Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2012, Síða 19

Læknablaðið - 15.12.2012, Síða 19
SJÚKRATILFELLI Hjartastopp hjá unglingsstúlku - sjúkratilfelli Valentínus Þ. Valdimarsson1 læknir, Girish Hirlekar5 læknir, Oddur Ólafsson5læknir, Gylfi Óskarsson4 læknir, Hróðmar Helgason4 læknir, Sigurður E. Sigurðsson4læknír, Hildur Tómasdóttir' læknir, Kristján Eyjólfsson3læknir, Tómas Guðbjartsson2'6læknir ÁGRIP Hjartastopp er sjaldgæft hjá börnum og unglingum. Lýst er 12 ára stúlku sem fór í hjartastopp eftir brátt hjartadrep þar sem beita varö langvarandi hjartahnoði og hjarta- og lungnavél til að bjarga lífi hennar. Við kransæða- þræðingu vaknaði grunur um flysjun í vinstri kransæðarstofni og var því komið fyrir kransæðastoðneti. Samdráttur hjartans lagaðist og var hjarta- og lungnavélin aftengd viku síðar. Hún útskrifaðist heim en hálfu ári síðar sást endurþrenging í stoðnetinu og var því gerð kransæðahjáveituaðgerð. Á tölvusneiðmyndum sást að um meðfæddan galla var að ræða þar sem vinstri kransæðarstofn átti upptök frá hægri ósæðarbolla í stað þess vinstra. Tilfellið sýnir að kransæðamissmíð getur valdið lífshættulegu hjartadrepi. Tilfelli ’Svæfinga- og gjörgæsludeild, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, 3hjartadeild Landspítala, “Barnaspítala Hringsins, 5svæfinga- og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri, 6læknadeild Háskóla íslands. Fyrirspurnir: Valentínus Valdimarsson valentva@ landspitali.is Greinin barst 3. júlí 2012, samþykkt til birtingar 7. nóvember 2012. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Hraust 12 ára gömul stúlka var stödd á sundæfingu þegar hún fann skyndilega fyrir mæði og kastaði upp. Hún var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri (SA) og átti þá erfitt með öndun en gat talað. Á bráðamóttöku mældist blóðþrýstingur 90/45 mmHg, púls 70 slög á mínútu og súrefnismettun 100% með 10 L/mín af súrefni á maska. Á lungnamynd sáust dreifðar íferðir (mynd 1) og hjarta- línurit sýndi tíð ofansleglaslög og hægri öxulbreytingar, en ekki ST-breytingar. Fyrsta mæling á CK-MB í sermi, sem gerð var 45 mínútum eftir að einkenni hófust, var eðlileg (5,1 pg/L, eðlilegt gildi <7 pg/L) og sömuleiðis Trópónín T (<0,01 ug/L, eðlilegt gildi <0,01 ug/L) (mynd 2). Einni og hálfri klukkustund eftir komu á SA versnaði öndun stúlkunnar og hún var barkaþrædd. Kom ljós- rauður froðukenndur vökvi úr barkarennunnni. í fyrstu vaknaði grunur um ásvelgingarlungnabólgu og voru henni gefin sýklalyf í æð, bólgueyðandi sterar og þvag- Mynd 1. Röntgenmynd aflungum við komu á Sjúkrahús Akureyrar. ræsilyf. Ákveðið var að fá tölvusneiðmyndir af lungum en á röntgendeildinni fór hún skyndilega í hjartastopp með sleglahraðtakti. Hafin var endurlífgun og henni gefin samdráttarhvetjandi lyf í æð (adrenalín, nor- adrenalín, levosimendan, phenylephrine, vasopressin). Náðist hún í sinustakt klukkutíma síðar og voru þá fengnar tölvusneiðmyndir (án skuggaefnis) sem sýndu dreifðar þéttingar í lungum líkt og við brátt andnauðar- heilkenni (acute respiratory distress syndrome, ARDS). Einnig var gerð ómskoðun á hjarta sem sýndi verulega skertan samdrátt vinstra slegils og mældist útfallsbrot (ejection fraction, EF) undir 10% (eðlilegt 55-70%). Vegna lágs blóðþrýstings varð að beita hjartahnoði með stutt- um hléum næstu þrjár klukkustundirnar en síðan varð ástand hennar stöðugra. Ákveðið var að senda stúlkuna með sjúkraflugi á Landspítala en á leiðinni þurfti aftur að beita hjarta- hnoði tímabundið í nokkur skipti vegna hægatakts og lágs blóðþrýstings. Við komu á Landspítala var hún færð rakleiðis á hjartaskurðstofu. Meðan á hjartahnoði stóð var hún tengd við ECMO-dælu (extracorporeal metnbraneous oxygenation) sem er afbrigði af hjarta- og lungnavél. Slöngum fyrir dæluna var komið fyrir í innri hóstarbláæð (internal jugular vein, 17 Fr) og hægri 0 20 40 60 80 100 Tími frá byrjun einkenna (klst) Mynd 2. Trðpónín T mælingar ísermi (ug/L) (eðlilegt gildi <0,01 ug/L). LÆKNAblaðið 2012/98 647

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.