Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN á venjulegt kvef. Val á sýklalyfjum er heldur ekki í samræmi við erlendar klínískar leiðbeiningar, og vekur athygli hversu mikið er notað af doxýcýclín. Penicillín V er fremur lítið notað, en það heldur velli sem fyrsta meðferð í Noregi og Svíþjóð til að mynda.4 Vegna þess hve algengar efri öndunarfæra- sýkingar eru, og þar með talið skútabólgur, má telja líklegt að mikil notkun sýklalyfja almennt, og sér í lagi breiðvirkra sýklalyfja hér á landi við þessum sýkingum eigi stóran þátt í því að ónæmir sýklastofnar eru hér meira vandamál en á hinum Norðurlöndunum. Niðurstöður okkar styðja þannig þá tilgátu að greiningin bráð skútabólga leiði nær alltaf til ávísunar sýklalyfja, þvert á erlendar klínískar leiðbeiningar, og jafnframt að læknar eigi í erfiðleikum með að greina milli einfaldra veirusýkinga í efri öndunarvegum og bráðrar skútabólgu af bakteríuvöldum. Eftir að þessi rannsókn var framkvæmd hafa verið birtar nýjar samevrópskar leiðbeiningar um meðhöndlun skútabólgu, og er vægi sýklalyfja þar enn minna en áður, en áherslan einkum á nefstera.17 Nauðsynlegt er að hafa í huga að við gerð rannsóknarinnnar var eingöngu farið eftir því sem skráð er í samskiptaseðla og gengið út frá því að það sem ekki er skráð hafi ekki verið gert. Þar er augljós sá ókostur sem gjaman einkennir afturskyggnar rannsóknir, að einimgis er hægt að taka tillit til þess sem skráð hefur verið í sjúkraskrá, og ekkert hægt að fullyrða um atriði sem læknar kurtna að hafa rætt við sjúklinginn, eða fundið við skoðun, en láðst að setja á blað. Rannsóknin gefur að okkar mati allgóða mynd af greiningu og meðferð bráðrar skútabólgu á landsbyggðinni, en nauðsynlegt væri að rannsaka á fleiri heilsugæslustöðvum, einkum á höfuðborgarsvæðinu, til að fá skýrari heildarmynd af vinnuaðferðum íslenskra lækna við greiningu og meðferð bráðrar skútabólgu en hvoru tveggja virðist verulega ábótavant. Hugsanlegar leiðir til úrbóta væru meðal annars útgáfa innlendra klínískra leiðbeininga, fræðsla á heilsugæslustöðvum og enn frekari áróður gegn óhóflegri sýklalyfjanotkun, einkum breiðvirkra !yfja. Þakkir Rannsóknin var styrkt af Vísindasjóði Félags íslenskra heimilislækna og Fræðslu- og rannsóknarráði FSA. Höfundar vilja þakka yfirlæknum heilsugæslustöðvanna á Akureyri, Egilsstöðum og Húsavík. Einnig fær Hrönn Brynjarsdóttir þakkir fyrir aðstoð við ritvinnslu og töflugerð. Heimildir 1. Gwaltney J, Phillips C, Miller R, et al. Computed tomography of the common cold. N Engl J Med 1994; 330: 25-30. 2. Gwaltney J, Syndor A, Sande M. Etiology and antimicrobial treatment of acute sinusitis. Otol Rhinol Laryngol 1981; 90: 68-71. 3. Dingle J, Badger G, Jordan W. Illnesses in a group of Cleveland families. Western Reserve University, Cleveland 1964. 4. Lákemedelsverket. Lakemedelsbehandling av rinosinuit - Behandlingsrekommendation. Information frán Lákemedelsverket 2005; 3: 7-13. 5. Lindbaek, M. Acute sinusitis: guide to selection of antibacterial therapy. Drugs 2004; 64: 805-19. 6. Scheid D, Hamm R. Acute bacterial rhinosinusitis in adults. Am Fam Physician 2004; 70:1685-92,1697-704,1711-2. 7. Gwaltney J Jr. Acute community-acquired sinusitis. Clin Infect Dis 1996; 23:1209-25. 8. Lindbaek M, Hjortdahl P. The clinical diagnosis of acute purulent sinusitis in general practice - a review. Brit J Gen Pract 2002; 52: 491-5. 9. Lindbaek M, Hjortdahl P, Johnsen U. Use of symptoms, signs and blood tests to diagnose acute sinus infections in primary care; comparison with computed tomography. Fam Med 1996; 28:183-8. 10. Little R, Mann B, Godbout C. How family physicians distinguish acute sinusitis from upper respiratory tract infection: a retrospective analysis. J Am Board Fam Pract 2000; 13:101-6. 11. Hickner J, Bartlett JG, Besser RE, et al. Principles of appropriate antibiotic use for acute rhinosinusitis in adults: background. Ann Intem Med 2001; 134: 498-505. 12. Piccirillo J. Acute bacterial sinusitis. N Engl J Med 2004; 351: 902-10. 13. Williams J Jr, Aguilar C, Comell J, et. al. Antibiotics for acute maxillary sinusitis. Cochrane Database Syst Rev 2003; 2: CD000243. 14. Institute for Clinical Systems Improvement (ICSI). Acute sinusitis in adults. Institute for Clinical Systems Improvement (ICSI). Bloomington 2004: 29. 15. Snow V, Mottur-Pilson C, Hickner J. Principles of appropriate antibiotic use for acute sinusitis in adults. Ann Intem Med 2001; 134:495-7. 16. Arason VA. Use of antimicrobials and carriage of penicillin- resistant pneumococci in children: Repeated cross-sectional studies covering 10 years. PhD thesis, University of Iceland 2006. www.hirsla.lsh.is 17. Holmström M. Intemationella behandlingsriktlinjer för rinosinuit ger bra vágledning. Lákartidningen 2008; 45: 3202-6. 534 LÆKNAblaðiö 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.