Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 4
11 TBL. 2011
587
Björn Zoéga
Landspítali -
niðurskurður eða
hagræðing?
Nú er komið að þeim mörkum
að óhjákvæmilegt er að minnka
þjónustu á spítalanum. Stjórnvöld
gera sér grein fyrir þessu en meta
aðstæður þannig að ekki verði hjá
því komist að skerða framlög til
spítalans enn frekar þótt það leiði
til minni þjónustu en áður.
589
Gunnar Guðmundsson
Sameinuðu þjóðirnar og
ósmitnæmir sjúkdómar
Stjórnvöld og alþjóðastofnanir hafa
vanrækt hjarta- og æðasjúkdóma,
krabbamein, sykursýki og
langvinna lungnasjúkdóma. Heil-
brigðisyfirvöld ættu strax að ýta
af stað tóbaksvarnaaðgerðum
og búa til áætlanir gegn öðrum
áhættuþáttum ósmitnæmra
sjúkdóma.
FRÆÐIGREINAR
591
Sindri Aron Viktorsson, Inga Lára Ingvarsdóttir, Kári Hreinsson, Martin Ingi
Sigurðsson, Sólveig Helgadóttir, Þórarinn Arnórsson, Ragnar Danielsen,
Tómas Guðbjartsson
Lokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla
á íslandi 2002-2006: Langtímafylgikvillar og lifun
Langtímafylgikvillar eru svipaðir og í öðrum rannsóknum, en eftirlitstími
stuttur. Blæðingar eru fátíðari, en blóðsegarek og hjartaþelsbólga svipuð.
Sjúkdómasértæk langtímalifun sjúklinganna var góð og fimm ára lifun
sambærileg við þá sem ekki höfðu farið í aðgerð. Langtímaárangur
lokuskiptaaðgerða telst því góður.
597
Steinunn H. Hannesdóttir, Ludvig Á. Guðmundsson, Erlingur Jóhannsson
Heilsufarslegar breytingar sjúklinga í
atferlismiðaðri offitumeðferð
Markmið þessarar rannsóknar var að skoða breytingar á holdafari, þreki,
blóðþrýstingi, hvíldarpúlsi og líðan í þverfaglegri offitumeðferð. Skoðað var
eigið mat þátttakenda í meðferðinni á andlegri, líkamlegri og félagslegri líðan
og hvort tengsl væru við breytingar á holdafari og þreki.
591
María Sif Sigurðardóttir, Aðalsteinn Guðmundsson, Þórunn K.
Guðmundsdóttir, Anna Birna Almarsdóttir
Vísbendingar um gæði lyfjameðferða aldraðra við
innlögn á Landspítala
Öldruðum fjölgar hratt um allan heim. Framfarir í læknisfræði og þróun nýrra
lyfja hafa stuðlað að auknum lífslíkum og æ fleiri náum háum aldri. Áttræðum
og eldri fjölgar nú um 4% á hverju ári. Árið 2050 er búist við því að um það bil
einn af hverjum fimm 60 ára og eldri verði 80 ára eða eldri.
613
Magnús Blöndahl Sighvatsson, Hafrún Kristjánsdóttir, Engilbert Sigurðsson,
Jón Friðrik Sigurðsson
Gagnsemi hugrænnar atferlismeðferðar við
lyndis- og kvíðaröskunum hjá fullorðnum
Hugræn atferlismeðferð (HAM, cognitive behavioral therapy) er tiltölulega
útbreidd aðferð og mikilvægt fyrir lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk að
kynnast hugmyndafræði hennar. HAM byggir á rökhyggju og skipulagi og er
afmörkuð f tíma þar sem flestir meðferðarvísar við algengum geðröskunum,
eins og þunglyndi og kvíða, gera ráð fyrir 10-20 viðtölum.
584 LÆKNAblaðið 2011/97