Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 63
U M R Æ Ð A
F R Á L
O G
A N
F R É T T I R
D S P í T A L A
er hægt að gera til að auka fræðsluna og þar með
þekkingu án þess að það kosti mikið. Hægt er að
efla innri fræðslu á spítalanum en því miður hefur
áhuginn á fræðslufundum spítalans hingað til
verið rýr. Hægt er að vera með fræðsludaga eða
hluta úr degi fyrir lækna spítalans og aðra lækna
utan hans. Það hafa læknar Barnaspítalans gert
með góðum árangri. Læknadagar sem eru í janúar
ár hvert eru einnig góður vettvangur til fræðslu og
endurmenntunar.
Vísindarannsóknir og kennsla er grunnurinn
að því að hægt er að kalla Landspítalann
háskólasjúkrahús. Það er einnig hornsteinninn
í framþróun spítalans og eflingu. Mikilvægt er
að leita eftir samstarfi við erlenda aðila og sækja
styrki í erlenda sem innlenda samkeppnissjóði.
A sumum deildum spítalans hefur það tekist
með ágætum undanfarin ár og fjöldi manns hefur
fengið vinnu við vísindarannsóknir og ætti það að
vera hvatning fyrir aðra.
Það er aldrei meiri þörf en núna þegar
samdráttur er á öllum sviðum að koma með
jákvæða gagnrýni á það sem betur má fara og
er til hagræðingar. Einnig að finna og benda á
leiðir til úrlausnar á vandamálum sem koma upp
í sparnaðaraðgerðunum. Þá skiptir meginmáli
gagnvirkt upplýsingaflæði milli stjómenda og
starfsmanna. Það ber að hafa í huga að
efnahagskreppan gengur yfir þó að við hættum
ekki að spara og hagræða líkt og við höfum gert
hingað til. Við þurfum að hafa jákvætt hugarfar,
missa ekki sjónar á hlutverki okkar og skyldum
gagnvart sjúklingunum og standa saman í að efla
okkur sjálf og íslenskt heilbrigðiskerfi til betri
vegar í framtíðinni.
Zðr
auglýsir eftÍMjmsóknum á sviöi rannsokna á pneumokokkasýkingum barna.
Sjóðurinn hefur á árinu 2010 eina milljón króna til úthlutunar og mun þeirri upphæð
verða úthlutað til eins eða tveggja rannsóknarverkefna.
Tekið verður á móti umsóknum til 10. október, en úthlutun fer fram i nóvember.
í stjórn sjóðsins sitja þeir Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómafræðingur og Hörður S. Harðarson
barnalæknir, tilnefndir af fagfélögum sinna sérgreina, ásamt tveimur fulltrúum Pfizer.
UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ
Þeir sem hyggjast sækja um styrk eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins en úthlutunarreglur og
umsóknareyöublöð má nálgast í gegnum netfangið icepharma@icepharma.is eöa í móttöku lcepharma
að Lynghálsi 13.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila til lcepharma á þar til geröum eyöublöðum, en einnig má
skila þeim rafrænt á netfangiö icepharma@icepharma.is, merktum "Vísindasjóður Pfizer". Allar nánari
upplýsingar má nálgast hjá undirritaöri.
Sólveig Björk Einarsdóttir
Markaðsfulltrúi Pfizer
Farsími: 821 8047
lcepharma
Lynghálsi 13
110 Reykjavik
Netfang: solveigbjork@icepharma.is
LÆKNAblaðið 2010/96 575