Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 58
UMRÆÐA O G FRETTIR
Spánarfarar.
/ maí2010
varfarin vel
heppnuðferð
til Spánar
undir leiðsögn
Kristins R.
Ólafssonar.
Myndin er
tekin í borginni
Segovia
skammt norðan
við Madrid.
Fararstjórinn er
neðstfyrir miðju
með íslenskan
fána. Ljósm.
Hjörleifur
Guttormsson
Um upphaf og félagsstarf Öldungadeildar LÍ
Ritstjórn Læknablaðsins
hefur veitt Öldungadeild LÍ
vilyrði fyrir rými i blaðinu þar
sem Öldungadeildin getur
komið á framfæri fréttum
og fróðleik til félagsmanna
sinna. Vera má að sá
fróðleikur verði blandaður
og höfði ekki eingöngu til
aldraðra lækna. Það er því
von okkar að aðrir lesendur
blaðsins megi einnig hafa
nokkurt gagn og gaman af.
Umsjón síðu:
Páll Ásmundsson
Stjórn
Öldungadeildar:
Sigurður E.
Þorvaldsson
formaður
Jón Hilmar Alfreðsson
ritari
Tryggvi Ásmundsson
gjaldkeri
Guðmundur Oddson
Óli Björn Hannesson
Öldungaráð:
Hörður Þorleifsson
Höskuldur Baldursson
Kristín Guttormsson
Leifur Jónsson
Páll Ásmundsson
Vigfús Magnússon
Vefsíða
Öldungadeildar
finnst meðal annarra
vefsíðna sérfélaga á
síðu Ll.
í febrúar 1994 skrifuðu læknarnir Árni Björnsson,
Ásmundur Brekkan og Gunnlaugur Snædal
ítarlegt bréf um þörfina á að stofna félagsskap
eldri lækna undir vemdarvæng Læknafélags
íslands.
Bréfið var sent stjóm LÍ sem fjallaði um málið
og ákvað síðan í samráði við bréfritara að senda
bréfið öllum læknum sem fæddir voru 1933 eða
fyrr. Jafnframt var boðið til undirbúningsfundar
að slíkum félagsskap. Sá fundur var haldinn á
Holiday Inn 19. mars 1994.
Til fundarins mættu 56 læknar auk formanns
og framkvæmdastjóra LÍ. Kosin var nefnd til
að undirbúa stofnun félagsins. í henni voru:
Árni Bjömsson formaður, Ásmundur Brekkan,
Gunnlaugur Snædal, Ragnhildur Guðmundsdóttir
og Þór Halldórsson. Stofnfundur var svo haldinn
í Rúgbrauðsgerðinni 7. maí 1994. Stjórnaði Árni
Bjömsson þeim fundi en á hann vom mættir 64
læknar.
Nafn félagsins var samþykkt: Oldungadeild
Læknafélags íslands. Þá vom samþykkt lög
félagsins sem eru að mestu samhljóða núgildandi
lögum. í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir Árni
Björnsson formaður, Grétar Ólafsson gjaldkeri
og Þór Halldórsson ritari en meðstjómendur þau
Þórey Sigurjónsdóttir og Arinbjöm Kolbeinsson.
Einnig var kosið í fyrsta öldungaráð félagsins. Það
skipuðu þau Ásmundur Brekkan, Gunnlaugur
Snædal, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Sigurður Þ.
Guðmundsson, Tómas Árni Jónasson og Þorgeir
Gestsson. í lögum félagsins segir svo: Tilgangur
félagsins er að gæta hagsmuna aldraðra lækna og
stuðla að auknum samskiptum meðal þeirra, svo
og að efla samskipti lækna almennt, félagslega og
faglega. Starf félagsins hefur nokkuð breyst með
árunum. Fyrstu árin vom félagsfundir strjálir en
stjórn félagsins hittist þeim mun oftar og ræddi
mál sem vörðuðu hagsmuni félaganna, einkum
lífeyrismál en þau eru mönnum enn hugleikin.
Félagsfundum fjölgaði smám saman og síðustu
árin hafa verið haldnir fundir í hverjum mánuði
frá október til maí á hverju starfsári. Á fundum
eru jafnan fyrirlestrar um margvíslegt áhugavert
efni. Fyrstu árin voru fyrirlesarar gjarnan læknar
en í seinni tíð eru þeir úr ýmsum áttum og
umræðuefni sjaldnast af læknisfræðilegum toga.
Fundarsókn hefur farið sívaxandi og ræður þar
um efni fyrirlestra en ekki síður það tækfæri
sem gefst til að spjalla við félagana yfir kaffi og
vínarbrauði. Makar eru velkomnir á fundina og
sækja þá vel. Fundir félagsins eru haldnir fyrsta
miðvikudag hvers mánaðar í húsakynnum LI í
Hlíðasmára 8 í Kópavogi. í desember ár hvert er
haldin aðventuhátíð þar sem menn gleðjast og
gæða sér á réttum af jólahlaðborði. Fyrstu árin
var oft farið í heimsóknir á ýmsar stofnanir eða
dagsferðir innanlands. Slíkar ferðir hafa með
árunum orðið veigameiri og hefur á síðustu árum
verið farið í lengri ferðir innan lands og utan
og hafa þær notið mikilla vinsælda. Samkvæmt
lögum félagsins geta allir þeir læknar orðið
meðlimir sem náð hafa 60 ára aldri. Þegar menn
eru 70 ára eru þeim send fundarboð sem ekki hafa
þegar gengið í félagið.
P.Á.
570 LÆKNAblaðið 2010/96