Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 26

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 26
RANNSÓKN Tafla 1. Gæðavísar lyfjanotkunar. Gæðavísir Lyf og/eða ATC kóði Ástæða Þríhringlaga geðdeyfðarlyf6'11 Amitryptilín (N06AA09), Trimipramín (N06AA06), Doxapin (N06AA12), Chlomipramín (N06AA04) Sterk andkólínerg og róandi áhrif auka hættuna á hjáverkunum hjá öldruðum, til dæmis vitrænni skerðingu, þvagteppu (karlar), harðlífi, sjóntruflunum og byltum. Amitryptilín15'24 N06AA09 Sterk andkólínerg og róandi áhrif auka hættuna á skertri vitsmunastarfsemi í öldruðum. Aukin hætta á þvagteppu (karlar), harðlífi, skertri sjón, byltum og beinbrotum. Fyrstu kynslóðar geðrofslyf4,6 Chlorpromazin (N05AA01), Chlorprotixene (N05AF03), Levoprometazin (N05AA02), Prochlorperazín (N05AB04) Sterk andkólínerg og róandi áhrif. Geta valdið utanstrýtueinkennum og stöðublóðþrýstingsfalli. Langvirk benzódiazepín4'6'911 Nitrazepam (N05CD02), Flunitrazepam (N05CD03) Hafa langan helmingunartima og uppsöfnun þeirra getur valdið langvarandi róandi áhrifum og aukið hættu á byltum. Benzódíazepín4'69 N05BA, N05CD Hætta á uppsöfnun og geta valdið byltum og vitrænni skerðingu. Fyrstu kynslóðar andhistamín4'69 Dexchlorphenamín (R06AB02), Promethazín (R06AD02), Alimemazin (R06AD01), Hydroxycin (N05BB01) Sterk anskólínerg áhrif. Promethazín og Alimemazín geta sérstaklega valdið utanstrýtueinkennum. Beta blokkerar + ósérvirkir kalsíum blokkerar469 Beta blokkerar (C07A), Verapamíl (C08DA01) og Diltiazem (C08DB01) Ósérvirkir kalsíum blokkerar í samsetningu með beta blokkerum geta valdið skertri samdráttarhæfni hjartans og/eða leiðslutruflunum. NSAID + warfarín4'6'199 NSAID (M01AB, M01AC, M01AE), warfarín (B01AA03) Eykur hættu á blæðingum i meltingarvegi. NSAID + ACE hemlar eða angíótensín II blokkar16 NSAID (M01AB, M01AC, M01AE), ACE hindrar (C09A, C09B), A2 blokkerar (C09C, C09D) Getur valdið nýrnabilun í öldruðum sjúklingum, sérstaklega hjá þeim sem eru með æðakölkun, vökvatap eða samhliða notkun þvagræsilyfja. NSAID + SSFSI4'6 NSAID (M01AB, M01AC, M01AE), SSRI (N06AB) Eykur hættu á blæðingum í meltingarvegi. NSAID + þvagræsilyf-6 NSAID (M01AB, M01AC, M01AE), þvagræsilyf (C03) Getur dregið úr áhrifum þvagræsilyfja og leitt til versnandi hjartabilunar. Aspirin + warfarín19 Aspirin (N02BA01, B01AC06), warfarín (B01AA03) Aukin hætta á blæðingum. Svefnlyf24 N05C Aukin hætta á byltum og vitrænni skerðingu. Notkun þriggja eða fleiri geðlyfja6 Ópíóíðar (N02A), geðlyf (N05), þunglyndislyf (N06A) Eykur hættuna á óhóflegum róandi áhrifum, milliverkunum og óæskilegum áhrifum á miðtaugakerfið. Notkun þriggja eða fleiri geðlyfja-2 (að undanskildum ópíóíðum)24 Geðlyf (N05), þunglyndislyf (N06A) Eykur hættuna á óhóflegum róandi áhrifum, milliverkunum og óæskilegum áhrifum á miðtaugakerfið. kvenna en karla.16-19 Ástæðan fyrir því gæti meðal annars verið sú að konur leita oftar eftir heilbrigðisþjónustu og lýsa frekar einkennum en karlar.19'21 Einnig getur verið munur á einkennum sjúkdóma eftir kynjum, samskiptaháttum og samskiptum við lækna sem getur að einhverju leyti skýrt þennan kynjamun.19 Markmið þessarar rannsóknar var að athuga algengi vísbend- inga um gæði lyfjameðferða einstaklinga 70 ára og eldri við innlögn á lyflækningadeildir og bráðaöldrunarlækningadeild. Gæðin voru metin með völdum gæðavísum sem gefa til kynna hugsanlega óviðeigandi lyfjameðferð. Athugað var hvort mismunur væri á gæðum eftir kyni og aldri. Efniviður og aðferðir Þýðið í rannsókninni voru einstaklingar 70 ára og eldri sem lögðust fyrirvaralaust inn á lyflækningasvið I og bráðaöldrunar- lækningadeild (B4) á öldrunarsviði Landspítala árið 2007. Slembi- úrtak 1500 sjúklinga var tekið úr öllum innlögnum í legukerfi sjúkrahússins fyrir þetta tímabil. I úrtakinu var einungis tekin með ein innlögn fyrir hvern sjúkling og var valin fyrsta innlögn fyrir hverja kennitölu. í rannsókninni var farið yfir 818 sjúkraskrár á kerfisbundinn hátt. Sjúklingum sem lentu í úrtaki var raðað eftir fæðingardegi þannig að sjúkraskrá þeirra sem áttu afmæli 1. 606 LÆKNAblaðið 2011/97 janúar ár hvert voru rýndar fyrst og sjúkraskrár elstu sjúklinganna teknar fyrst á hverjum afmælisdegi og svo framvegis. Fjöldi rýndra sjúkraskráa takmarkaðist við þann tíma sem rýnarnir höfðu til að ljúka meistaraprófi í lyfjafræði. Af 818 sjúkraskrám sem farið var yfir voru 184 útilokaðar. í þeim hópi voru sjúkraskrár sem notaðar voru í forprófun rannsóknar (N=20), sjúkraskrár sem notaðar voru í samanburði milli rýna (interrater reliability, N=22), þar sem ártal innlagnar var rangt (N=31), svið sem átti ekki að vera í úrtaki (N=l), skrár í láni (N=28), skrár sem fundust ekki (N=8) eða skortur var á upplýsingum (N=74). Að auki var stuðst við 279 rýndar sjúkraskrár úr fyrri rannsókn á sama úrtaki.22 Rýndar voru 22 sjúkraskrár úr fyrri rannsókn og reyndist gott samræmi vera á milli skráningar rannsakenda (r=0,995). Sjúkraskrárupplýsingar voru því nýttar úr samtals 913 innlögnum. Skráningarkerfi var þróað fyrir gagnasöfnunina. Það hélt utan um ástæðu komu, athugasemdir lækna, lyf við komu, fjölda lyfja við komu og aðrar athugasemdir. Gögn um aldur, kyn og útskriftargreiningar voru fengin úr legukerfi Landspítala. Við yfirlestur sjúkraskrár var bráðasjúkraskrá lesin, læknabréf af bráðamóttöku, innlagnarnóta á deild, lyfjablöð og útskriftamóta af deild. Flett var upp í rafrænni sjúkraskrá (Sögukerfi) þegar einhver af áður nefndum gögnum voru ekki í pappírssjúkraskrá.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.