Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 58

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 58
UMRÆÐA O G FRETTIR Spánarfarar. / maí2010 varfarin vel heppnuðferð til Spánar undir leiðsögn Kristins R. Ólafssonar. Myndin er tekin í borginni Segovia skammt norðan við Madrid. Fararstjórinn er neðstfyrir miðju með íslenskan fána. Ljósm. Hjörleifur Guttormsson Um upphaf og félagsstarf Öldungadeildar LÍ Ritstjórn Læknablaðsins hefur veitt Öldungadeild LÍ vilyrði fyrir rými i blaðinu þar sem Öldungadeildin getur komið á framfæri fréttum og fróðleik til félagsmanna sinna. Vera má að sá fróðleikur verði blandaður og höfði ekki eingöngu til aldraðra lækna. Það er því von okkar að aðrir lesendur blaðsins megi einnig hafa nokkurt gagn og gaman af. Umsjón síðu: Páll Ásmundsson Stjórn Öldungadeildar: Sigurður E. Þorvaldsson formaður Jón Hilmar Alfreðsson ritari Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri Guðmundur Oddson Óli Björn Hannesson Öldungaráð: Hörður Þorleifsson Höskuldur Baldursson Kristín Guttormsson Leifur Jónsson Páll Ásmundsson Vigfús Magnússon Vefsíða Öldungadeildar finnst meðal annarra vefsíðna sérfélaga á síðu Ll. í febrúar 1994 skrifuðu læknarnir Árni Björnsson, Ásmundur Brekkan og Gunnlaugur Snædal ítarlegt bréf um þörfina á að stofna félagsskap eldri lækna undir vemdarvæng Læknafélags íslands. Bréfið var sent stjóm LÍ sem fjallaði um málið og ákvað síðan í samráði við bréfritara að senda bréfið öllum læknum sem fæddir voru 1933 eða fyrr. Jafnframt var boðið til undirbúningsfundar að slíkum félagsskap. Sá fundur var haldinn á Holiday Inn 19. mars 1994. Til fundarins mættu 56 læknar auk formanns og framkvæmdastjóra LÍ. Kosin var nefnd til að undirbúa stofnun félagsins. í henni voru: Árni Bjömsson formaður, Ásmundur Brekkan, Gunnlaugur Snædal, Ragnhildur Guðmundsdóttir og Þór Halldórsson. Stofnfundur var svo haldinn í Rúgbrauðsgerðinni 7. maí 1994. Stjórnaði Árni Bjömsson þeim fundi en á hann vom mættir 64 læknar. Nafn félagsins var samþykkt: Oldungadeild Læknafélags íslands. Þá vom samþykkt lög félagsins sem eru að mestu samhljóða núgildandi lögum. í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir Árni Björnsson formaður, Grétar Ólafsson gjaldkeri og Þór Halldórsson ritari en meðstjómendur þau Þórey Sigurjónsdóttir og Arinbjöm Kolbeinsson. Einnig var kosið í fyrsta öldungaráð félagsins. Það skipuðu þau Ásmundur Brekkan, Gunnlaugur Snædal, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Sigurður Þ. Guðmundsson, Tómas Árni Jónasson og Þorgeir Gestsson. í lögum félagsins segir svo: Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna aldraðra lækna og stuðla að auknum samskiptum meðal þeirra, svo og að efla samskipti lækna almennt, félagslega og faglega. Starf félagsins hefur nokkuð breyst með árunum. Fyrstu árin vom félagsfundir strjálir en stjórn félagsins hittist þeim mun oftar og ræddi mál sem vörðuðu hagsmuni félaganna, einkum lífeyrismál en þau eru mönnum enn hugleikin. Félagsfundum fjölgaði smám saman og síðustu árin hafa verið haldnir fundir í hverjum mánuði frá október til maí á hverju starfsári. Á fundum eru jafnan fyrirlestrar um margvíslegt áhugavert efni. Fyrstu árin voru fyrirlesarar gjarnan læknar en í seinni tíð eru þeir úr ýmsum áttum og umræðuefni sjaldnast af læknisfræðilegum toga. Fundarsókn hefur farið sívaxandi og ræður þar um efni fyrirlestra en ekki síður það tækfæri sem gefst til að spjalla við félagana yfir kaffi og vínarbrauði. Makar eru velkomnir á fundina og sækja þá vel. Fundir félagsins eru haldnir fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í húsakynnum LI í Hlíðasmára 8 í Kópavogi. í desember ár hvert er haldin aðventuhátíð þar sem menn gleðjast og gæða sér á réttum af jólahlaðborði. Fyrstu árin var oft farið í heimsóknir á ýmsar stofnanir eða dagsferðir innanlands. Slíkar ferðir hafa með árunum orðið veigameiri og hefur á síðustu árum verið farið í lengri ferðir innan lands og utan og hafa þær notið mikilla vinsælda. Samkvæmt lögum félagsins geta allir þeir læknar orðið meðlimir sem náð hafa 60 ára aldri. Þegar menn eru 70 ára eru þeim send fundarboð sem ekki hafa þegar gengið í félagið. P.Á. 570 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.