Læknablaðið - 15.12.2013, Blaðsíða 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR
ELLEFTI KAFLI -Tengsl Viðbótarsamnings
þessa og annarra ákvæða og um endur-
skoðun hans
33. grein (tengsl Viðbótarsamnings og
Samnings)
Aðilar eru sammála um að ákvæði 1. til 32.
greinar Viðbótarsamningsins verði skoðuð
sem viðbótargreinar við Samninginn um
mannréttindi og líflæknisfræði og öll
ákvæði þess Samnings skulu gilda sam-
kvæmt því.
34. grein (víðtækari vernd)
Ekkert ákvæði Viðbótarsamnings þessa
skal túlka þannig að það takmarki eða
hafi önnur áhrif á möguleika samningsað-
ila til þess að veita þátttakendum í rann-
sóknum víðtækari vernd en mælt er fyrir
um í Viðbótarsamningi þessum.
35. grein (endurskoðun Viðbótarsamningsins)
í því skyni að fylgjast með framþróun
vísinda skal endurskoða núverandi Við-
bótarsamning í þeirri nefnd sem vísað er
til í 32. grein Samningsins, eigi síðar en
fimm árum eftir gildistöku Viðbótarsamn-
ings þessa og síðan þegar nefndin kann að
ákveða það.
TÓLFTI KAFLI - Lokaákvæði
36. grein (undirritun og fullgilding)
Viðbótarsamningur þessi skal liggja
frammi til undirritunar fyrir aðila sem
undirritað hafa Samninginn. Hann skal
fullgilda, viðurkenna eða samþykkja.
Aðili getur ekki fullgilt, viðurkennt eða
samþykkt Viðbótarsamning þennan nema
hafa áður eða samtímis fullgilt Samn-
inginn, viðurkennt hann eða samþykkt.
Fullgildingar-, viðurkenningar- eða sam-
þykktar-skjölum skal komið í vörslu Aðal-
framkvæmdastjóra Evrópuráðsins.
37. grein (gildistaka)
1. Viðbótarsamningur þessi skal öðlast
gildi á fyrsta degi þess mánaðar er
hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir
frá þeim degi að fimm ríki, þar með
talin að minnsta kosti fjögur aðildarríki
Evrópuráðsins, hafa lýst samþykki
sínu við að vera bundin af Viðbótar-
samningnum í samræmi við ákvæði 36.
greinar.
2. Að því er varðar hvert það ríki sem
síðar lætur í ljósi samþykki sitt við að
vera bundið af honum, skal Viðbótar-
samningurinn öðlast gildi frá fyrsta
degi þess mánaðar er hefst eftir að
liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi
að fullgildingar-, viðurkenningar- eða
samþykktarskjölum hefir verið komið í
vörslu.
38. grein (aðild)
1. Þegar Viðbótarsamningur þessi hefur
öðlast gildi getur hvert það ríki sem
gerst hefur aðili að Samningnum orðið
aðili að Viðbótarsamningi þessum.
2. Aðild skal komið á með því að koma
aðildarskjali í vörslu Aðalframkvæmda-
stjóra Evrópuráðsins og skal það öðlast
gildi frá fyrsta degi þess mánaðar er
hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá
þeim degi að aðildarskjali hefir verið
komið í vörslu.
39. grein (uppsagnir)
1. Sérhver samningsaðili getur hvenær
sem er sagt upp Viðbótarsamningi
þessum með tilkynningu til Aðalfram-
kvæmdastjóra Evrópuráðsins.
2. Slík uppsögn skal taka gildi fyrsta dag
þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir
eru þrír mánuðir frá þeim degi að
Aðalframkvæmdastjóranum barst slík
tilkynning.
40. grein (tilkynningar)
Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins
skal tilkynna aðildarríkjum Evrópuráðs-
ins, Evrópusambandinu, hverjum aðila og
hverju öðru ríki, sem hefir verið boðið að
gerast aðili að Samningnum,
a. sérhverja undirritun;
b. afhendingu sérhvers fullgild-
ingar-, viðurkenningar- eða sam-
þykktarskjals;
c. sérhvern gildistökudag Viðbótar-
samnings þessa samkvæmt 37. og
38. grein;
d. hverja aðra gjörð, tilkynningu eða
yfirlýsingu varðandi Viðbótar-
samning þennan.
Gjört í Strassborg, 25. dag janúarmánaðar 2005, á ensku og á frönsku, í einu eintaki sem varðveitt skal í skjalasafni Evrópuráðsins og skulu báðir textarnir jafngildir. Aðal-
framkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal senda staðfest endurrit til sérhvers aðildarríkis Evrópuráðsins, til ríkja er hafa tekið þátt í að semja Viðbótarsamning þennan og ekki
eru aðildarríki Evrópuráðsins og til sérhvers ríkis sem boðið er að gerast aðili að samningi þessum og til Evrópusambandsins.
Council of Europe Treaty Series - No. 195 Additional Protocol to the Convention on Human Rights and Biomedicine, Concerning Biomedical Research
íslensk þýðing © örn Bjarnason 2011
594 LÆKNAblaðið 2013/99