Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 55
U M R Æ Ð A
N Ý R
O G FRÉTTIR
LANDSPÍTALI
Guðrún Ágúststdóttir
formaður dómnefndar og
Álfheiður Ingadóttir heil-
brigðisráðherra afhjúpa
vinningstillögu SPITAL.
Mynd: Hreinn Magmtsson.
Nýr Landspítali
Stakkur sniðinn að vexti
Hávar
Sigurjónsson
Gagngerar breytingar hafa orðið á áætlunum
varðandi byggingu nýs spítala á Landspítalalóðinni
við Hringbraut frá því að verkefninu var
upphaflega hleypt af stokkunum með fögrum
fyrirheitum í skjóli góðæris. Þann 9. júlí í sumar
voru kynnt úrslit í samkeppni um áfangaskipt
heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við
Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja
spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Tillaga
hönnunarteymisins SPITAL varð hlutskörpust.
„Nú hillir undir að framkvæmdir hefjist við
eitt metnaðarfyllsta verkefni heilbrigðiskerfisins
um langa hríð," sagði Álfheiður Ingadóttir
heilbrigðisráðherra við þetta tækifæri. Hún
sagði að bygging nýs Landspítala hafi verið í
burðarliðnum um árabil og áformin tekið miklum
breytingum á þeim tíma. Mestu hafi munað um
efnahagshrunið haustið 2008 en í kjölfarið hafi
þurft að endurskoða öll fyrri byggingaráform.
„Fyrir vikið er sú hugmynd sem hér er kynnt
talsvert smærri í sniðum og ekki eins ríkmannleg
og lagt var upp með á tímum ofþenslu. Stakkur
hefur verið sniðinn eftir vexti," sagði ráðherra.
f SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni
Snæbjömsson arkitekt, Kanon arkitektar,
Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla
verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult.
Ein af meginforsendum hönnunarsamkeppninnar
var að flytja starfsemi Landspítala í Fossvogi að
Hringbraut og ljúka þannig sameiningu stóru
spítalanna á höfuðborgarsvæðinu. Samkeppnin
var tvíþætt, annars vegar tillaga að áfangaskiptu
skipulagi Hringbrautarlóðarinnar og hins vegar
tillaga að frumhönnun 1. áfanga verkefnisins,
sem samanstendur af spítalastarfsemi í 66.000 m2
nýbyggingu og háskólastarfsemi í allt að 10.000 m2
nýbyggingu.
Hönnunarsamkeppnin er síðasta verk
verkefnisstjórnar um nýjan Landspítala því
um miðjan júní 2010 samþykkti Alþingi lög
um stofnun opinbers hlutafélags sem standa
mun að undirbúningi og útboði á byggingu nýs
háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Félagið fær
lokaskýrslu verkefnisstjórnar þar sem er lagt til að
samið verði við SPITAL um forhönnun bygginga
og skipulagsmál en forhönnun og útboðsgögn
vegna framkvæmda eiga að liggja fyrir vorið
2011. Gert er ráð fyrir útboði og að ríkið taki
bygginguna á langtímaleigu til allt að 40 ára þegar
byggingarverktaki hefur lokið umsömdu verki.
Samkvæmt áætlunum verkefnisstjómar, sem
fékk heimild heilbrigðisráðherra til að vinna
verkefnið áfram í framhaldi af viljayfirlýsingu
við lífeyrissjóðina í nóvember 2009, ættu
jarðvegsframkvæmdir að geta hafist sumarið 2011.
LÆKNAbladið 2010/96 567