12 árið 2008 og nú í vor 2010 en
fyrirhuguð er útgáfa bókar með myndunum öllum.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð .
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á
rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Editíon and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 455