Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.12.2013, Qupperneq 7
RITSTJÓRNARGREIN Fjárfesting í þekkingu er fjárfesting til framtíðar Magnús Karl Magnúson prófessor og forseti læknadeildar Háskóla íslands magnuskm@hi.is Fjárlagafrumvarp hverrar ríkisstjórnar markar með eindregnum og nákvæmum hætti hvert sú stjórn hyggst halda. í fjár- lögum birtist hin raunverulega stefna. í þeim er tækifæri til að sýna í verki hvort loforðaflaumur kosningabaráttu eða há- stemmdar hátíðarræður eiga við rök að styðjast. í fjölmiðlaumræðu síðustu vikna hefur sjónum einkum verið beint að grafal- varlegri stöðu heilbrigðiskerfisins og þeirri neyð sem blasir við ef núverandi fjárlaga- frumvarp fer óbreytt í gegnum þingið. Þar hefur staða Landspítala vakið mestan ugg. En það er á fleiri sviðum sem núverandi stjórnvöld hafa komið óþægilega á óvart með illa ígrunduðum tillögum. Samkeppn- issjóðir Vísinda- og tækniráðs eru skornir niður um 16% og lögð drög að áframhald- andi niðurskurði til þriggja ára um tæplega 40%. Þetta kemur sem rothögg á vísinda- og nýsköpunarstarf í landinu og kemur sér afar illa fyrir heilbrigðis- og lífvísindafólk, sérstaklega þá sem fremst standa. Vísindaumhverfi á íslandi er veikburða borið saman við okkar helstu nágranna. Innviði skortir á mörgum sviðum og fjár- magn til metnaðarfullra verkefna er af skornum skammti. Síðastliðinn áratug hefur Vísinda- og tækniráð þó unnið vandaða greiningarvinnu þar sem fram- tíðarsýn hefur verið vörðuð. Þessi vinna birtist meðal annars í skýrslunni Ný sýn og þar er skýrt leitt í ljós að veikasti hlekkur í vísinda- og nýsköpunarstefnu stjórnvalda er illa fjármagnað styrkjakerfi. A Islandi er hlutfall svokallaðra samkeppnissjóða af heildarfjármögnun vísindastarfs innan við 15%. í okkar helstu samanburðarlöndum er hlutfall slíkra sjóða 30-50% af vísindafjár- mögnun hins opinbera. Rannsóknarsjóður Vísinda- og tækniráðs er langsterkasti og mikilvægasti sjóður sem styrkir vísinda- starf á landinu. Sá sjóður, ásamt Tækniþró- unarsjóði, er nú verulega skorinn niður eins og að ofan var greint. Styrkleiki sjóða af þessu tagi er sá að þar er á skipulagðan og ígrundaðan hátt veitt fjármagni til þeirra verkefna sem skara fram úr. Leitað er umsagna bestu vísindamanna um allan heim til að leggja mat á gæði umsókna. Þannig fá allar umsóknir jafningjamat tveggja erlendra umsagnaraðila. Að loknu slíku mati er fjármunum úthlutað og þann- ig er stöðugt og vandað gæðamat lagt til grundvallar. Með stefnumörkun Vísinda- og tækniráðs síðustu ára hefur skapast víð- tæk pólitísk sátt um uppbyggingu þessara grundvallarsjóða. Slíkt kerfi fjármögnunar hvetur vísindastofnanir með metnað til að skapa sínum sterkustu vísindamönnum sem best umhverfi. Kerfið skapar einnig tækifæri til nýliðunar og hvetur til vaxtar þeirra sviða sem framúr skara. Það er engin tilviljun að nágrannalönd okkar leggja ríka áherslu á stuðning við vísindi. Efnahagskerfi Vesturlanda byggja í sívaxandi mæli á rannsóknartengdri nýsköpun. Nýsköpun byggð á framförum og skilningi innan heilbrigðisvísinda hafa þar verið ofarlega á blaði. Á íslandi höfum við ekki farið varhluta af fjárfestingum og atvinnusköpun á sviði heilbrigðisvísinda. Nýleg fjárfesting lyfjarisans Amgen í þekk- ingarsköpun vísindamanna Islenskrar erfðagreiningar sem nemur 52 milljörðum króna er stærsta erlenda fjárfestingin í íslensku atvinnulífi frá hruni. Slík fjár- festing ætti að leiða í ljós með afgerandi hætti virði vísinda og þekkingarsköpunar. Fjölmargir sprotar nýsköpunar eru að vaxa úr þessu sama nýsköpunarumhverfi heil- brigðisvísinda. Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum við læknadeild, hélt í síðasta mánuði fyrirlestur í fyrirlestraröð Háskóla íslands, Fyrirtæki verður til. Þar fjallaði hann um þrjú fyrirtæki, Risk, Oculis og Oxymap, sem öll hafa sprottið úr frjóum jarðvegi rannsókna Einars og hans samstarfsmanna í augnlækningum. Fjölmörg önnur fyrirtæki eru að vaxa úr grasi vísinda og nýsköpunarstarfs. Rann- sóknarstofnunin Hjartavernd hefur einnig skapað mikla þekkingu og atvinnu og dregið hundruðir milljóna króna til lands- ins í erlendum vísindastyrkjum. Það sama gildir um vísindastarf læknadeildar og Landspítala. Atvinnusköpun sem þannig vex úr hinni ótæmandi auðlind sem þekk- ingin er, gefur af sér mikinn arð. Hún er ekki bundin kvóta og hún gengur ekki nærri náttúruauðlindum okkar lands. Hún skapar atvinnutækifæri fyrir vel menntaða kynslóð sem nú vex úr grasi. Hún laðar til sín vel menntaða einstaklinga sem auðga samfélag okkar. Sú þekking sem íslenskt vísindasamfé- lag hefur skapað leggur einnig grunn að tækifærum fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Þannig hefur yfirgripsmikil og einstæð þekking á erfðamengi íslenskrar þjóðar myndað einstök tækifæri til að nálgast á nýstárlegan hátt forvarnir og meðferð byggða á einstaklingsmiðari nálgun. Slík ný og spennandi skref eru þó háð því að heilbrigðiskerfinu verði veitt viðspyrna í fjárlögum. Það ríður á að vanda til verka þegar til framtíðar er horft. Þar dugar ekki að tjalda til einnar nætur. Ríkisstjórn sú sem nú leggur fram sitt fyrsta fjárlagafrumvarp hefur misstigið sig. Hún hefur lagt fram áætlun sem felur í sér grundvallarstefnu- breytingu frá þeirri leið sem vönduð vinna síðustu ára innan Vísinda- og tækniráðs hafði markað. Við íslensku samfélagi blasa fjölmörg tækifæri á sviði nýsköpunar í at- vinnulífi og framfara í heilbrigðisþjónustu. Fjárfesting í þekkingu er forsenda vaxtar og slík fjárfestingarstefna er öruggasta leiðin til vaxtar þegar til lengri tíma er litið. Investing in knowledge for the future Magnus K. Magnusson, MD. Professor and Dean, Faculty of Medicine, University of lceland LÆKNAblaðið 2013/99 555
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.