Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 65
UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR
LÍFEYRISSJÓÐUR
lífeyrisgreiðslur í takt við afkomu sjóðsins. Frá
því núverandi lög um starfsemi lífeyrissjóða tóku
gildi árið 1998 hafa lífeyrisréttindi í Almenna
lífeyrissjóðnum og forverum hans hækkað mikið
og töluvert meira en verðlag og almennar
launahækkanir, þrátt fyrir nýlegar skerðingar
vegna efnahagshruns. Þannig hafa til dæmis
réttindi og lífeyrisgreiðslur lækna hækkað um
135% en sama tíma hækkaði launavísitala um
119% og vísitala neysluverðs um 96%.
Ég skil vel að sjóðfélagar hafi orðið fyrir
vonbrigðum með afkomu lífeyrissjóðsins síðustu
tvö ár og harma að sjóðurinn hafi þurft að grípa til
þess að lækka réttindi í tvígang. Ég bendi hins vegar
á að framboð á öruggum innlendum verðbréfum
(ríkisskuldabréf) var takmarkað fyrir hrun og mun
minna en eignir og ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna.
Samkvæmt lögum urðu sjóðirnir að fjárfesta
90% af eignum í skráðum verðbréfum sem eru
skuldabréf og hlutabréf gefin út af útgefendum
sem þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá
skráningu. Flest fyrirtæki, sem hafa gefið út skráð
verðbréf á liðnum árum, eiga í greiðsluerfiðleikum
og hafa leitað nauðasamninga eða eru gjaldþrota.
Það er ástæðan fyrir eignarýrnun lífeyrissjóðanna.
Athugasemd frá Tryggva Ásmundssyni
Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna
Lífeyrissjóðsins gerir nokkrar athugasemdir við viðtal mitt
í Læknablaðinu um lífeyrismál. Hann segir réttilega að
Almenni lífeyrissjóðurinn hafi ekki verið til umfjöllunar
hjá Rannsóknamefnd Alþingis. Hins vegar gagnrýnir
nefndin harðlega það sem Gunnar kallar "gjaldeyrisvarnir"
og vora samskonar hjá öllum sjóðunum. Lái mér hver sem
vill að ég líti svo á að nefndin gagnrýni samskonar gjörðir
Almenna lífeyrissjóðsins. Það var þetta sem ég átti við sem
"hjarðhegðun" í viðtalinu. Gunnar er ekki sáttur við að ég
tali um að sjóðurinn hafi tekið stöðu með krónunni. Hann
vill nefna þetta "gjaldeyrisvarnir", en við eram sammála um
að aðgerðin hafi verið til varnar erlendum eigum sjóðsins.
Mér firtnst ekki aðalatriðið hvað maður kallar gjörninginn.
Óumdeilt er að hann kostaði sjóðinn stórfé. Hins vegar er það
mikið gleðiefni að Gunnar telur að tapið verði minna en ætlað
var í fyrstu. Væri fróðlegt að vita hvort það gæti orðið til þess
að skerðingin á næsta ári yrði minni en reiknað var með.
Staða yfirlæknis á dag- og göngudeild
lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða yfirlæknis á dag- og göngudeild lyflækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er laus nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Á dagdeild er sjúklingum veitt meðferð við fjölbreyttum sjúkdómum.
Á göngudeild eru læknar lyflækningadeildar, sérfræðingar í krabbameinslækningum, húðsjúkdómalækningum og innkirtlafræðum, sérfræðingur í
hjúkrun sykursjúkra, sárahjúkrunarfræðingur, næringarráðgjafi og skurðlæknar með starfsemi í dag.
Dagdeild og göngudeild eru í mótun og hægt að þróa starfsemina og setja mark sitt á framtíðaruppbyggingu.
Stöðunni fylgir vaktskylda á lyflækningadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk þátttöku í rannsóknarvinnu.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í lyflækningum og æskilegt að hafa réttindi í einhverri af eftirtöldum undirgreinum lyflækninga svo sem
krabbameinslækningum, lungnalækningum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum, smitsjúkdómum eða nýrnalækningum. Reynsla af stjórnun er
æskileg.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, hæfni á sviði samskipta og samvinnu, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Næsti yfirmaður er forstöðulæknir lyflækningadeildar.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags íslands.
Nánari upplýsingar veita Jón Þór Sverrisson forstöðulæknir í síma 463 0100 eða 860 0468 og í tölvupósti jonthor@fsa.is og Sigurður E. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri lækninga, sími 463 0100, tölvupóstur ses@fsa.is.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2010.
Umsóknir um ofangreind störf skulu sendar starfsmannaþjónustu FSA, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, eöa á netfang starf@fsa.is, á þar til gerðum eyöublóöum, sem fást hjá landlæknisembættinu.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt meö upplýsingum um fræöilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa.
Öllum umsóknum veröur svaraö þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA er reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaðið 2010/96 577