Læknablaðið - 15.12.2013, Blaðsíða 4
12. tölublað 2013
555
Magnús Karl Magnússon
Fjárfesting í þekk-
ingu er fjárfesting
til framtíðar
Sú þekking sem íslenskt
vísindasamfélag hefur
skapað leggur grunn að
tækifærum fyrir íslenskt
heilbrigðiskerfi.
Magnús Gottfreðsson
Nálarstungur
úr launsátri
- um öryggi
starfsmanna á
sjúkrahúsum
Bólusetning gegn
lifrarbólgu B er mikilvæg
forvörn fyrir starfsfólk
sjúkrahúsa, en notkunin
á Landspítala hefur verið
alltof lítil fram á síðustu
ár.
FRÆÐIGREINAR
559
Ásdís Elfarsdóttir Jelle, ElínJ.G. Hafsteinsdóttir, Ólafur Guðlaugsson
Már Kristjánsson
Faraldsfræði stunguóhappa á Landspítalanum
á árunum 1986-2011. Lýsandi rannsókn
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í Ijós að meira en helmingur stungu-
óhappa á spítalanum tengdust holum nálum og tildrög óhappa líktust því sem
gerist á sjúkrahúsum þar sem lítil notkun er á öryggisnálum og öryggishlutum.
Því má vænta þess að innleiðing öryggisnála og öryggishluta fækki stungu-
óhöppum.
565
Áslaug Baldvinsdóttir, Reynir Tómas Geirsson, Jens A. Guðmundsson
Nýgengi og meðferð utanlegsþykktar
á íslandi 2000-2009
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að nýgengi utanlegsþykktar hefur lækkað
og má álykta að það haldist í hendur við lækkun á nýgengi klamýdíusýkinga á
síðasta áratug síðustu aldar. Þó er ekki öruggt að lækkað nýgengi haldist þar
sem klamýdíusýkingar hafa aukist undanfarin ár samkvæmt tölum frá land-
lækni.
573
Lúther Sigurðsson, ÚlfurAgnarsson, Ari V. Axelsson
Rauðkymingabólga í vélinda í börnum - tvö sjúkratilfelli
Rauðkyrningabólgu í vélinda í börnum var fyrst lýst á 10. áratug síðustu aldar
þegar barnalæknar sáu að börn sem höfðu verið greind með vélindabólgu
svöruðu ekki meðferð gegn vélindabakflæði sem fram að því var talin nær
eina ástæða vélindabólgu að frátöldum sýkingum.
Læknadagar í Hörpu
20.-24. janúar 2014
sjá dagskrá á blaðsíðu 602
I
552 LÆKNAblaðið 2013/99