Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum. Hver
hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röö:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af
netinu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
RITSTJÓRNARGREINAR
Matthías Halldórsson
Rítalín til góðs eða ills
Baráttuna gegn misnotkun verður að efla, en hún má ekki
verða til þess að hindra aðgengi þeirra sem eru með staðfest
ADHD og hafa gagn af meðhöndlun einkenna sinna.
519
Einar S. Björnsson
Clostridium difficile sýkingar. Vaxandi
heilsufarsvandamál á Vesturlöndum
Sýkingin sækir í sig veðrið með meinvirkari stofnum.
Faraldrar hafa brotist út og fleiri alvarlegar sýkingar og fleiri
dauðsföll fylgt í kjölfarið.
FRÆÐIGREINAR
Rúnar Bragi Kvaran, Elsa Björk Valsdóttir, Helgi Kjartan Sigurðsson, Magnús Gottfreðsson
Clostridium difficile sýkingar á Landspftala 1998-2008
Niðurstöður rannsóknar benda ekki til þess að meinvirkari stofnar C. difficile hafi náð útbreiðslu
hérlendis. Hafa þarf eftirlit með faraldsfræði sjúkdómsins innan veggja spítalans og æskilegt
að aðstaða sé til þess að stofngreina bakteríur sem valda alvarlegum sýkingum. Þá er hægt að
bregðast við í tæka tíð þegar meinvirkari stofnar láta á sér kræla.
Jón Pálmi Óskarsson, Sigurður Halldórsson
Mat á greiningu og meðferð bráðrar skútabólgu
á þremur heilsugæslustöðvum
Fylgni við þær erlendu klínísku leiðbeiningar sem notaðar voru til hliðsjónar við gerð þessarar
rannsóknar reyndist sáralítil og í raun handahófskennd. Rannsóknin bendir til þess að þótt
skútabólga sé greind hér í svipuðum mæli og annars staðar sé um verulega ofgreiningu
bakteríusýkinga að ræða.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Margrét Björnsdóttir 537
Kostnaðarvirknigreining á bólusetningu gegn
pneumókokkum á íslandi
Pneumókokkasýking er algeng og veldur áhyggjum vegna fjölgunar ónæmra og fjölónæmra
stofna. Hægt er að bólusetja börn gegn algengustu hjúpgerðum bakteríunnar. Niðurstöður
rannsóknarinnar benda til þess að bólusetning sé hagkvæm ef miðað er við upphafsforsendur.
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
Birgir Guðmundsson, Bjarni A. Agnarsson, Guðmundur Geirsson
Tilfelli mánaðarins
545
516 LÆKNAblaðið 2010/96