Læknablaðið - 15.11.2011, Qupperneq 49
LANDSPÍTALINN
og Vatnsmýrarsvæðinu. Þá lýsti hann
skipulagi spítalans eftir fyrsta áfanga
og seinni áfanga og hugmyndum um
nýtingu eldri bygginga.
Páll Torfi Önundarson yfirlæknir á
Landspítala kynnti hugmyndir sínar um
að byggja spítalann upp á norðurhluta
Landspítalalóðarinnar. Með því fengist
meiri samþjöppun í starfsemina með
meiri hagkvæmni og betri aðstöðu fyrir
sjúklinga og starfsfólk. Páll taldi einnig
að ásýnd borgarinnar yrði fallegri með
þessum valkosti.
Örn Þór Halldórsson arkitekt rifjaði
upp álit erlendu ráðgjafafyrirtækjanna
Ementor og White-arkitekta um að
spítalinn yrði byggður á lóð Borgar-
spítalans í Fossvogi. Taldi hann að
sú staðsetning væri heppilegri með
tilliti til aðgengis að spítalanum og að
auðveldara væri að byggja hann upp
í áföngum. Einnig yrði betra að koma
fyrir tengingum við það hús sem fyrir
er og mundi það leiða til hagkvæmni
þegar til lengri tíma væri litið.
Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur
fjallaði um fjármálahlið verkefnisins
og nefndi að ekki lægju fyrir
núvirðisútreikningar fyrir verkefnið.
Þá væri hæpið að reikna með því
að rekstrarhagræðing borgaði upp
byggingarkostnað eins og fullyrt hefur
verið af yfirvöldum. Taldi hún þó
ekki útilokað að verkefnið þætti það
mikilvægt að farið yrði af stað þrátt
fyrir það. Að loknum framsöguerindum
voru fyrirspurnir og umræður.
Ýmsar áhugaverðar ábendingar komu
frá fundarmönnum sem voru um
120. Glærur frummælenda eru nú
aðgengilegar á opnum vef Læknafélags
íslands, www.lis.is
Velferðarráðherra, Guðbjartur
Hannesson, var meðal fundarmanna og
flutti stutt ávarp í lok umræðna þar
sem hann lagði áherslu á mikilvægi
verkefnisins. Það væri nú til skoðunar
hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík
og að þeirri umfjöllun lokinni gæfist
kostur á að gera athugasemdir. Síðan
færi málið til Alþingis til afgreiðslu á
vormisseri 2012.
fea
Sérfræðingur í svæfingum og
gjörgæslulækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum við svæfinga- og gjörgæsludeildir Sjúkrahússins á Akureyri, minna
starfshlutfall kemur til greina. Staðan veitist frá 1. janúar 2012 eða eftir samkomulagi.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Starfinu fylgir þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og
deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknarvinnu og sjúkraflugsvöktum.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeilda FSA.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar gefa Girish Hirlekar, forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar í sima 4630100, girish@fsa.is og Siguróur E. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri lækninga, sími 4630100, ses@fsa.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2011.
Umsóknir um ofangreind störf skulu sendar starfsmannaþjónustu FSA, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, eða á netfang starf@fsa.is, á þar til gerðum eyðublöðum, sem
fást hjá landlæknisembættinu. Umsóknum skulu fylgja itarlega upplýsingar um nám og starfsferil ásamt með upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk
kennslustarfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf við FSA er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA er
reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaðið 2011/97 629