Læknablaðið - 15.07.2010, Side 18
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Mynd 2. Tölvusneiðmynd
afbrjóstholi (þversnið)
sem sýnir 1,5 fýrirferð í
framanverðu miðmæti (ör),
rétt neðan við ósæðarboga.
þannig. Því var gerður efri bringubeinsskurður
(partial sternotomy). Fyrirferðin sást þá greinilega
í framanverðu miðmæti, vel afmörkuð frá um-
lykjandi fituvef (mynd 3). Frystiskurðarsvar í
aðgerð gaf til kynna að líklegast væri um góðkynja
kalkkirtilsæxli að ræða. Var greiningin síðar staðfest
með smásjárskoðun á vefjasýnum (mynd 4). Gang-
ur eftir aðgerð var góður og sjúklingurinn útskrif-
aðist tveimur dögum eftir aðgerð með eðlileg
kalkgildi í blóði. Þremur vikum frá aðgerð voru
liðeinkenni horfin og vitsmunageta eðlileg. Sjúk-
lingur er við góða líðan rúmu ári frá aðgerð og
bæði kalk- og kalkvakagildi í sermi eðlileg.
Umræður
Einkenni sjúklingsins má rekja til blóðkalks-
hækkunar vegna frumkomins kalkvakaóhófs.
Er þá um að ræða óeðlilega mikla seytrun á
kalkvaka (parathyroid hormone), sem ásamt
hormónunum kalsítónín og kalsítriol (l,25-(OH)2-
cholecalciferol) stýra magni kalks í blóði.1
Tilfellið sýnir ágætlega hversu fjölbreytileg
sjúkdómsmyndin getur verið, sem rekja má til
víðtæks hlutverks kalks í líkamanum. Kalk er
til dæmis nauðsynlegt fyrir boðskipti frumna,
taugaboð, vöðvasamdrátt, storkun blóðs auk
þess að vera eitt helsta byggingarefni beina.1,2
Engu að síður er frumkomið kalkvakaóhóf í dag
oftar en ekki greint án einkenna, eða í allt að
80% tilfella.3 Er þá hækkun á kalki oftast greind
í blóðprófum sem tekin eru við eftirlit vegna
óskyldra sjúkdóma.4-5
Einkenni kalkvakaóhófs má rekja til hækkunar
á kalki og kalkvaka í blóði. Einkenni nýmasteina
eru algengust og sjást hjá um 15-30% sjúklinga.1-4
í þessu tilfelli var þvagskoðun eðlileg og sjúkling-
ur ekki með sögu um nýrnasteina. Kraftleysi og
þreyta voru hins vegar áberandi, en slík einkenni
sjást hjá stórum hluta sjúklinga.3'6-8 Stirðleiki í
liðum og jafnvel liðbólgur koma fyrir3 og eru
þessir sjúklingar því stundum taldir hafa gigtsjúk-
dóma. Beinþynning er þekktur fylgikvilli frum-
kominnar kalkvakaofseytingar og beinbrot sem
afleiðing hennar.1-3- 6 Geðræn einkenni eru vel
þekkt, sérstaklega þunglyndi og kvíði.3,10 Einnig
hefur verið lýst geðrofa og ruglástandi, og eins og
í þessu tilfelli skertri vitsmunagetu og gleymni.3'
10 Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á
hærri dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúk-
dóma hjá sjúklingum með alvarlegt frumkomið
kalkvakaóhóf.11 Astæðan er ekki að fullu þekkt
en frumkomið kalkvakaóhóf hefur verið tengt
áhættuþáttum fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Ber
þar helst að nefna háþrýsting en einnig hefur í
sumum rannsóknum verið sýnt fram á aukna
tíðni skerts sykurþols og blóðfituraskana.11 Stækk-
un vinstri slegils er einnig algengari hjá þessum
sjúklingum.12
Mynd 3. Mynd úr
aðgerð. ígegnum efri
bringubeinsskurð má
greinilega sjá æxlið í
miðmætinu (ör). Neðst
á myndinni sést í
hálsskurðinn.
Mynd 4. Frumuríkur kalkkirtilsvefur sem er gerður af
höfuðfrumum (chief cells) hægra megin á myndinni og
sýrusæknum frumum (oxyphil cells) sem litast rauðar vinstra
megin á myndinni.
470 LÆKNAblaðiö 2010/96