Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR ELLEFTI KAFLI -Tengsl Viðbótarsamnings þessa og annarra ákvæða og um endur- skoðun hans 33. grein (tengsl Viðbótarsamnings og Samnings) Aðilar eru sammála um að ákvæði 1. til 32. greinar Viðbótarsamningsins verði skoðuð sem viðbótargreinar við Samninginn um mannréttindi og líflæknisfræði og öll ákvæði þess Samnings skulu gilda sam- kvæmt því. 34. grein (víðtækari vernd) Ekkert ákvæði Viðbótarsamnings þessa skal túlka þannig að það takmarki eða hafi önnur áhrif á möguleika samningsað- ila til þess að veita þátttakendum í rann- sóknum víðtækari vernd en mælt er fyrir um í Viðbótarsamningi þessum. 35. grein (endurskoðun Viðbótarsamningsins) í því skyni að fylgjast með framþróun vísinda skal endurskoða núverandi Við- bótarsamning í þeirri nefnd sem vísað er til í 32. grein Samningsins, eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku Viðbótarsamn- ings þessa og síðan þegar nefndin kann að ákveða það. TÓLFTI KAFLI - Lokaákvæði 36. grein (undirritun og fullgilding) Viðbótarsamningur þessi skal liggja frammi til undirritunar fyrir aðila sem undirritað hafa Samninginn. Hann skal fullgilda, viðurkenna eða samþykkja. Aðili getur ekki fullgilt, viðurkennt eða samþykkt Viðbótarsamning þennan nema hafa áður eða samtímis fullgilt Samn- inginn, viðurkennt hann eða samþykkt. Fullgildingar-, viðurkenningar- eða sam- þykktar-skjölum skal komið í vörslu Aðal- framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. 37. grein (gildistaka) 1. Viðbótarsamningur þessi skal öðlast gildi á fyrsta degi þess mánaðar er hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi að fimm ríki, þar með talin að minnsta kosti fjögur aðildarríki Evrópuráðsins, hafa lýst samþykki sínu við að vera bundin af Viðbótar- samningnum í samræmi við ákvæði 36. greinar. 2. Að því er varðar hvert það ríki sem síðar lætur í ljósi samþykki sitt við að vera bundið af honum, skal Viðbótar- samningurinn öðlast gildi frá fyrsta degi þess mánaðar er hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi að fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjölum hefir verið komið í vörslu. 38. grein (aðild) 1. Þegar Viðbótarsamningur þessi hefur öðlast gildi getur hvert það ríki sem gerst hefur aðili að Samningnum orðið aðili að Viðbótarsamningi þessum. 2. Aðild skal komið á með því að koma aðildarskjali í vörslu Aðalframkvæmda- stjóra Evrópuráðsins og skal það öðlast gildi frá fyrsta degi þess mánaðar er hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi að aðildarskjali hefir verið komið í vörslu. 39. grein (uppsagnir) 1. Sérhver samningsaðili getur hvenær sem er sagt upp Viðbótarsamningi þessum með tilkynningu til Aðalfram- kvæmdastjóra Evrópuráðsins. 2. Slík uppsögn skal taka gildi fyrsta dag þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi að Aðalframkvæmdastjóranum barst slík tilkynning. 40. grein (tilkynningar) Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal tilkynna aðildarríkjum Evrópuráðs- ins, Evrópusambandinu, hverjum aðila og hverju öðru ríki, sem hefir verið boðið að gerast aðili að Samningnum, a. sérhverja undirritun; b. afhendingu sérhvers fullgild- ingar-, viðurkenningar- eða sam- þykktarskjals; c. sérhvern gildistökudag Viðbótar- samnings þessa samkvæmt 37. og 38. grein; d. hverja aðra gjörð, tilkynningu eða yfirlýsingu varðandi Viðbótar- samning þennan. Gjört í Strassborg, 25. dag janúarmánaðar 2005, á ensku og á frönsku, í einu eintaki sem varðveitt skal í skjalasafni Evrópuráðsins og skulu báðir textarnir jafngildir. Aðal- framkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal senda staðfest endurrit til sérhvers aðildarríkis Evrópuráðsins, til ríkja er hafa tekið þátt í að semja Viðbótarsamning þennan og ekki eru aðildarríki Evrópuráðsins og til sérhvers ríkis sem boðið er að gerast aðili að samningi þessum og til Evrópusambandsins. Council of Europe Treaty Series - No. 195 Additional Protocol to the Convention on Human Rights and Biomedicine, Concerning Biomedical Research íslensk þýðing © örn Bjarnason 2011 594 LÆKNAblaðið 2013/99
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.