Læknablaðið - 15.11.2011, Side 28
RANNSÓKN
Tafla III. Meðalfjöldi lyfja eftir fjölda gæðavísa. Gæðavísunum er skipt i fjögur
gæðavísabll.
Fjöldi gæðavísa Meðalfjöldi lyfja Staðalfrávik 95% öryggisbil
0 4,97 3,11 4,69 - 5,25
1 7,76 3,26 7,33-8,19
2-3 8,46 3,78 7,81 -9,11
a4 11,28 3,94 10,45-12,11
(57,0%). Algengustu flokkar meðal karla voru flokkar C (82,2%),
B (69,6%), N (52,8%) og A (53,3%). Áberandi kynjamunur var
á notkun lyfja í flokkum N og B. Konur notuðu fleiri lyf úr
flokki N, en karlar notuðu fleiri lyf úr flokki B.
Við innlögn voru konur líklegri til að hafa gæðavísi en
karlar. Hlutfall sjúklinga með einn eða fleiri gæðavísi var 48,4%
(konur 56,2%, karlar 39,9%). Við innlögn voru 43,8% kvenna og
61,0% karla án gæðavísis og voru því líklega að nota lyf sem
talin eru hæfileg. Hlutfallið fór síðan lækkandi hjá báðum kynjum
þegar fjöldi gæðavísa jókst. Mestur fjöldi gæðavísa á mann var
átta en þrír einstaklingar voru með þann fjölda gæðavísa.
Á öllum aldursbilum (70-74 ára, 75-79 ára, 80-84 ára og 85
ára og eldri) voru flestir með engan gæðavísi. Hlutfall sjúklinga
fór síðan minnkandi þegar fjöldi gæðavísa jókst og á það við
öll aldursbilin. Tölfræðilega marktækur munur reyndist vera á
milli aldursbila hvað varðar fjölda gæðavísa (p=0,010). Þeir sem
voru á aldursbilinu 85 ára og eldri voru líklegri til að hafa einn
eða fleiri gæðavísa.
Tafla II sýnir fjölda sjúklinga með gæðavísa eftir kyni. í
sex af 15 gæðavísum var tölfræðilega marktækur munur milli
kynja. Konur voru oftar með fimm af þessum sex gæðavísum.
Algengasti gæðavísir hjá báðum kynjum voru svefnlyf (41,0%
kvenna, 24,8% karla).
Tafla III sýnir meðalfjölda lyfja eftir fjölda gæðavísa. Gæða-
vísunum er skipt í fjögur gæðavísabil í samanburðinum. ANOVA-
próf sýndi að tölfræðilega marktækur munur (F=117,6; p<0,001)
var á milli allra gæðavísabilanna með tilliti til meðalfjölda lyfja,
nema þegar einn gæðavísir var borinn saman við tvo til þrjá
gæðavísa (p=0,339).
Tafla IV sýnir niðurstöður tvíundargreiningar á sambandi
aldurs, kyns og fjölda lyfja við líkur á að hafa einn eða fleiri
gæðavísa. Allar óháðu breyturnar, aldur, kyn og fjöldi lyfja, hafa
tölfræðilega marktækan stuðul. Helmingi minni líkur eru á að
karlar séu með gæðavísi (OR=0,497) ef leiðrétt er fyrir aldri og
fjölda lyfja. Fyrir hvert aldursár eru um það bil 3% hærri líkur
Tafla IV. Tviundargreining á sambandi aidurs, kyns og fjölda lyfja við likur á að hafa
gæðavísi.
Breytur Stuðull p-gildi OR
Aldur í árum 0,030 0,012 1,031
Karlkyn - 0,699 0,000 0,497
Fjöldi lyfja við innlögn 0,325 0,000 1,384
Fasti -4,366 0,000 0,013
X2 (p-gildi) 263,522 (p = 0,000)
N 913
Nagelkerke R square 0,334
á að hafa gæðavísi (OR=1,031) þegar leiðrétt hefur verið fyrir
kyni og fjölda lyfja. Líkur á að hafa gæðavísi aukast um 40%
fyrir hvert lyf sem bætist við fjölda lyfja (OR=l,384) eftir að
leiðrétt er fyrir kyni og aldri. Kí-kvaðrat próf sýndi fram á að
líkanið var tölfræðilega marktækt (p<0,001). Einnig var námundað
R2 (Nagelkerke R square) ekki lágt (0,334), sem gefur til kynna
að líkanið geti skýrt að nokkrum hluta líkurnar á því að vera
með gæðavísi.
Umræður
Gæði lyfjameðferða meðal aldraðra hafa ekki verið rannsökuð
að ráði á Islandi og hafa skilyrðagæðavísar fyrir lyfjameðferð
við innlögn á sjúkrahús ekki verið skoðaðir áður með jafn
víðtækum hætti og gert var í þessari rannsókn. Farið var yfir
margar sjúkraskrár og eykur það styrk rannsóknar. Rafrænt
skráningarkerfi hélt utan um gögn sem skráð voru í þar til gerðum
gagnagrunni. Kerfið var einnig notað við úrvirtnslu gagnanna.
Notkun skráningarkerfis dregur úr hættunni á mistökum við
skráningu og úrvinnslu.
Við innlögn voru konur á tölfræðilega marktækt fleiri lyfjum
en karlar. I rannsókn sem gerð var á Islandi árið 1995 meðal 75
ára og eldri sem lögðust fyrirvaralaust inn á lyflækningadeildir
Borgarspítalans, var meðalfjöldi lyfja hjá konum 5,8 lyf en 6,6 lyf
hjá körlum.23 í samanburði við þessa rannsókn kemur í ljós að á
þeim rúma áratug sem er á milli rannsóknanna hefur meðalfjöldi
lyfja við innlögn hækkað meðal kvenna en er sambærilegur meðal
karla.
í rannsókn sem studdist við sænska lyfjagagnagrunninn fyrir
einstaklinga 75-89 ára árið 2005 kom fram að konur voru oftar
á hugsanlega óviðeigandi lyfjameðferð (24,6% hjá konum, 19,3%
hjá körlum). Þessi munur á kynjunum var einnig til staðar eftir
að búið var að leiðrétta fyrir aldri, menntunarstigi og fjölda
lyfja.19 í þessari rannsókn kom þessi kynjamunur einnig fram, en
talsvert hærra hlutfall hjá báðum kynjum var með einn eða fleiri
gæðavísi. Ástæðan fyrir hærra hlutfalli sjúklinga á hugsanlega
óviðeigandi lyfjameðferð í þessari rannsókn er líklega sú að
sænska rannsóknin náði til alls þýðisins en þessi rannsókn tók
aðeins til þeirra sem þurftu á innlögn að halda.
Konur voru oftar með fimm af þeim sex gæðavísum þar
sem tölfræðilega marktækur munur kom fram. Karlar höfðu
oftar gæðavísinn „aspirín + warfarín". Þetta er í samræmi við
niðurstöður rannsóknar úr sænska lyfjagagnagrunninum en
þar voru karlar oftar með gæðavísinn „hugsanlegar alvarlegar
milliverkanir" sem samanstóð af lyfjasamsetningunum aspirín
+ NSAID, aspirín + warfarín og warfarín + NSAID.19
Gæðavísirinn „svefnlyf" var algengasti gæðavísirinn hjá báðum
kynjum. Konur voru marktækt oftar með þennan gæðavísi.
Fleiri konur en karlar kvarta undan svefnerfiðleikum og eykst
algengi kvartana með hækkandi aldri. Algengi ávísana á svefnlyf
eykst með hækkandi aldri og er ávísun á þessi lyf meiri hjá
konum er körlum.20 í rannsókninni var gæðavísirinn „svefnlyf"
skilgreindur sem N05C. í íslenskri rannsókn sem kannaði
algengi geðlyfjanotkunar 70 ára og eldri í lyfjagagnagrunni
landlæknisembættisins kom fram að 49,0% kvenna og 33,4% karla
leystu út lyf í flokki N05C á íslandi árið 2006.24 Ástæðan fyrir
því að lægra hlutfall Beggja kynja kom fram í þessari rannsókn
608 LÆKNAblaðið 2011/97
k