Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 48
U M R Æ Ð U R M Á L Þ I N G U O G M F R É T T I R SÝKLALYF Skútabólgur Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir Starf nefs og hjánefskúta er umhirða á innönduðu lofti, það er hreinsun agna í nefi, ásamt hita og rakamettun, auk þess að gegna hlutverki í raddmyndun og lyktarskynjun. Um 20.000 lítrar lofts fara um nef manns á sólarhring, magn sem hæglega tvöfaldast við áreynslu. Þetta loft inniheldur mikið af óhreinindum, ofnæmisvökum og sýklum er kalla fram viðbrögð í nefslímunni, en með umhirðu sinni býr nefið í haginn fyrir neðri öndunarveg. Algengt er að sjúkdómar í neðri og efri öndunarvegi fari saman, en 75-95% fullorðinna með ofnæmis- eða ekki ofnæmisastma eru með nefslímubólgu og 75% fullorðinna sjúklinga með COPD hafa einnig einkenni frá nefi.1 Hjánefskútar eru loftfylltir hellar í beinum heila- og iðurkúpu, þeir myndast út frá nefholi og eru klæddir öndunarfæraþekju, líkt og klæðir nefholið og neðri öndunarveg að innan, sem undirstrikar samverkandi heild efri og neðri hluta öndunarvegar. Endanleg bygging hjánefskúta er ekki ljós fyrr en fullum þroska er náð, en hjánefskútar í ungum bömum að kynþroska eru venjulega litlir með stórum útfærsluopum miðað við rúmtak og þannig í nánum yfirborðstengslum við nefbolið, mynd 1. Þetta þýðir að flestir bólgusjúkdómar í nefi barna kalla fram samhliða bólgu í hjánefskútunum. Því hefur verið horfið frá því að líta á skútabólgur sem sérstakan sjúkdóm hjá börnum, heldur frekar að kalla vandamálið nef- og skútabólgur (rhinosinusitis). Þegar fullum þroska er náð má fyrst gera ráð fyrir skútabólgu sem sérstökum sjúkdómi. Því er vert að gera greinarmun á skútabólgu í fullorðnum og nef- og skútabólgu í bömum, þó svo að megineinkenni sjúkdómsins séu svipuð í börnum og fullorðnum, það er nefrennsli og nefstífla. Sýkingar í efri öndunarvegi eru algengar meðal manna, en eru að sama skapi oftast saklausar. Talið er að börn fái 6-8 efri öndunarfærasýkingar að meðaltali á ári, þar sem meinvaldur er veirur. Bráð bakteríusýking í miðeyra og bráð bakteríu nef- og skútabólga em algengustu afleiðingar þessara veirusýkinga, en þessar sýkingar eru algengustu ástæður þess að ávísað er sýklalyfjum til barna. Þannig er bólga í nefslímu vegna ertingar, ofnæmis eða kvefs forleikurinn að þætti baktería, en þær algengustu sem ræktast frá fullorðnum með bráða skútabólgu og börnum með bráða nef- og skútabólgu em streptococcus pneumonia, hemophilus influenzae og moraxcella catharralis, sömu bakteríur og þekktar eru fyrir að valda miðeyrnabólgu, enda eru sjúkdómarnir um margt líkir meðal barna. Vert er að benda á að nýjar rannsóknir greina frá mikilvægi lífhimna (biofilms) í meinmynd langvarandi nef- og skútabólgu hjá börnum. Greining bráðrar nef- og skútabólgu í börnum er klínísk og kallar því ekki á myndgreiningu til staðfestingar. Meðal barna yngri en eins árs er mjög algengt að hjánefskútar séu skyggðir á röntgenmyndum, 90% barna yngri en 6 ára með einkenni bráðrar nef- og skútabólgu eru með afbrigðilega röntgenmynd af hjánefskútum. Á TS-myndum af börnum yngri en 13 ára, þar sem myndgreining var ekki gerð vegna sjúkdóma í nefi eða hjánefskútum, mátti greina afbrigði frá eðlilegri mynd hjá 50% þeirra. Því á ekki að nota myndgreiningu til að greina bráða nef- og skútabólgu í börnum burtséð frá neikvæðum þáttum geislunar og kostnaðar. Myndgreiningu á að gera ef kröftug versnun á einkennum á sér stað meðan á meðferð stendur, sterkur grunur um fylgikvilla er til staðar eða ef aðgerð er fyrirhuguð.2 Bráða nef- og skútabólgu í börnum á ekki að meðhöndla með sýklalyfjum heldur er hin svokallaða önnur meðferð aðalmeðferðin. Þar er staðbundin saltvatnsskolun á nefholi mikilvægasti þátturinn. Önnur lyf til notkunar staðbundið, svo sem adrenvirkir nefdropar og andhistamín, hafa sýnt sig að gera gagn, en verkun slímlosandi lyfja um munn ekki. Sterar staðbundið í nef eiga ekki heima í meðferð á bráðri nef- og skútabólgu í bömum, en virkni þeirra meðal bama allt niður að tveggja ára aldri er til staðar og örugg í langvinnri nef- og skútabólgu,3 að auki hefur nefkirtlataka reynst árangursrík í langvinnum sjúkdómi.4 Sýklalyf á einungis að gefa þegar einkenni benda til alvarlegrar sýkingar, fylgikvillar yfirvofandi eða til staðar. Bráða skútabólga í fullorðnum einkennist af tvífasa sjúkdómsmynd þar sem í kjölfar bólgu, oftast vegna veirusýkingar í nefslímu á sér stað versnun einkenna eins og verkur í andliti, hósti ásamt graftrarkenndu nefrennsli 7-14 dögum 560 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.