Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 11
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Clostridium difficile sýkingar á
Landspítala 1998-2008
Rúnar Bragi
Kvaran1
læknanemi
Elsa Björk
Valsdóttir1'2
skurðlæknir
Helgi Kjartan
Sigurðsson2
skurðlæknir
Magnús
Gottfreðsson1’3
lyf- og smitsjúkdómalæknir
Lykilorð: Clostridium difficile,
sýklalyf, ristilbólga, faraldsfræði,
spítalasýkingar.
Ágrip
Tilgangur: Að kanna faraldsfræði og alvarleika
ristilbólgu af völdum C. difficile á Landspítala og
meta hvort meinvirkni sýkingarinnar hafi aukist á
Islandi líkt og víða á Vesturlöndum.
Efniviður og aðferðir: Sýkingar af völdum
C. difficile á Landspítala árin 1998-2008 voru
fundnar með því að finna jákvæð eiturefnapróf í
hægðasýnum úr gagnagrunni sýklafræðideildar.
Urtak klínískra upplýsinga um sjúklinga sem
voru greindir í janúar og júní hvert ár á
rannsóknartímabilinu var skoðað sérstaklega. Alls
voru það 237 sýkingar.
Niðurstöður: A 11 ára tímabili reyndist 1861 sýni
af 11.968 (16%) jákvætt fyrir C. difficile og einstakar
sýkingar voru 1492. Nýgengi sýkingar var 29%
hærra í lok en upphafi tímabilsins og var að
meðaltali hæst í aldurshópnum >80 ára þar sem
það var 387 tilfelli á hverja 100.000 íbúa íslands
á ári. Fjöldi sýkinga á 1000 innlagnir jókst um
71% og fjöldi sýkinga á 10.000 legudaga jókst um
102%. 92% sýkinga tengdust heilbrigðisþjónustu
og 47% voru spítalasýkingar. Meirihluti sjúklinga
tók sýklalyf innan þriggja mánaða fyrir sýkingu.
Algengasta einkenni sýkingar var niðurgangur.
Yfirgnæfandi meirihluti (93%) þeirra sem nægar
upplýsingar fundust um náðu bata eftir eina
sýklalyfjameðferð og enginn gekkst undir aðgerð.
Ályktanir: Sýkingar af völdum C. difficile voru
fleiri árið 2008 á Landspítala en árið 1998.
Innsendum sýnum fjölgaði hins vegar stöðugt
og meira en sýkingum. Fáir sýkjast án þess að
hafa einn eða fleiri þekktra áhættuþátta. I flestum
tilvikum dugði stök meðferð með metrónídazóli
til þess að uppræta sýkingu. Meinvirkni C. difficile
virðist ekki hafa aukist hér á landi.
Inngangur
Tíðni og alvarleiki ristilbólgu af völdum
Clostridium difficile (C. difficile) hefur farið vaxandi
á Vesturlöndum á síðustu árum með tilkomu
meinvirkari stofna.1 Faröldrum slíkra stofna
hefur verið lýst frá upphafi þessarar aldar í
Norður-Ameríku og Evrópu.13 I Evrópu hefur
verið greint frá faröldrum á 113 spítölum.4
Aukna tíðni og alvarleika C. difficile sýkinga má
rekja til þessara nýju stofna bakteríunnar sem
framleiða meira af eiturefnum (e. toxins), eru
þolnari gagnvart sýklalyfjum, eða hvort tveggja.1
Samhliða þessu hefur þörf á skurðaðgerðum
aukist.5 Þannig má nefna að tíðni sýkinga í
Bandaríkjunum þrefaldaðist á árunum 2000-
2005. Þessari aukningu fylgdi fjölgun dauðsfalla,
sérstaklega á meðal aldraðra.6
Sýklalyfjameðferð er aðaláhættuþáttur sýk-
ingar af völdum C. difficile. Sýklalyf raska
örveruflóru ristilsins og gefa þannig C. difficile
tækifæri til yfirvaxtar. Klindamýcín, þriðja
kynslóð kefalósporína, nýrri flúórókínólónar og
amoxicillín með klavúlansýru ýta mest undir
sýkingar en nánast hvaða sýklalyf sem er getur
stuðlað að sýkingu.7
Einkenni geta komið fram frá upphafi
sýklalyfjameðferðar og allt að þremur mánuðum
eftir að henni er hætt.4 Dæmigerð einkenni
eru vatnskenndur niðurgangur og kviðverkir.
Við skoðun er líkamshiti gjarnan hækkaður og
eymsli finnast yfir neðanverðum kvið.9 Fjöldi
hvítra blóðkorna getur ýmist verið eðlilegur eða
gríðarlega hækkaður (>50 þúsund hvít blóðkorn/
mm3) og alvarlegri sýkingum getur fylgt hækkun
á CRP.8’10 í alvarlegustu tilfellum er hætta á
blóðsýkingu sem getur þróast yfir í sýklasóttarlost
og kallað á gjörgæslumeðferð.4-10 Meðferð C.
difficile sýkingar fer eftir alvarleika og er fyrst
beitt sýklalyfjameðferð, oftast metrónídazóli eða
vankómýcíni. Einnig er mikilvægt að hætta gjöf
annarra sýklalyfja ef þess er kostur. Sýkingar af
völdum hinna nýju meinvirkari stofna virðast
svara hefðbundinni meðferð verr en sýkingar
af eldri stofnum og hefur tíðni bakslaga (e.
relapse) aukist hjá þeim sem fá meðferð með
metrónídazóli. Enn hefur þó ekki verið sýnt fram
á þol meinvirkari stofna gegn metrónídazóli.4
Gjöf gersveppsins Saccharomyces boulardii (S.
boulardii) minnkar líkur á bakslagi hjá þeim
sem fá endurteknar C. difficile sýkingar ef
hann er gefinn ásamt viðeigandi sýklalyfjum.11
Ýmis meðferðarúrræði hafa verið reynd hjá
þeim sjúklingum sem fá endurteknar C. difficile
sýkingar. Vankómýcín er hugsanlega besta lausnin
og samsetning stórra skammta vankómýcíns og
LÆKNAblaðiö 2010/96 523